Fréttablaðið - 11.01.2005, Síða 54
34 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Fyrsti þátturinn í sjöttu þáttaröð
The Amazing Race sem var tekinn
upp hér á landi í sumar verður
sýndur á Stöð 2 í kvöld.
Á undan þættinum, sem er
tveggja klukkustunda langur,
verður sýnd heimildarmynd sem
nefnist Í kjölfar kapphlaupsins
mikla. Þar verður bæði fjallað um
gerð þáttarins og spjallað við
nokkur þeirra fyrirmenna sem sáu
sérstaka forsýningu hans í byrjun
desember.
Á meðal þeirra sem koma þar
fram eru Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra, Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri. Einnig tjá höfundar þátt-
anna, hjónin Bert Van Munster og
Elise Doganieri, sig um gerð The
Amazing Race.
Að auki verður fjallað um þátt
kvikmyndafélagsins Pegasus í
gerð The Amazing Race hérlendis.
Hafði það uppi margar hugmyndir
um gerð þáttarins auk þess sem
það setti fram tillögur um töku-
staði. Á meðal hugmynda félagsins
var að keppendur yrðu látnir
hengja upp ákveðið magn af fisk-
hausum en fallið var frá henni.
Alls mættu ellefu tveggja
manna lið hingað til lands í sumar
og hófu leik í sjöttu þáttaröðinni.
Ferðuðust þau víða um suður- og
austurströnd Íslands, þar á meðal
upp á Vatnajökul í blíðskaparviðri.
Á meðal þeirra sem tóku þátt voru
fimm fyrirsætur, tveir atvinnu-
glímumenn, kennarar í spinning og
fyrrverandi Playboy-stúlka. Eitt lið
fellur út í hverjum þætti en liðið
sem kemst fyrst í mark eftir að
hafa ferðast vítt og breitt um heim-
inn fær í sigurlaun um 63 milljónir
íslenskra króna.
Íslandsþátturinn, sem er tvöfalt
lengri en aðrir þættir í seríunni,
var frumsýndur í Bandaríkjunum í
byrjun nóvember. Talið er að um 15
milljónir manna hafi fylgst með,
enda raunveruleikaþættir með
þeim vinsælustu sem sýndir eru í
sjónvarpi. Landkynningin sem
fylgdi þættinum var að vonum gíf-
urleg og á vafalítið eftir að skila
sér í auknum fjölda erlendra ferða-
manna hingað til lands á næstu
misserum. freyr@frettabladid.is
„Þeir eru með augun hjá sér
dyraverðirnir en annars var hún
mjög látlaus og féll inn í hóp ann-
arra Rex-gesta,“ segir Sverrir
Rafnsson, eigandi skemmtistað-
arins Rex, en Titanic-stjarnan
Kate Winslet tók snúning meðal
partíglaðra Íslendinga á Rex á
föstudagskvöldið.
„Kate var afskaplega prúð og
það fór lítið fyrir henni þannig,
en auðvitað sláandi falleg kona
og vakti athygli. Hún dansaði
heilmikið og virtist skemmta sér
hið besta,“ segir Sverrir, sem er
ekki alls óvanur heimsfrægum
andlitum meðal gestkomandi á
Rex, sem er heitasti næturklúbb-
ur höfuðstaðarins um þessar
mundir. Hollywood-stjarnan
Kiefer Sutherland var
fastagestur þar yfir hátíðarnar
og í sumar tjúttaði breski sjón-
varpskokkurinn Jamie Oliver
fyrir framan íslenska skjaldar-
merkið á Rex-barnum.
„Það er afar misjafnt hvað
þetta fólk fær að vera í friði
fyrir Íslendingum, en konur láta
sýnu verr innan um stjörnurnar
og haga sér stundum eins og
kjánar eða tíkur á lóðaríi. Menn
eru svo misánægðir með athygl-
ina. Jamie varð þreyttur á að
vera umsetinn bjóðandi konum,
enda kvæntur maðurinn, en
Kiefer lét sér alla kvenkyns
ágengnina í léttu rúmi liggja og
naut hennar reyndar í botn.
Íslenskir karlmenn eru svo hin
hliðin á sama teningnum og láta
kvenkyns stjörnurnar alveg í
friði. Virða einkalíf þeirra, með-
an stelpurnar eru eins og mý á
mykjuskán ofan í frægu körlun-
um,“ segir Sverrir, sem má vel
búast við fleiri frægum gestum
en Sutherland hefur þegar gert
Íslandsheimsókn sinni skil og
kynnt landið í spjallþætti Davids
Letterman.
thordis@frettabladid.is
Titanic-stúlka tjúttar á Rex
BRESKA LEIKKONAN KATE WINSLET
Bættist í hóp frægra listamanna sem kjósa
að lyfta sér upp og gera sér glaðan dag
meðal Íslendinga. Dansaði á Rex á föstu-
dagskvöldið og féll vel í hópinn.
Á HLAUPUM Keppendur í þættinum The Amazing Race á hlaupum í íslensku hrauni síðastliðið sumar en þessi Íslandsþáttur verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Á undan þættinum verður
sýnd heimildarmynd um gerð hans en þar koma við sögu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri.
THE AMAZING RACE Á ÍSLANDI: TVEGGJA TÍMA ÞÁTTUR OG HEIMILDARMYND Á STÖÐ 2
Kapphlaupið hefst í kvöld
... fær Grímur Gíslason, fréttarit-
ari Ríkisútvarpsins á Blönduósi,
fyrir að standa vaktina kominn á
tíræðisaldur.
HRÓSIÐ
Hákon Eydal
Bjargaði óléttri
konu úr ljóns-
kjafti í Sædýra-
safninu
– hefur þú séð DV í dag?
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Lárétt: 1 skilmálar, 5 for, 6 land, 7 tveir eins,
8 eins um l, 9 feiti, 10 á fæti, 12 fimmtíu og
tveir, 13 sönghópur, 15 ónefndur, 16 dvelst,
18 unnu eið.
Lóðrétt: 1 bikar, 2 jól á dönsku, 3 píla,
4 húsi, 6 æviskeiðið, 8 væl, 11 uppistaða,
14 á húsi, 17 kyrrð.
Lausn.
Lárétt: 1 kjör, 5aur, 6ey, 7ll,8glg,9tólg,
10il,12lii,13kór, 15nn,16unir, 18sóru.
Lóðrétt: 1kaleikur, 2jul,3ör, 4byggingu,
6ellin,8gól,11lón,14ris,17ró.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Mjöll-Frigg.
Mahmoud Abbas.
Landspítali-háskólasjúkrahús.
Dótið Upptrekkjanlegt útvarp.
Sem er? Fyrir þá sem geta ekki án útvarps-
ins verið í ferðalögum og vilja á sama tíma
ekki láta fara mikið fyrir því. Einnig þurfa þeir
ekki að hafa áhyggjur af því að kaupa raf-
hlöður eða velta vöngum yfir því hvort þær
endist. Útvarpið er aðeins 14,5 cm langt og
ætti því að vera nokkuð meðfærilegt í ferða-
lögum. Tíðnisviðið er AM og FM og hefur út-
varpið upp á að bjóða innbyggðan hátalara.
Á hliðinni er sveif sem er notuð til að trekkja
það upp. Sé það trekkt upp í 90 sekúndur ef
miðað er við tvo hringi á sekúndu er áætlað
að það gefi hlustandanum 20 mínútna út-
varpssendingu á miðlungshljóðstyrk. Ef
menn vilja meiri hljóðstyrk er einfaldlega
mælt með því að snúa sveifinni ennþá hrað-
ar. Kjósi menn hins vegar að trekkja það að-
eins upp í neyðartilfellum er hægt að nota í
það venjulegar rafhlöður. Útvarpið upptrekkj-
anlega er einnig hægt að nota sem lukt.
Getur það til að mynda lýst ferðamönnum í
ógöngum hvar sem er á landinu. Einnig er
það vatnshelt og ætti því að geta fengið að
fljóta með í hvaða ferðalag sem er, hvernig
sem viðrar.
Gallar? Fyrir þá sem líta ekki á það sem galla
að þurfa að trekkja upp útvarp eru gallarnir
fáir. Helst mætti nefna að ekkert handfang er
á útvarpinu ef menn vilja nota það sem lukt.
Kostar? Verðið er viðráðanlegt, um það bil
1.200 krónur og fæst gripurinn meðal annars á
heimasíðunni iwantoneofthose.com. Sendingar-
kostnaður hækkar verðið að sjálfsögðu eitthvað.
DÓTAKASSINN