Fréttablaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 74
NÝTT – OPIN FERÐ Nú er hægt að bóka NETSMELL til eins áfangastaðar
og heim frá öðrum. Þetta gildir um alla áfangastaði Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum.
Af því tilefni bjóðum við flug til Evrópu á sérstöku tilboðsverði.
FLUG 19.900 KR. – Sölutímabil til 24. febrúar. TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ.PARDON TIL PARÍSAR – HEIM FRÁ LONDON
SKO‹A‹U ALLT
ALLT er n‡ vöru- og fljónustuskrá á visir.is. ALLT geymir uppl‡singar um ALLT milli himins
og jar›ar, i›na›armenn, fljónustufyrirtæki, umbo›, verslanir og ALLT hitt sem flig
vanhagar um. ALLT er líka a› finna í fljónustunúmerinu 1850 og í vor ver›ur ALLT
bókinni dreift til allra landsmanna. fiú finnur ALLT á visir.is!
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Logi Geirsson skoraði þrjú mörk fyrir Lemgo, sem
bar sigurorð af
Hamburg í þýsku
úrvalsdeildinni
í handbolta í
fyrradag, 29-28,
en Ásgeir Örn
Hallgrímsson
komst ekki blað.
Lemgo er í 5. sæti deildarinnar eftir
sigurinn með 28 stig en Kiel er sem fyrr
í efsta sæti með 34 stig. Gummersbach
og Flensburg eru í 2.-3. sæti með 32
stig.
Jonathan Woodgate verður frá æfing-um og keppni næsta mánuðinn eða
svo eftir að hafa
tognað í læri í leik
Arsenal og Real
Madrid í fyrradag.
Woodgate varð að
fara af velli eftir
aðeins níu mín-
útur og eru þetta
enn ein meiðslin
sem Woodgate verður fyrir síðan hann
gekk til liðs við Real.
Að sögn varaforseta Barcelona, Ferran Soriano, hefði félagið mikinn áhuga
á hafa Thierry Henry í sínum röðum
- eins og öll önnur félög í heiminum.
„Hann er stór-
kostlegur leik-
maður sem allir
vilja hafa í sínu
liði. En hann er
samningsbund-
inn Arsenal og
við virðum það.
Ef hann verður
falur einhvern daginn munum við að
sjálfsögðu ræða við hann. En það er
ekki til umræðu í augnablikinu,“ segir
Soriano.
Yfirmenn FIFA, alþjóða knattspyrnu-sambandsins, munu ræða um kosti
og galla þess að taka upp stafræna
marklínutækni í fótbolta á fundi sínum
í næsta mánuði. Mun sú umræða ráða
miklu um hvort tekið verður upp á því
að koma myndavélum fyrir við mark-
línuna og leyfa dómurum að notast við
þær upptökur í leikjum. Málið hefur
verið lengi í deiglunni en talið er að það
muni skýrast að stóru leyti á áðurnefnd-
um fundi.
Edwin van der Sar hefur greint frá því að hann hafi fengið vægt áfall þegar
hann sá ökklann á Alan Smith eftir mis-
heppnaða tæklingu hans gegn Liverpool
á sunnudaginn.
Smith hefur
sjálfur sagt að
honum hafi fund-
ist ökklinn vísa
til Hong Kong og
segir van der Sar
að hann hafi átt erfitt með að láta dóm-
arann vita af alvarleika meiðslana. „Það
er hroðalegt að sjá svona meiðsli og ég
fékk virkilega mikla ónotatilfinningu,“
segir hollenski markvörðurinn.
Forráðamenn Real Madrid segja framherja sinn Ronaldo ekki vera til
sölu en hann hefur
ekki náð sér á strik
að undanförnu og
virkar allt of þung-
ur. Nýlega greindi
hann sjálfur frá
því að honum
fyndist hann
ekki velkominn á
heimavelli Real og
að stuðningsmenn félagsins kæmu ekki
fram við hann af ást og alúð. „Ronaldo
er ekki á förum frá Real. Hann er ekki
til sölu,“ sagði í tilkynningu frá félaginu
í gær sem gefin var út í kjölfarið á þess-
um ummælum Brasilíumannsins.
ÚR SPORTINU
FIMMTUDAGUR 23. febrúar 2006 45