Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 2
2 24. júlí 2006 MÁNUDAGUR E N N E M M / S ÍA / N M 2 17 15 SPURNING DAGSINS Gísli, ertu í harðri samkeppni við Gallerí Húdd? „Nei, það ríkir fákeppni á þessum markaði.” Gísli Ásgeirsson hefur opnað sýning- una Hringrás í Gallerí Skotti. Galleríið er farangursgeymslan á Isuzu-jeppa hans. LÖGREGLUFRÉTTIR Maður um þrítugt var handtekinn í gær á gatnamót- um Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar fyrir ofsaakstur og grun um að aka undir áhrifjum lyfja. Fyrst var tilkynnt um ógætileg- an akstur mannsins í Þingholtun- um. Lögreglubíll mætti mannin- um á Laugavegi við Nóatún og gerði tilraun til að stöðva hann, en maðurinn stakk af og upphófst elt- ingaleikur. Loks var maðurinn stöðvaður við Kringluna, en ekki vildi hann koma með góðu og þurfti að beita afli til að handtaka hann. Í bílnum fundust fíkniefni og er maðurinn grunaður um að aka undir áhrifjum lyfja. - sgj Ökuníðingur flúði lögreglu: Stakk af undir áhrifjum lyfja VESTMANNAEYJAR Aðalsteinn Þor- steinsson, forstjóri Byggðastofn- unar, segir mistök hafa verið gerð þegar Eignarhaldsfélag Vest- mannaeyja ákvað að leggja nánast allan sinn pening í eitt fyrirtæki, Íslensk matvæli. „Út frá þeim reglum sem gilda um svipuð eignar- haldsfélög og hvernig þau starfa er augljóst mál að þetta voru stór- kostleg mistök,“ segir hann. Guðjón Hjörleifsson, alþingis- maður og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir auðvelt að vera vitur eftir á, en hann var stjórnarformaður félagsins þegar kaupin voru gerð. „Þegar við geng- um frá kaupunum á Íslenskum matvælum höfðum við undir hönd- um kannanir frá greiningardeild Íslandsbanka og endurskoðunar- fyrirtækinu Deloitte & Touche. Þar lá fyrir að þetta væri ekki slæm fjárfesting.” Bergur Elías Ágústsson, full- trúi Byggðastofnunar í stjórn Eignarhaldsfélags Vestmanna- eyja, sagði af sér á dögunum vegna lögbrota félagsins sem hann kallar svo. Í greinargerð sem hann skrif- aði til Byggðastofnunar segir hann að Guðjón Hjörleifsson hafi ekki greitt fjórðung stofnfjár í eignar- haldsfélagi Vestmannaeyja eins og hlutafélagaskrá hafi verið tilkynnt um. Einnig hafi hann ekki látið bæjarstjórn vita af kaupum á fyr- irtækinu Íslenskum matvælum. Guðjón segir það alrangt sem Bergur segir að hann og Þorsteinn Sverrisson, framkvæmdastjóri félagsins, hafi átt að leggja til tvær milljónir í stofnféð. „Það stóð aldrei til að við yrðum hlut- hafar í félaginu, enda enginn ein- staklingur hluthafi í því. Við lán- uðum kennitölur okkar til að hægt væri að stofna félagið. Stofnféð átti að koma annars staðar frá og gerði það.“ Hann segir einnig rangt að bæjarstjórn hafi ekki vitað af kaupunum, rætt hafi verið um þau á aðalfundi eignarhalds- félagsins og bæjarstjórnarfund- um. Daginn eftir stofnun Eignar- haldsfélags Vestmannaeyja var gengið frá kaupum þess á fyrir- tækinu Íslenskum matvælum fyrir 130 milljónir króna. Rúmu ári síðar kom í ljós að rekstur fyr- irtækisins gekk ekki sem skyldi og varð það gjaldþrota. Tapaði Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja miklum peningum á kaupunum og var nálægt því að fara í gjaldþrot. Ekki náðist í Berg Elías Ágústs- son vegna málsins í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. salvar@frettabladid.is Fjárfesting félagsins stórkostleg mistök Forstjóri Byggðastofnunar segir stórkostleg mistök hjá Eignarhaldsfélagi Vest- mannaeyja að eyða öllu sínu fé í eitt fyrirtæki. Fyrrverandi stjórnarformaður félagsins segir auðvelt að vera vitur eftir á, kaupin hafi þótt góð á sínum tíma. VESTMANNAEYJABÆR Þegar Íslensk matvæli urðu gjaldþrota tapaði Eignarhaldsfélag Vest- mannaeyja miklum fjármunum. Í greinargerð sinni segir Bergur Ágústsson að bæjarstjórn hafi ekki vitað af þessum kaupum þegar hún lagði pening í félagið. GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON BERGUR ELÍAS ÁGÚSTSSON SVEITARSTJÓRNARMÁL Meirihluti Á- lista í bæjarráði Álftaness sam- þykkti á bæjarráðsfundi síðastlið- inn fimmtudag að fela Sigurði Magnússyni bæjarstjóra að ganga frá samningsslitum við Hjúkrunar- heimilið Eir um uppbyggingu þjón- ustuíbúða og annarrar þjónustu í miðbæ sveitarfélagsins. Sigurður Magnússon bæjarstjóri segir það rangt sem komið hafi fram í fjölmiðlum að ákvörðunin hafi verið einhliða frá bæjarráði. Nú muni bæjarráð standa fyrir arkitektasamningi með Arkitekta- félagi Íslands um skipulag mið- svæðisins. „Þetta var eitt aðaldeilumálið í kosningunum í vor, það var óskað eftir því að svæðið yrði endurskipu- lagt. Uppbyggingu svæðisins verð- ur frestað um ár, en hluti svæðisins verður notaður í uppbyggingu á þjónustuíbúðum fyrir aldraða og byggingu nýrrar stjórnsýslubygg- ingar sleppt. Við teljum þær 100 þjónustuíbúðir, sem átti að reisa, vera of mikið því við stefnum á aukna heimaþjónustu fyrir aldraða. Flestir vilja búa áfram heima, frek- ar en að flytja í þjónustuíbúðir,“ segir Sigurður. Guðrún Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Álftanesi, segist vera orðin langþreytt á enda- lausum breytingum á skipulagi mið- svæðisins. Aldraðir hafi tekið þátt í undirbúningi fyrra skipulags og þeirra vinna sé nú til einskis. - sgj Eir og bæjarráð Álftaness slíta samningi um byggingu þjónustuíbúða: Heimahjúkrun verði meiri STARFSLOK „Ég óskaði sjálfur eftir að hætta og geri það í góðu en ég vil ekki tjá mig um hvað við tekur að sinni,“ segir Reynir Traustason blaðamaður, en hann er hættur störfum sem ritstjóri Mannlífs. Reynir hefur verið ritstjóri þar síðan í desember 2004 þegar hann hætti sem fréttastjóri DV og hefur tímaritið selst vel undir hans stjórn. Hann segir enga óvissu taka við heldur sé fram- undan nýtt og spennandi verkefni en hann vill þó ekki opinbera að sinni hvað um sé að ræða. „En ég hætti í góðu og hef gott eitt af mínum fyrrum vinnustað að segja.“ - aöe UMSKIPTI HJÁ FRÓÐA Reynir Traustason er hættur sem ritstjóri Mannlífs. Ritstjóri Mannlífs hættur: Reynir annað SIGURÐUR MAGNÚSSON Nýr bæjarstjóri á Álftanesi segir breytingarnar vera í sam- ræmi við vilja kjósenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KJARAMÁL Félag íslenskra flug- umferðastjóra sýnir af sér ótrú- lega óbilgirni að láta í veðri vaka að Flugmálastjórn hafi skellt á nýju vaktakerfi án samráðs við starfsmenn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugumferðar- sviðs Flugmálastjórnar Íslands, hefur sent frá sér vegna ummæla stjórnar Félags íslenskra flug- umferðarstjóra um vaktakerfis- breytingu sem gerð var 16. mars síðastliðinn. Þar segir hann rétt að Flug- málastjórn hafi aldrei viljað semja um vaktakerfi, en Félag íslenskra flugumferðarstjóra fari viljandi með hálfsannleik þegar því sé lýst yfir að félagið hafi alltaf verið reiðubúið að semja um vaktakerfi og því hafi ekki borist nein tilboð um slíkt frá Flugmálastjórn. Ásgeir segir algerlega óviðunandi að stjórn stéttarfélags skuli ekki virða gildandi kjarasamning og staðfesta túlkun hans, en kjósa heldur að ala á óánægju. Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðar- stjóra, segist ekki ætla að svara þessari yfirlýsingu að svo stöddu. „Þarna er alla vega komið fram það sem við höfum sagt, að Flug- málastjórn hefur aldrei viljað semja við okkur.“ - sþs Framkvæmdastjóri flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands: Segir farið með hálfsannleik FLUGUMFERÐARSTJÓRN Ásgeir segir óvið- unandi að stjórn stéttarfélags skuli ekki virða gildandi kjarasamning og staðfesta túlkun hans en kjósa heldur að ala á óánægju. BJÖRGUN Fimm sluppu óslösuð þegar pallbíll þeirra festist í Krossá í Þórsmörk í gær. Bíllinn lenti ofan í hyl, flaut upp og með straumnum um þrjátíu metra niður ána. Þar skorðaðist hann fastur og vatn braut yfir. Fólkinu tókst að klifra upp á þak bílsins og var þaðan bjargað, af björgunar- sveit Landsbjargar. Skálaverðir í Húsadal drógu bílinn upp. „Krossáin hefur tekið marga bíla gegnum tíðina, enda erfið á og þarf töluverða reynslu og kunn- áttu til að komast yfir hana svo öruggt sé,“ segir Sigurður Viðars- son hjá Landsbjörg. „Þetta getur komið fyrir hvern sem er, árnar eru breytilegar og best er að vaða yfir þær og kanna aðstæður.“ - sgj Fólk hætt komið á ferð yfir á: Flutu 30 metra niður Krossá TEHERAN, AP Mahmoud Ahmadin- ejad, forseti Írans, lýsti því yfir í gær að Ísraelsmenn hefðu „þrýst á sjálfseyðingarhnapp“ með aðgerðum sínum í Líbanon. Hann útskýrði orð sín ekki nánar, en gaf til kynna að múslimaríki og önnur gætu einangrað Ísraelsríki á ein- hvern hátt. Yfirmaður herráðs Írana hafði tilkynnt daginn áður að Íranar mundu alls ekki blanda sér í stríðið í Mið-Austurlöndum. Íranska ríkisstjórnin tók þátt í stofnun Hizbollah-samtakanna á níunda áratugnum og styrkir þau. Ráðamenn í Teheran hafa hins vegar vísað á bug þeim ásökunum Ísraelsmanna að Hizbollah hafi fengið eldflaugar frá Íran til árása á Ísrael. - kóþ Forseti Írans ómyrkur í máli: Ísraelar á sjálfs- eyðingarbraut ENGLAND Tveir létust og tólf manns slösuðust þegar risastórt uppblás- ið listaverk losnaði úr festingum sínum á sunnudag. Slysið varð í Durham-sýslu í Englandi sam- kvæmt fréttavef BBC. Margir voru inni í listaverkinu, sem samanstendur af tengdum herbergjum, þegar það lyftist fjörutíu metra upp í loftið, flækt- ist í staur og brotlenti við nálæg- an leikvöll. Rannsókn á tildrögum slyssins er hafin, en um fimm hundruð manns voru í kringum listaverkið, sem er á stærð við hálfan fótbolta- völl, þegar það hófst á loft. - sþs Banaslys í Englandi: Fljúgandi lista- verk drepur tvo Miðbær Reykjavíkur Allt fór vel fram í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt, þótt skemmtanahald væri mikið. Þrennt var þó tekið fyrir ölvunarakstur. LÖGREGLUFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.