Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 24. júlí 2006 3 Guðmundur Óli Scheving SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is. Hambjalla fannst í fyrsta skipti á Íslandi árið 1974 í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar. Bjöll- ur þessar eru 3-4 mm á lengd. Ástæðan fyrir því að hambjallan lifir í híbýlum okkar er einfaldlega að þar er hún við kjöraðstæður með nægan mat, hita og gott skjól. Tjón af völdum hambjöllunnar er sáralítið. Hambjallan er svartbrún með gulleitan blett á hvorum skjald- væng. Meðan hambjallan er á lirfustigi skiptir hún 5-7 sinnum um ham. Hamurinn er gulleitur og lík- ist hrúðri og skilur lirfan hann eftir þar sem hún hefur verið. Hambjalla er af ættbálki (Coeoptera) bjallna sem telur vel yfir 300.000 tegundir í heiminum. Hún verpir tiltölulega fáum eggjum sem úr skríða litlar, hárugar, gulbrúnar lirfur sem nær- ast á dýra- og skordýraleifum. Það tekur lirfurnar um 5-6 mánuði að ná þroska til að púpa sig. Lirfurnar nærast nær eingöngu á dýraleifum og oftast skordýraleifum. Þær geta verið án fæðu langtímum saman. Mörgum finnst hambjallan hvim- leiður gestur og er þá eina ráðið að fá meindýraeyði til að úða. Mjög gott er að úða aftur eftir þrjá mánuði til að vera alveg viss um að bjallan hafi drepist. Gífurlega fjölgun og útbreiðsla hambjöllu má án efa rekja til þess að hún fjölgar sér með meyfæð- ingu. Karldýr hafa aldrei fundist. Talið er að um 230 tegundir í þessum ættbálki séu á hér landi. Heitið hambjalla er tilkomið af því að tegundin fannst fyrst í fuglshömum en hamskipti eru þó nokkuð sérstök fyrir tegundina. Stundum má sjá í t.d. gluggakist- um gulleita hami af bjöllunni á lirfustiginu. Hambjalla er útbreidd um allan heim. Hún veldur yfirleitt litlum skaða nema þá í náttúrudýrasöfn- um og einstaka uppstoppuðum dýrum í einkaeign. Þegar fólk þarf að fá til sín meindýraeyði eða garðúðara skal alltaf óska eftir að fá að sjá starfsskírteini útgefið af Umhverfis- stofnun og eiturefnaleyfi gefið út af lögreglustjóra/sýslumanni og það mikilvægasta er að viðkom- andi hafi starfsleyfi frá viðkomandi sveitafélagi. Athugaðu hvort öll skírteini séu í gildi. Félagar í Félagi Meindýraeyða eru með félagsskír- teini á sér. Fáðu alltaf nótu vegna viðskiptanna. Réttindi meindýraeyða og gaðúðara frá erlendum ríkjum og félagasamtökum gilda ekki á Íslandi. Heimildir: Upplýsingar og fróð- leikur um Meindýr og varnir 2004 Hambjalla (Reesa vespulae) Epli í garðinn minn EPLATRÉ ERU EKKI ALGENG SJÓN Á ÍSLANDI OG ÞYKJA FREKAR VERA MERKISFYRIRBÆRI SEM SJÁST Á ERLENDUM HITABELTI- SLÓÐUM. Stöðugar kynbætur í eplatrjárækt hafa leitt af sér afbrigði sem vaxa við styttra og kaldara sumar, að því er fram kemur í bókinni Garð- urinn allt árið. Vilji fólk láta reyna á hvort heim- ilið geti orðið sjálfbært í eplarækt skal velja eplatrénu besta fáanlega staðinn í garðinum þar sem bæði er skjól og sól. Eplin frjóvga sig yfirleitt ekki sjálf heldur þurfa frjókornin að koma af öðru tré og verður því að velja saman tré sem blómstra á svipuðum tíma. Enn fremur er tekið fram í bókinni að erlendis rækti margir svokölluð fjölskyldutré þar sem margir klón- ar eru græddir á eina rót en með því fæst uppskera yfir lengri tíma- bil ásamt því að meiri fjölbreytni verður í bragði og lit. Nú er bara að sjá hvort sólin brjótist ekki fram úr skýjunum svo hægt sé að hefja eplaræktun í íslenskum görðum. Gamla Blómavalshúsið í Sigtúni er nú fullt af varnarliðs- eignum til sölu. Um er að ræða húsgögn af öllum stærðum og gerðum sem seld eru vegna brottflutnings varnarliðs- ins. Hægt er að prútta og gera þannig góð kaup á stólum, borðum og sófasettum en sem stendur eru flest húsgögnin skrifstofuhús- gögn. Enn sem komið er eru fáir smáhlutir á boðstólum en þeim ætti að fjölga síðar í sumar. Varnarliðssalan fær sendingar hálfsmánaðarlega fram í septemb- er svo fjölbreytnin er alltaf til staðar. Einnig er þess virði að skoða bílana sem til sölu eru á planinu fyrir framan húsið. Opið er fimmtudaga 10 til 18, föstudaga og laugardaga frá 12 til 19, og sunnudaga frá 12 til 18. - tg Varnarliðs- húsgögn til sölu Flest húsgögnin núna er skrifstofuhúsgögn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þessi merkilegi trukkur er til sölu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eplatré eru mikið augnayndi í garðinn og uppskera þeirra góð undir tönn. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES ��������������������������������� Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Lokað á laugardögum í júlí w w w .d es ig n. is © 20 06 ������������������������� ��������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������ ��������������������� ������������������������ ��������������������� ������������������������������� ���������������������� ��������������������������� ��������������������� ���������������� ��������������������� ������������������ ��������������������� ��������� ��������������������� �������� � ��������������������� ������������������������ ��������������������� ����������������������� ���������������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.