Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 24. júlí 2006 23 menning@frettabladid.is ! Íslenska hreyfiþróunar- samsteypan samanstendur af fimm ungum dönsurum; þeim Vigdísi Evu Guð- mundsdóttur, Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, Katr- ínu Gunnarsdóttur, Ásgerði Guðrúnu Gunnarsdóttur og Ragnheiði Sigurðard. Bjarnason. Danshópurinn er meðal fjöl- margra annarra sem taka þátt í verkefninu Skapandi sumarstörf hjá Hinu húsinu, en æfingar á dans- og leikverki eru nú í fullum gangi og að sögn Melkorku ganga þær vonum framar. „Bæði hug- myndavinnan og dansæfingar hafa staðið yfir í allt sumar en við munum halda áfram þeirri vinnu fram að frumsýningu, sem verður 10. ágúst næstkomandi. Sýningin okkar er hluti af stórri listahátíð sem grasrótarhátíð ungra listamanna stendur fyrir en hátíðin nefnist ArtFart og fer hún fram í verksmiðjuhúsnæði John- son & Kaaber.“ Melkorka segir Íslensku hreyfi- þróunarsamsteypuna ekki ein- vörðungu hafa fengið styrk frá Hinu húsinu heldur jafnframt frá félaginu Ungt fólk í Evrópu, en það er styrktarfélag sem veitir ungu listafólki tækifæri til að leggja rækt við list sína. „Verkið okkar fjallar um raunveruleika- sjónvarpsefni sem svo vinsælt er alls staðar í heiminum í dag. Við tökum fyrir megináherslurnar í þessari tegund sjónvarpsefnis, sem að okkar mati leggur allt upp úr því að niðurlægja fólk. Málum virðist nefnilega því miður þannig háttað að áhorfendur margir hafa gaman af því að fólk sé gert að athlægi. Þetta setjum við síðan inn í heim sem byggir á Disney-veröld. Allt sem við vinnum með í þessu verki passar inn í Disney-veröld sem er ekkert annað en ofurraun- veruleiki.“ Melkorka segir að því lengra sem liðið hafi á vinnuferlið hafi þær fært sig lengra inn á svið ofurraunveruleika. Meinið er, að sögn Melkorku, að það er búið að taka raunveruleikann úr samhengi í þessari tilteknu tegund af sjón- varpsefni og búa til úr honum eitthvað allt annað sem ekki er raunverulegt, heldur fáránlegt og handan þess sem er. „Við vinnum með þetta efni út frá spuna þar sem allir eru jafnir og við útilok- um ekkert við úrvinnslu hug- mynda.“ Melkorka segir þær stöllurnar áður hafa starfað saman; í fyrra sýndu þær verk í Færeyjum sem þær nefndu Best í heimi, en verkefnið var styrkt af menntamálaráðuneytinu. „Við unnum þetta verk út frá heimild- armynd Kristínar Ólafsdóttur sem heitir How do you like Ice- land og sýnd var í Ríkissjónvarp- inu í fyrra.“ Hún segir þær vin- konurnar líka hafa nóg fyrir stafni næstu misserin, enda var þeim boðið að taka þátt í afmælissýn- ingu hjá Dansleikhúsi Með Ekka sem haldin verður um næstu ára- mót, auk þess sem nokkrar þeirra eru á leið í nám erlendis. „Við munum engu að síður halda áfram af fullum krafti að vinna saman, þrátt fyrir að Atlantshafið skilji sumar okkar að. Það þarf meira til en hafið til að leiða okkur í sundur. Samstarf okkar er rétt að hefjast,“ segir Melkorka í lokin. - brb Dans og ofurraunveruleiki ÍSLENSKA HREYFIÞRÓUNARSAMSTEYPAN Tekur fyrir raunveruleikasjónvarp í dansleikhúsi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN KL. 14.00 Brúðubíllinn skemmtir börnum og þeim sem enn varðveita barnið í sér í Árbæjarsafni. Eiginkona titilpersónu bókarinnar Bóksalinn í Kabúl hefur sótt um hæli í Evrópu og segir að bókin hafi stofnað lífi sínu í hættu. Bókin, sem er eftir norsku blaðakonuna Åsne Seierstad, segir frá hjónunum Shah Mohammed Rais og Suraya Rais og fjölskyldu þeirra eftir fall talíbana- stjórnarinnar þar í landi. Bókin kom út árið 2002 og naut vinsælda víða um heim. Nýlega var hún gefin út í Afganistan og segir Rais að hún sé ekki lengur óhult eftir það. Hún hefur því sótt um hæli í Svíþjóð en svo gæti farið að hún fari til Noregs. Eiginmaður Rais hefur hins vegar ekki sótt unm hæli og er óvíst að hún geri það. Fljótlega eftir að bókin kom út höfðaði eiginmaður Rais mál á hendur Seierstad þar sem hún hefði svert orðstír hans með því að lýsa honum sem ofstækismanni sem stjórnaði fjölskyldu sinni harðri hendi. Seierstad segir að hann hafi ekki hlustað á neinar sáttatillögur heldur fari nú offari í fjölmiðlum til að ná sér niðri á henni og for- laginu og heimti skaðabætur. Hann stefnir líka á að gefa út bók þar sem hann segir sína hlið á málinu. Sækir um hæli í Svíþjóð 21. júlí – fös kl. 20 – Uppselt 27. júlí – fi m kl. 20 – laus sæti 28. júlí – fös kl. 20 – laus sæti 17. ágúst – fi m kl. 20 – laus sæti 18. ágúst – fös kl. 20 – laus sæti INNKÖLLUN stofnfjárbréfa Stjórn SPV gerir kunnugt að hún hefur ákveðið að stofn- fjárbréf í sparisjóðnum verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi mánudaginn 31. júlí 2006 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu stofnfjárbréf í sparisjóðnum í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð. Stofnfjárhlutir í SPV eru 3205 og eru allir gefnir út á pappírsformi. Nafnverð hvers hlutar er 25.000 kr. og allir stofnfjárhlutir eru í sama fl okki. Stofnfjárbréfi n ógildast er rafræn skráning tekur gildi skv. framansögðu. Við rafræna útgáfu stofnfjárbréfanna verður nafnverð þeirra skráð með sama hætti og áður, þ.e. hver stofnfjárhlutur er 25.000 kr. að nafnverði. Reykjavík, 24. febrúar 2006 F.h. stjórnar SPV, Ragnar Z. Guðjónsson, Sparisjóðsstjóri Föstudag 21. júlí kl. 20 uppselt Laugardag 22. júlí kl. 20 uppselt Sunnudag 23. júlí kl. 15 aukasýning Sunnudag 23. júlí kl. 20 uppselt Föstudag 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus Laugardag 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus Sunnudag 30 júlí kl 15 aukasýning Sunnudag 30. júlí kl. 20 nokkur sæti laus Föstudagur 4. ágúst kl. 20 Laugardagur 5. ágúst kl 20 Sunnudagur 6. ágúst kl. 15 Sunnudag 6. ágúst kl. 20 Laugardagur 19. ágúst kl 20 Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði kr. 4300 - 4800.- Sa m kv . d ag bó ka rk ön nu n G al lu p ap ríl 2 00 6. ÅSNE SEIERSTAD Bóksalinn frá Kabúl segir frá fjölskyldu í Afganistan eftir fall talíbanastjórnarinnar. > Ekki missa af... ...tríóinu Tónafljóði í Sigurjónssafni í Laugarnesinu á morgun. Tríóið er skipað þeim Sigrúnu Erlu Egilsdóttur sellóleikara, Þórunni E. Pétursdóttur sópransöngvara og Valdísi Vigfúsdóttur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. ...samsýningunni Eiland í Gróttu með listamönnunum Ásdísi Sif Gunnarsdóttir, Friðriki Erni Hjaltested, Haraldi Jóns- syni, Hrafnkeli Sigurðssyni og Ragnari Kjartanssyni. Opið er í dag á milli tíu og fimmtán. ...sýningu Ragnars Axelssonar, ljósmynd- ara Morgunblaðsins, í Vestmannaeyjum. Íshúsið í Vestmannaeyjum er prýtt myndum Ragnars, sem hefur um árabil verið einn virtasti ljósmyndari landsins. Hönnunartvíeykið Stígvél saman- stendur af tveimur ungum stúlk- um, Ingunni Jónsdóttur og Þór- unni Árnadóttur, en þær taka þátt í Skapandi sumarstörfum á vegum Hins hússins. Þær opn- uðu sýningu á verkum sínum í Gallerí Gyllinhæð en hún stóð yfir nú um helgina. „Sýningin okkar var afrakstur átta vikna rannsóknarvinnu á íslenskri menningu. Við sýndum ljós- myndir frá ýmsum uppákomum á eigin vegum, hluti sem við not- uðum á uppákomunum og eins hluti sem sérstaklega voru hann- aðir með sýninguna í huga,“ segir Ingunn. Á yfirlitssýningunni kenndi ýmissa grasa, en Ingunn og Þórunn bjuggu til margvíslega muni sem allir hafa vísun í alþýðumenningu Íslendinga. „Við hönnuðum til dæmis hálsmen sem er gert úr móti af íslenskum kleinum. Við byrjuðum á því að steikja klein- urnar þannig að þær yrðu pínu- litlar eða aðeins tveir sentimetr- ar á lengd, tókum svo mót af þeim úr plastefni og hönnuðum hálsmen.“ Þær hönnuðu einnig ljós sem búið er til úr áli, skreið og ber laufabrauðsmynstur. „Á sýning- unni getur einnig að líta mjög þykkt teppi sem er sérstaklega búið til fyrir íslenskar aðstæð- ur, en það er vatnshelt. Við létum síðan prenta á það net úr íslenskum blómum til að gera það fallegt.“ Hönnunartvíeykið Stígvél INGUNN OG ÞÓRUNN Sýna ljósmyndir frá ýmsum uppá- komum sem þær hafa sjálfar staðið fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.