Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 19
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 4.08 13.34 22.58 Akureyri 4.08 13.34 22.58 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Fasteignasalan 101 Reykjavík hefur til sölu gullfallegt 208 fermetra einbýlishús við Grundarstíg með 41 fermetra bílskúr. Húsið, sem er byggt 1913 og endurbyggt 1943, er úr timbri og steini. Húsið stendur á 419 fermetra eignarlóð. Garðurinn er afgirt- ur og einstaklega fallegur með gosbrunni, hellulögðum stígum, fjölbreyttum gróðri og tveimur sólpöllum. Gengið er inn á miðhæð hússins. Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísum. Þar inni af er gangur með innbyggðu fata- herbergi. Eldhúsið er mjög rúmgott með fallegri viðarinnréttingu, tengi fyrir upp- þvottavél og borðkrók með útsýni yfir garð- inn. Gengið er frá borðkrók út á sólríka ver- önd með skjólveggjum. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með parketti á gólfi, sem og gott herbergi sem er á hæðinni. Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæðina og komið upp á stigapall með útgangi út á suðursvalir. Gott hjónaherbergi með skápum og parketti er á hæðinni, gang- ur með innbyggðum skáp, baðherbergi með baðkari og tvö rúmgóð herbergi, annað með innbyggðum skáp. Í kjallara er rúmgott herbergi með stórri geymslu inni af, þvottahús með sturtuað- stöðu og vaski, salerni og rúmgóð geymsla með hillum. Bílskúrinn er mikið endurnýj- aður og í honum eru rafmagns- og vatns- lagnir. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur- borgar hefur samþykkt að byggja megi ris- hæð ofan á húsið. Búið er að skipta um alla glugga og gler í húsinu. Ásett verð er 67 milljónir. Glæsileg eign í hjarta Reykjavíkur Húsið er á tveimur hæðum, auk kjallara og bílskúrs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Iðnaðarlóðir eftirsóttar IÐNAÐARLÓÐIR Í ÞORLÁKSHÖFN ERU EFTIRSÓTTAR UM ÞESSAR MUNDIR. Bæjarstjórinn í Þorlákshöfn, Ólafur Áki Ragnarsson, lét hafa það eftir sér í nýlegu viðtali við Viðskiptablaðið að sveitafélagið hefði upp á mikið að bjóða hvað iðnaðarlóðum viðkæmi, bæði vegna þess hve mikið er af landi á svæðinu og skipulagðar lóðir fyrir iðnaðarhúsnæði upp á 150.000 fermetra. Ólafur sagði landið jafnframt henta undir iðnað, vegna þess hve ódýrt væri að gera grunna. Þetta væri því alveg einstakt atvinnutækifæri fyrir fyrirtæki. Að auki væri ekki langt frá Þorlákshöfn til höfuðborgarinnar. - rve Þorlákshöfn hefur upp á margt að bjóða fyrir iðnfyrirtæki. GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 24. júlí, 205. dagur ársins 2006. GOSBRUNNUR Í GARÐINN Hvern dreymir ekki um að heyra róandi nið vatns í garðinum? Sjaldan hefur úrval tilbúinna gosbrunna verið meira en nú. HÚS 4 FASTEIGNASÖLUR 101 Reykjavík 6-7 Árborgir 21 Ás 18-20 Ásbyrgi 5 Draumahús 12-13 Eignastýring 17 Eignaumboðið 16 Fasteingafélag Austurl. 16 Fasteingafélagið Stoðir 9 Fasteingamiðlunin Múli 9 Fyrirtækjasalan 21 Lyngvík 8 Lundur 10-11 Nýtt heimili 15 S.L.I ehf 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.