Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 4
Bolludagsbragðið Fáðu þér rjóma inn á milli H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 8 3 0 5 Ker hf., áður Olíufélagið hf., hefur verið dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, trésmiði frá Húsavík, fimmtán þúsund króna skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir vegna þátttöku fyrir- tækisins í ólögmætu verðsamráði olíufélaganna þegar það seldi honum bensín á árunum 1995 til 2001. Sigurði voru einnig dæmdar fimmhundruðþúsund krónur í málskostnað. Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í gær. Sigrún Guðmundsdóttir hér- aðsdómari skilaði sératkvæði og taldi að Ker ætti að greiða Sigurði 36 þúsund krónur. Kristinn Hallgrímsson, lög- maður Kers, segir að dómnum verði áfýjað til Hæstaréttar. Ker var sýknað af kröfum í Hér- aðsdómi í desember en Sigurður áfrýjaði. Í Hæstarétti í janúar var einni kröfu Sig- urðar vísað aftur til efnis- meðferðar í hér- aðsdómi. Fyrir dómi setti Sigurður fram gögn um að hann hefði keypt bensín af Olíufélaginu fyrir rúmlega 1,1 milljón króna á tímabilinu og voru skaðabæturnar í héraðsdómi dæmdar út frá því. Steinar Guðgeirsson, lögmaður Sigurðar, segir að dómurinn sé tímamótadómur því hann hafi for- dæmisgildi fyrir aðra einstaklinga sem vilji sækja rétt sinn vegna ólögmæts sam- ráðs olíufélag- anna. Hann segir að þetta sé í fyrsta skipti sem einstakl- ingi eru dæmd- ar skaðabætur vegna samráðs- ins. Steinar, sem vinnur á Lög- fræðistofu Reykjavíkur, segir að hátt í 150 manns hafi leitað til skrifstofunnar með það fyrir augum að stefna olíufélögunum. „Þetta mál var prófmál. Þessir einstaklingar voru að bíða eftir því að niðurstöða fengist í þessu máli. Nú getum við gert ráð fyrir því að fleiri þeirra stefni olíu- félögunum,“ segir Steinar. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna sem staðið hafa á bak við Sigurð í málaferlun- um, segir að niðurstaða dómsins sé mikið fagnaðarefni fyrir neytend- ur. Hann segir að ef dómurinn verði staðfestur í Hæstarétti sé ljóst að margir einstaklingar muni höfða mál gegn olíufélögunum. Sigurður R. Arnalds, hæsta- réttarlögmaður og kennari við lagadeildina á Bifröst, segir að einstaklingi hafi ekki áður verið dæmdar skaðabætur vegna sam- ráðs fyrirtækja á markaði og þess vegna kunni dómurinn að skapa fordæmi í sambærilegum málum. Tímamótadómur fyrir neytendur Sigurði Hreinssyni voru dæmdar bætur vegna ólögmæts verðsamráðs olíufélag- anna. Lögmaður segir dóminn hafa fordæmisgildi. Ker mun áfrýja dómnum. For- maður Neytendasamtakanna segir marga munu höfða mál gegn olíufélögunum. Ítalskur rannsóknardóm- ari fyrirskipaði í gær réttarhöld yfir 26 Bandaríkjamönnum og fimm Ítölum vegna meints mann- ráns á egypskum klerki sem var í haldi í fjögur ár og segist hafa sætt pyntingum. Er þetta í fyrsta sinn sem óformleg framsalsáætl- un bandarísku leyniþjónustunnar CIA er tekin fyrir í sakadómi. Saksóknarar telja að fimm ítalskir leyniþjónustumenn hafi starfað með Bandaríkjamönnun- um við að nema á brott grunaðan hryðjuverkamann, Osama Moustafa Hassan Nasr, árið 2003. Staðfest þykir að allir Bandaríkja- mennirnir hafi verið útsendarar CIA utan einn sem var yfirmaður í bandaríska flughernum. Stjórn- endur CIA neita að tjá sig um málið. Saksóknarar þrýsta á ítölsk stjórnvöld að óska eftir framsali Bandaríkjamannanna. En jafnvel þó að ítölsk stjórnvöld verði við þeirri kröfu, sem myndi koma sambandi ríkjanna í uppnám, er mjög ósennilegt að bandarísk stjórnvöld myndu framselja útsendarana til að réttað yrði yfir þeim erlendri grundu. Hægt er að rétta yfir sakborningum í fjarveru þeirra samkvæmt ítölskum lögum. Réttarhöldin eiga að hefjast 8. júní næstkomandi, en þeim kann að verða frestað af ítalska stjórn- lagadómstólnum sem stjórnvöld hafa beðið um að úrskurða hvort að saksóknarar hafi farið út fyrir sitt valdsvið þegar þeir fyrirskip- uðu hleranir á símtölum ítalskra leyniþjónustumanna. CIA fyrir rétti vegna mannráns Hæstiréttur hefur dæmt unga konu, sem hafði milligöngu um stórfellt smygl á kókaíni til landsins, til að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hennar er til meðferðar þar. Konan var dæmd í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur 17. janúar fyrir þátttöku í innflutningi á nærri tveimur kílóum af kókaíni. Hún áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar og kærði jafnframt gæsluvarð- haldsúrskurð Héraðsdóms. Dómurinn telur að almannahags- munir krefjist þess að hún verði í gæslu til 26. apríl, verði dómur í máli hennar ekki genginn fyrir þann tíma. Kókaínkona áfram í gæslu Hópur stjórn- málamanna frá tuttugu löndum skrifaði á fimmtudag undir ályktun í Washington þar sem kallað er eftir nýju samkomulagi um að setja hömlur á útblástur gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2009 til að taka við af Kyoto- bókuninni sem rennur út árið 2012. Stjórnmálamenn, sem sátu fundinn, sögðust greina pólitískan viðsnúning Bandaríkjamanna á fundinum gagnvart auknu samstarfi við önnur lönd við að berjast gegn hlýnun jarðar. Í ályktuninni er G8-hópurinn, samtök átta mestu iðnvelda heims, hvattur til að gangast undir skuldbindingar gagnvart árinu 2009 á næsta fundi sínum. Viðsnúningur Bandaríkjanna Yfirmaður kjarnorku- eftirlitsstofnunar Svíþjóðar sagði í gær að hann hefði ákveðið að fara þess á leit við Alþjóðakjarnorku- málastofnunina að hún sendi eftirlitsmenn til að gera úttekt á öryggismálum sænskra kjarnorku- vera, í því skyni að endurreisa traust á þeim eftir röð truflana á rekstri nokkurra kjarnorkuvera í landinu. Áður var tilkynnt að slökkt hefði verið á einum af fjórum kjarnaofnum Ringhals-kjarnorku- versins eftir að smávægilegur vatnsleki uppgötvaðist. Tæknileg- ir örðugleikar hafa komið upp í fleiri verum síðustu mánuði, ekki síst í Forsmark-verinu. Leitað eftir aðstoð IAEA Tveir strákar og tvær stelpur, sem eru um og innan við tvítugt, brutust inn í söluskálann Landvegamót, við gatnamót Suðurlandsvegar og Landvegar, á milli klukkan tvö og þrjú aðfaranótt föstudagsins. Ungmennin brutu rúðu á skálanum og fór þjófavarnarkerfi hans af stað. Þau stálu ýmsum varningi úr söluskálanum, aðallega sígarettum. Einn lögreglubíll frá Hvolsvelli og tveir frá Selfossi fóru á vettvang. Fólkið var handtekið á Selfossi og gisti fangageymslur lögregl- unnar. Þau voru yfirheyrð í gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi hafa ungmennin, sem eru fíkniefnaneytendur, komið við sögu lögreglunnar áður. Annars var rólegt hjá lögregl- unn á Selfossi í gær. Fernt braust inn og stal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.