Fréttablaðið - 25.04.2007, Síða 12
Markmið sjóðsins er að styðja við bakið á
menningar- og listalífi, auk þess að hlúa að
mannréttinda- og líknarmálum.
Það verður m.a. gert með framlögum til stofn-
ana, samtaka og félaga á Íslandi, sem hafa
framangreind málefni sem aðaltilgang sinn.
Formaður stjórnar sjóðsins er Jóhannes Jónsson en aðrir stjórnarmenn eru
Hreinn Loftsson og Ingibjörg S. Pálmadóttir.
Ritari stjórnar sjóðsins er Soffía Lárusdóttir.
Áhugasamir aðilar sem uppfylla ofangreind skilyrði eru
hvattir til að senda inn umsókn. Lengd umsóknar skal
takmarkast við eina vélritaða síðu (A4).
Umsóknarey›ublö› má finna á heimasí›u Baugs Group hf.,
www.baugurgroup.com.
Umsóknum skal skila› fyrir 11.maí á
styrktarsjodur@baugurgroup.com
Einnig má skila umsóknum til:
Styrktarsjóðs Baugs Group hf.,
Túngötu 6, 101 Reykjavík
Úthlutun fer fram í júní.
STYRKTARSJÓÐUR BAUGS GROUP HF.
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI ÚR SJÓÐNUM.
hz
et
a
eh
f
Fjórða úthlutun
Einu sinni í mánuði
flytur Evrópuþingið sig í heilu lagi
frá Brussel til Strassborgar þar
sem þing er haldið í fjóra daga.
Viku síðar er svo allt báknið flutt
aftur til baka til Brussel.
Þrjú þúsund manns, bæði þing-
menn, aðstoðarmenn þeirra,
fréttamenn og fulltrúar hags-
munaaðila, leggja á sig 450 kíló-
metra langt ferðalag, ýmist
akandi, fljúgandi eða í járnbraut-
arlestum, og leggja undir sig öll
hótelherbergi í þessari fögru 270
þúsund manna borg í sveitasæl-
unni austast í Frakklandi.
Sex vöruflutningabifreiðar eru
jafnframt sendar af stað með fjög-
ur þúsund málmkassa fulla af
þingskjölum þessa sömu leið, því
ekki geta þingmennirnir og fylgi-
fiskar þeirra unnið verk sín án
pappírsflóðsins. Fleiri flutninga-
bifreiðar koma síðan frá Lúxem-
borg þar sem aðalskrifstofa Evr-
ópuþingsins er staðsett.
Þessir mánaðarlegu flutningar
hafa verið harðlega gagnrýndir úr
öllum áttum. Kostnaðurinn þykir
óheyrilega mikill og óhagræðið
enn meira, auk þess sem farar-
tækin spúa verulegu magni gróð-
urhúsalofttegunda út í andrúms-
loftið. Jafnvel eindregnustu
málsvarar Evrópusambandsins
tala um þetta sem „ferðasirkus“
og andstæðingar Evrópusam-
bandsins nota tækifærið óspart til
að skjóta föstum skotum á óvin-
inn.
„Fyrr eða síðar verður að gera
eitthvað í sambandi við þessi
ferðalög,“ segir Guillaume Dur-
and, sérfræðingur hjá hugmynda-
veitunni European Policy Center í
Brussel. „Þetta er dýrt og dregur
til langs tíma litið úr trúverðug-
leika þingsins.“
Ástæðan fyrir þessu fyrirkomu-
lagi er sú að Frakkar krefjast þess
að ein af stofnunum Evrópusam-
bandsins sé staðsett í Frakklandi,
og fengu því framgengt að ákvæði
um það eru í stofnsáttmálum
Evrópusambandsins. Þessu verð-
ur því ekki breytt nema með
nýjum stofnsáttmála, og í samn-
ingum um það hafa Frakkar eins
og önnur aðildarríki neitunarvald.
Meira en milljón manns hefur
undirritað áskorun um að þingið
verði til húsa á einum stað í stað
þriggja eins og nú er. Sú áskorun
hefur engin viðbrögð fengið, þrátt
fyrir að margir þingmenn vilji
ólmir breyta þessu fyrirkomu-
lagi.
„Umræðum um staðsetningu
þingsins er sífellt sópað undir
teppið,“ segir Monica Frassini,
ítalskur þingmaður og annar
tveggja leiðtoga Græningja á
Evrópuþinginu.
Ferðasirkus
ESB rándýr
Mánaðarleg ferðalög þingmanna Evrópusambands-
ins og fylgdarliðs þeirra milli Brussel og Strassborg-
ar hafa lengi sætt gagnrýni. Takmarkaður vilji er þó
fyrir því að hafa þinghaldið á einum stað.
Fyrr eða síðar verður að
gera eitthvað í sambandi
við þessi ferðalög.
Rússar hóta því að
beita neitunarvaldi í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna gegn áætlun
um að Kosovo-hérað, sem
tilheyrir Serbíu, fái sjálfstjórn
undir eftirliti að því er fram kom
í rússneskum dagblöðum í gær.
Haft var eftir aðstoðarutanrík-
isráðherra Rússlands, Vladimir
Titov, að áætlunin færi ekki í
gegnum ráðið án stuðnings bæði
Kosovo og Serbíu. Titov sagðist
trúa því að með því að hóta
beitingu neitunarvalds hvetti það
báðar hliðar til að komast að
ásættanlegri niðurstöðu.
Búist er við því að kosið verði
um áætlunina í maí eða júní.