Tíminn - 02.07.1983, Side 4
4
LAUGARDAGUR 2.JÚLÍ 1983
Gæstelærer til Snoghej
nordisk Folkehojskole
Snoghoj Folkehojskole soger en gæstelærer i perioden
1/11 '83 til 1/5 ’84.
Vi arbejder meget med nordiske emner inden for kunst,
litteratur, historie og mytologi. Desuden indtager de
samfundsorienterede og de musisk-kreative fag en
fremtrædende plads í skolens hverdag. Vi haromkring
75 elever, heriblandt 10-15 fra de ovrige nordiske lande.
Vi vil bede ansogeren selv komme med forslag til
undervisningsomráder.
Lon mellem 80.000-90.000 dkr. Lille lejlighed findes pá
skolen.
Ansogningsfrist 15. august.
Skoleplan og stillingsbeskrivelse sendes ved henvend-
else til: Snoghoj nordisk Folkehojskole. 7000 Frederic-
ia. tlf. 05 942799. ForstanderJens Rahbek Pedersen.
Reiknistofa
bankanna
óskar aö ráöa fólk til starfa í vinnsludeild reikni-
stofunnar.
Störf þessi eru unnin á þrískiptum vöktum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍB og bank-
anna.
Æskilegt er, aö umsækjendur hafi verslunar-
próf, stúdentspróf eða sambærilega menntun og
séu á aldrinum 18-35 ára.
Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu bank-
anna, Digranesvegi 5, Kópavogi, fyrir 13. júli n.k.
á eyðublöðum, sem þar fást.
Orðsending
Til félagsmanna BSF Skjól (Byggingarsamvinnufélagið Skjól Reykja-
vík)
Þeir félagsmenn sem hug hafa á íbúðarbyggingum á þessu og næsta
ári hvort heldur er í sambýli eða sérbýli hafi samband við skrifstofu
félagsins að Neðstaleiti 5-13 sími 85562 eða sendi bréflega umsókn
meö upplýsingum um séróskir sínar þar að lútandi fyrir 10. júlí 1983.
Ath. félagið er opið öllum sem áhuga hafa.
Nýir félagsmenn velkomnir.
Stjórn BSF Skjól
Fóstrur
Hér meö eru auglýst til umsóknar eftirtalin störf viö
dagvistunarstofnanir á Akranesi:
1. Hálft starf forstöðukonu við leikskóla við
Skarðsbraut sem er laust frá og með 15. sept.
Umsóknarfrestur er til 12. ágúst.
2. Hálf staða fóstru við dagheimili sem er laus frá
15. ágúst n.k.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí.
Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf sendist undirrituðum sem gefur nánari
upplýsingar um störfin í síma 93-1211. Umsókn-
areyðublöð má fá á bæjarskrifstofunni.
Félagsmálastjóri
Kirkjubraut 28, Akranesi.
Starf yfir-
fiskmafsmanns
á Snæfellsnesi
Starf yfirfiskmatsmanns hjá Framleiðslueftirliti sjávar-
afurða, með búsetu á Snæfellsnesi, er laust til umsókn-
ar.
Reynsla af framleiðslu og meðferð sjávarafurða svo og
matsréttindi í sem flestum greinum fiskmats æskileg.
Umsóknir sendist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 15. júlí
n.k.
Sjávarútvegsráðuneytið
30. júní1983
fréttir
IMKL HftTlÐA HÖU) í
EYJUM UM HELGMA
■ Mikil hátíðahöld verða í Vest-
mannaeyjum helgina 2. og 3. júlí n.k.
í tilefni þess að þá eru 10 ár frá því að
eidgosi lauk í Heimaey.
Mikil Ijósmyndasýning verður sett
upp og eru það myndir úr Ijósmynda-
safni Magnúsar Ólafssonar sem sýndar
verða, og er þar um að ræða myndir
frá Vestmannaeyjum frá ýmsum
tímum. Þá verður samsýning í Akoges-
húsinu þar sem 8 starfandi listmálarar
sýna. Samhliða þeirri sýningu sýnir
Sigmund um 4000 teikningar sínar sem
hann hefur teiknað á undanförnum
árum og landsmönnum eru kunnar úr
Morgunblaðinu. Þá verður efnt til
happdrættis og mun allur ágóði af því
renna til Sól- og Blómaskálans.
I félagsheimilinu verða kvikmynda-
sýningar báða dagana frá kl. 2.-6, og
verða þar m.a. sýndar myndir frá
gosinu 1973 og frá vatnslögninni til
Eyja auk fleiri innlendra mynda.
Margrét Hermannsdóttir fornleifa-
fræðingur mun setja upp Ijósmynda-
og teiknisýningu á fornleifamunum
þeim sem fundist hafa í Herjólfsdal á
undanförnum árum. Þá mun Guðmund-
ur Sigfússon ljósmyndari í Vestmanna-
eyjum setja upp sýningu á litmyndum
frá ýmsum tímum gossins.
Á laugardag verður svo knatt-
spyrnuleikur milli drengjalandsliðsins
og annars flokks ÍBV.
Á sunnudagsmorguninn verður svo
hátíðar og þakkarguðsþjónusta í
Landakirkju og mun biskupinn yfir
íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson,
predika þar. Þá munu forseti íslands
frú Vigdís Finnbogadóttir og forsætis-
ráðherra, Steingrímur Hermannsson
heiðra Vestmanneyinga með nærveru
sinni.
Síðar um daginn verður sýnt bjargsig
og einnig verður sprangað í Heima-
kletti. Þá mun Herjólfur fara hringferð
um eyjarnar og er hátíðargestum gef-
inn kostur á að sigla með skipinu frítt
í þeirri ferð, en um þessar mundir vill
svo til að Herjólfur er 7 ára.
Það eru íþróttafélögin í Vestmanna-
eyjum sem hafa veg og vanda að
hátíðahöldum þessum. Aðsögn bæjar-
stjórans þar Ólafs Elíssonar, var sú
ákvörðun tekin fyrir nokkrum árum að
láta þau sjá um öll hátíðahöld sem
fram fara í bænum. Er talið að með því
verði flestir sem virkastir í því að gera
allt slíkt sem best úr garði.
- ÞB
■ Nú eru 10 ár liðin frá því að formleg yfirlýsing var gefin 1 út um að gosinu á Heimaey væri lokið.
Vinnuskólinn
hyggur á
hverffa-
skemmtanir
■ Starfsemi Vinnuskóla Reykjavíkur
1983 er með svipuðu sniði og undanfar-
in ár. í sumar voru innritaðir tæplega
1200 unglingar í skólann og starfa þeir
í 36 hópum í borginni og nágrenni
hennar.
Aðalvcrkefni Vinnuskólans er trjá-
rækt og umhirða á opnum svæðum og
við íþróttavelli, skóla og borgarstofn-
anir. Einnig starfa unglingar við aðstoð
á leik- og gæsluvöllum, í skólagörðum
ellilífeyrisþega.
Samhliða aðaltilgangi Vinnuskólans
að kenna unglingum til verka er reynt
að efna til íþrótta- og félagslegra atriða
öðru hvoru. Unglingarnir ásamt verk-
stjórum í Vinnuskólanum hafa komið
með hugmyndir og tillögur í áður-
nefnda þætti starfseminnar.
Fyrirhugað er að efna til hverfa-
skeinmtana í júlí með ýmsu sniði allt
eftir aðstöðu og áhuga í hverju hverfi
fyrir sig. Meðal atriða á hverfaskemmt-
unum má nefna úrslit í knattspyrnu- og
brennómótum, einnig fer fram poka-
boðhlaup, reiptog, limbókeppni,
eggjahlaup, starfsíþróttir o.fl. Þá verð-
ur opið hús og diskótek í félagsmið-
stöðvum og skólum.
- ÞB
Tónleikar i
Vestmannaeyjum
■ Sunnudaginn 3. júlí n.k. heldur
kór Langholtskirkju tónleika í sam-
komuhúsinu í Vestmannaeyjum og
hefjast þeir kl. 17.00. Flutt verður
NELSONS-messan eftir Hayden.
Kórinn er skipaður 43 söngvurum
en auk þess taka þátt í flutningnum
einsöngvararnir Sigurður Björnsson
óperusöngvari, Sigríður Gröndai
sópran, Anna Júlíana Sveinsdóttir alt
og Geir Jón Þórisson bariton. Undir-
leik annast félagar úr Sinfóníuhljóm-
sveitinni, samtals 21 talsins. Stjórnandi
er Guðmundur H. Guðjónsson.
Tónleikarnir eru liður í hátíðahöld-
um sem haldin eru í Vestmannaeyjum
um þessa helgi vegna þess að þá eru
liðin 10 ár frá því að eldgosi lauk í
Heimaey.
- ÞB
Templarar hvetja til
baráttu gegn vímuefnum
■ Vorþing sunnlenskra templara var
haldið 28. maí s.l.. Eitt meginviðfangs-
efni ráðstefnunnar var um áfengisbölið
og fíkniefnaneyslu og voru gerðar
nokkrar ályktanir þar um.
Stúkan lætur í Ijós ánægju yfir
skipan nefndar til að móta opinbera
stefnu í áfengismálum, og telur að hún
tryggi sjónarmið bindindismanna. At-
hygli er vakin á skýrslu landlæknisem-
bættisins um neyslu tóbaks, áfengis og
annarra fíkniefna á Islandi. Þá bendir
vorþingið á ýmislegt það sem gerst
hefur á síðustu tímum í sambandi við
vímuefni og baráttu gegn þeim. Telur
þingið að sú barátta hafi leitt í Ijós að
allar vonir um betri tíma og minna
eiturlyfjabö! eru bundnar við hugar-
farsbreytingu sem leiðir til meiri bind-
indissemi. Þetta telur þingið að ætti að
vera hvöt til að styrkja bindindishreyf-
inguna fyrst og fremst með meiri þátt-
töku almennings, en jafnframt með
opinberum fjárstuðningi.
Vorþingið beinir að síðustu þeirri
áskorun til biskupsembættisins að það
gangist fyrir að veitt verði óáfeng vín
við altarissakramenti. - ÞB