Tíminn - 02.07.1983, Page 6
LAUGARDAGUR 2 JÚLÍ1983
I Bjó við „eilífa æskuA<
fram í andlátið!
■ 60 ár eru nú liðin síðan
Gloria Swanson var á hátindi
frægðar sinnar. En hún var
sögð hafa haldið fcgurð sinni
fram í andlátið.
■ Látin er í New York ein
skærasta stjarna þöglu mynd-
anna, Gloria Swanson, 84 ára
að aldri.
Gloria komst sem ung stúlka
að við kvikmyndirnar og þcgar
um tvítugt var hún orðin óum-
dcilanlega stærsta stjarna
Hollywood. A hátindi frægðar
sinnar dró hún sig í hlé frá
kvikmyndaleik, en lét þó til
lciðast, þegar hún var orðin 51
árs gömul, að leika í cinni
kvikmyndinni enn, „Sunset
Boulevard". Þar fór hún meö
hlutverk afdankaðrar leik-
konu, sem getur ekki sætt sig
við að vera búin að vera.
Gloria þótti standa sig vel í
hlutverkinu, en ekki vildi hún
viðurkenna, að hún þekkti
sjálfa sig í persónunni, sem
hún túlkaöi á hvíta tjaldinu.
Þvert á móti heföi hún vel sætt
sig við að hætta kvikmynda-
leik, enda löngum önnum kafin
á öðrum vígstöðvum. Alls gift-
ist Gloria sex sinnum, en fræg-
asta ástarævintýri sitt átti hún
með Joseph Kennedy, ætt-
föður Kennedyanna, svo sem
fram kom í ævisögu hennar,
sem út kom fyrir nokkru.
Gloria þótti halda sér með
afbrigðum vel. Leyndardóm-
inn kvað hún þann, að fólk
skyldi aldrei gera neitt, sem
því þætti óskemmtilegt. Effólk
færi alltaf eftir sínu höfði,
hreppti það eilífa æsku!
Dauðdagi leikkonunnar var
eftir hennar höfði. Hún sofnaði
að kvöldi í rúmi sínu á sjúkra-
húsinu, en vaknaði ekki að
morgni.
HÐ MIMB HANN HUDSON
■ Gordon Jackson sem Noel Strachan lögfræðingur, sem verður
vonlaust ástfanginn í ungu stúlkunni Jean Paget sem hann varð
fjárhaldsmaður fyrir og leikin er af Helen Morse í „ A Town Called
Alice“.
úr þáttunum „Húsbændur og hjú“
■ -Ég hef bara verið að hvíla
mig og hafa það gott síðustu
þrjá mánuðina", sagði Gordon
Jackson nýlega á blaðamanna-
fundi í London.
Gordon Jackson, sem flestir
kalla reyndar Hudson, síðan
hann lék yfirþjóninn í bresku
sjónvarpsþáttunum „Upstairs,
Downstairs“ kom fram í sjón-
varpsviðtali, sem tekið var í
London, á vegum danska sjón-
varpsins. Claus Toksvig var
viðmælandi Jackson.
Þegar Jackson sagði frá sínu
þriggja mánaða fríi var hann
spurður, hvort heilsan hefði
ekki verið í lagi, en hann taldi
svo vera, en hann hefur unnið
stanslaust síðan hann varð
heimsfrægur scm Hudson, og
allt í einu hefði þetta verið
orðið of mikiö.
- Það cr nú svo, að tlestir .
leikarar eru fegnir að hafa nóg
að gera, svo ég áttaði mig ekki
■ Þarna er Gordon Jackson
kominn hress til vinnu aftur
eftir þriggja mánaða frí.
á því, að ég var að gera út af
við sjálfan mig. Það er svona
þegar maður verður loksins
frægur - á sextugsaldri, sagði
hann hlæjandi.
Hann sagði, að loks hefði
konan sín beðið sig að ræða
málin og þau hefðu komist að
þeirri niðurstöðu, að það væri
engin ástæða fyrir hann að
taka hvaða tilboði sem væri og
þeytast um allar jarðir til að
leika. (t.d. til Ástralíu í mynd-
inni „A Town Called Alice“,
sem var sýnd hér í sjón varpinu)
-Ég ákvað, sagði leikarinn, að
breyta um lífsstíl og taka nú
lífinu létt, og byrjaði með
þriggja mánaða fríi, - og ég er
eins og nýr maður.
I
viðtal dagsins
Jóhann G. Jóhannsson stendur í stórræðum:
SMÁUÓDf UTOG
USTAVERKAIEGA
■ „Þetta er fyrsta málverkasýning mín í ein þrjú ár,“ sagði Jóhann G.
Jóhannsson, tónlistarmaður og málari með meiru í viðtali við Tímann,
en það er óhætt að segja að hann standi í stórræðum þessa dagana.
Hann opnaði málverkasýningu í Gallery Lækjartorgi, laugardaginn
2. júlí og er auk þess að byrja með listaverkaleigu og sölu, sem er nýjung
hér á landi.
„Málverkasýningin saman-
stendur af 70 myndum sem ég
hef málað á síðustu þremur
árum. Þetta eruvatnslitamyndir,
eins konar fantasíur og sumar
með landslagsívafi. Éghef kosið<
að kalla þessa sýningu, Smáljóð.
í lit. Það má því segja að þetta
séu ekki stór verk í þeim skiln-
ingi. Þetta er sölusýning og verð
myndanna er svona á bilinu 3-14
þúsund krónur,“ sagði Jóhann.
Hver er hugmyndin að baki
stofnunar listaverkaleigu?
„Af fenginni reynslu á sýning-
arhaldi og sölu listaverka, er
ákveðið að stofna þessa Lista-
verkaleigu á vegum Gallery
Lækjartorgs, til að annast útleigu(
og umboðssölu listaverka og
eftirmynda. Hugmyndin er að
einstaklingar og fyrirtæki geti
tekið verk á leigu í ákveðinn
tíma gegn vægu gjaldi. Nú ef
(Tímamynd Ámi Sæberg) *
■ Jóhann G. Jóhannsson