Tíminn - 27.07.1983, Síða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Shemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91 )7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA.
ARMULA3 SIMI 81411
T»
abriel
HÖGGDEYFAR
VQJvarahlutir .iSKf1
99
CítmtTO Ritstjorn86300-Augfysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Meiningamunur” um mannaráðningar hjá Hagkaup í Njarðvfk:
MIÐVInUDAuUn 27. JULI 1983
FJOISKYLDU FRAMKVÆMDA-
SDÓRANS VAR SAGT UPP
ff
Vidkvæmt mál” segir talsmaður Hagkaups
■ „Hér er um viðkvæmt mál
að ræða og ég vil helst ekki segja
annað um þessi skrif í Víkurfrétt-
um en það að meiningarmunur
var milli okkar og fulltrúa okkar
í Njarðvíkum um vinnubrögð,“
sagði Gísli Blöndal, fulltrúi
framkvæmdastjóra Hagkaups
h.f., í samtali við Tímann.
Undir Gísla var borin klausa í
blaðinu Víkurfréttir, sem gefið
er út í Keflvík, en þar segir 21.
júlí s.l. undir fyrirsögninni „Ekk-
ert má nú“: „Pegar starfsfólk var
ráðið í Hagkaup á Fitjum, var
ráðið í um 40 stöður. Margar
þessar stöður voru ábyrgðar-
stöður og því af eðlilegum ástæð-
um var ráðið í þær fólk sem
verslunarstjórinn treysti í hví-
vetna. Meðal þess voru nokkrir
úr skylduliði hans.
Eitthvað virðist þetta hafa far-
ið í suma, því ekki hafði fyrirtæk-
ið starfað í marga daga þegar
kvörtun kom yfir þessu, með
þeim afleiðingum að hluta þessa
fólks var umsvifalaust sagt upp
störfum.
Margir hverjir telja, að það
hafi verið rétt, því ekki megi
gera svona stórmarkaði að fjöl-
skyldufyrirtækjum, en er það
rétt? Er ekki eðlilegt að ráða
fólk sem maður treystir frekar
en einhvern og einhvern, sem
maður lendir síðan í vandræðum
með? Mér er spurn.“ Undir
þetta skrifar „Suðurnesjamað-
ur.“
Gísli Blöndal var spurður
hvort orðrómur um að Pálmi
Jónsson forstjóri og aðaleigandi
Hagkaups hefði sjálfur gripið
inn í mál þetta væri á rökum
reistur. Kvað hann ekki rétt að
nefna Pálma sérstaklega í þessu
sambandi og hefði hann ekki
haft önnur afskipti af málinu en
þau sem eðlileg væru fyrir mann
í hans stöðu innan fyrirtækisins.
- GM.
HUÓMTÆKJ-
UM STOLIÐ
ÚR BÍLUM
■ Nokkur brögö hafa
orðið að því undanfarið
að brotist hafi verið inn í
bíla og stolið þaðan hljóm-
flutningstækjum og öðrum
verðmætum munum. Á
sunnudag var lögreglunni
í Reykjavík tilkynnt um
innbrot í bíl við Orrahóla
í Reykjavík og þaðan var
stolið segulbandstæki og
hátölurum. Einnig var
brotist inn í bíl við Hvassa-
leyti í fyrrinótt og stolið
þaðan 40 rása talstöð.
Ekki hefur enn tekist að
upplýsa þessa þjófnaði.
- GSH.
HEIMILT AÐ LEGGJA
HALD A BLÖD AN
DÓMSURSKURDAR
■ Hæstiréttur hefur staðfest
þann úrskurð undirréttar að hald
það sem var lagt á 2. tölublaö
Spegilsins og 1. tbl. Samvisku
þjöðarinnar, hafi verið löglegt.
Hæstiréttur kvað þennan úr-
skurð upp í gærmorgun, en lög-
■naður Spegilsins hafði kært úr-
skmö undirréttar til Hæstarétt-
ar.
Hæstaréttardómararnir
Magnús Þ. Torfason, Halldór
Þorbjörnsson og Magnús Thor-
oddscn dæmdu málið og segir í
dómnum að lögreglan hafi lagt
hald á blöð þau sem um ræðir
eftir ósk ríkissaksóknara, sem
síðan hafi höfðað opinbert mál
gegn varnaraðila, m.a. til upp-
töku á blöðunum. Samkvæmt
lögum skal leggja hald á muni
sem ætla má að verði gerðir
upptækir og er eigi gert ráð fyrir
að til þess þurfi úrskurð dómara.
Þarna er ekki gerð nein undan-
tekning um prentað mál. Þannig
var ákæruvaldinu heimilt að
leggja hald á blöðin án undan-
gengins dómsúrskurðar en varn-
araðili átti þess síðan kost að
bera ákvörðunina undir saka-
dóm og kæra úrskurð hans til
Hæstaréttar.
Þar sem mál til upptöku blað-
anna hefur verið höfðað, og þar
leyst úr því hvort sú krafa verður
tekin til greina eru því ekki efni
til þess að hnekkja ákvörðun
ákæruvaldsins um hald á blöðun-
um.
Einn dómarinn, Magnús Þ.
Torfason, skilaði sératkvæði.
Þar segir að samkvæmt 72. grein
stjórnarskrár á hver maður rétt
á að láta hugsanir sínar á prent,
en þó verður hann að ábyrgjast
þær fyrir dómi. Hin síðast-
greindu orð ber að skýra svo
rúmt að lögregluyfirvöld skuli
leita úrskurðar dómara áður en
þau leggja hald á útgefið rit, ef
efni þess er talið slíkt, að það>
beri að gera upptækt með dómi.
Þessa hafi ekki verið gætt er hald
var lagt á Spegilinn. Hins vegar
verður ekki talið loku fyrir það
skotið að ákæra saksóknara og
krafa um að ritið verði gert
upptækt, vcrði tekin til greina,
þegar efni blaðanna er virt. Því
er ekki talin ástæða til að fella
niður hald það sem lagt var á
ritin, og það því fremur að ekki
verður séð að varnaraðili hafi
hreyft neinum athugasemdum
þegar lögregla lagði hald á þau
eintök blaðsins sem hann hafði í
sínum fórum. Með þessum fors-
endum er dómarinn samþykkur
atkvæði meiri hluta dómenda.
- GSH.
Motorsvifdrekinn, sem notaður verður í ferðalaginu niður Jökulsá á Fjöllum.
OFURHUGAR SÝNA f NAUTHÓLSVÍKINNI
■ Enginn hefur, svo vitað sé að
minnsta kosti, farið á báti eftir
Jökulsá á Fjöllum, frá upptökun-
um í Dyngjujökli til ósanna í
Öxarfirði, niður Dettifoss meðal
annars. Hér á landi eru nú
staddir níu franskir og breskir
ofurhugar, sem hyggjast, ásamt
tveimur íslendingum, takast
slíka ferð á hendur.
Ofurhugarnir eru nú staddir í
Reykjavík og ef veður leyfir
munu þeir halda sýningu á út-
búnaði sínum í Nauthólsvík
klukkan 18:00 í dag. Gefst fólki
kostur á að sjá þá fljúga svif-
dreka, sem knúinn er litlum
mótor, og hægt er að koma undir
skíðum, flothylkjum og hjóla
búnaði þannig að mögulegt er a<
lenda við allar mögulegar að
stæður, jafnt á sjó og landi
einnig munu þeir sýna róður ;
kanóum og sitthvað fleira.
- Sjó.
dropar
Ung fólk
og öfugt
■ Þessi er tekinn úr Degi á
Akureyri: „Fyrir ekki löngu
síðan gaf Samband ungra fram-
sóknarmanna út lítinn pésa þar
sem auglýst er rækilega ferð
verðandi stórpólitíkusa ís-
lenskra með Ms. EDDU. í
pésanum er að sjálfsögðu að
finna allar upplýsingar um
fyrirhugaða ferð. Og þar sem
þessi pési heitir Fréttabréf
SUF, er dálítill áróður fyrir
flokknum látinn fylgja með
svona í lokin: „Með öðrum
orðum, þá erum við sannfærð
um að Framsóknarflokkurinn
eigi erindi við ungt fólk - og
öfugt“.“
Um Dropaglös
■ Það er greinilegt að Dropa-
teljurum verður misdægurt
eins og öðrum, og kannski um
of trúgjarnir á stundum, eins
og meðfylgjandi athugasemd
ber með sér, en hún er frá
Elíasi V. Einarssyni. Ekki er
venja að birta athugasemdir í
þessum dálkum, en þar sem
hún er rituð í Dropa-„stíl“
verður í þetta sinn gerð undan-
tekning frá þeirri reglu:
„Litlir pottar hafa stór eyru
og stór eyru nema vitleysu um
óravíddir, vilji þau heyra hana.
I dropadálki í dag, 26. júlí,
hafði dálkaritari heyrt að
skjögurfættur embættismaður
hefði misstigið sig varðandi
cndurnýjun á glasaeign ráð-
stefnusala ríkisins að Borgar-
túni 6. Sagði í dálknum að ríkið
hefði flutt inn tæplega 400 glös
af besta tagi, en embættismað-
ur nokkur gleymt að leysa þau
úr tolli, glösin lent á uppboði
'■£SM££&?“
■■ - . . •5»'
og ríkissjóður mátt leysa þau
til sín frá kaupmanni í Hafnar-
flrði gegn okurprís.
Dropar þessir falla úr
„lausu“ lofti. í fyrsta lagi eru
öll glerglös Borgartúns 6,
keypt í versíunum í Reykjavík
einnota plastglös, nýtt í ríkum
mæli - reyndar með nokkrum
ónotadropum á þá gesti er um
þau halda fast. Dýru glösin 400
hafa ekki sést hér og því aldrei
komið dropi í þau.“
og teljast undantekningarlaust
til ódýrra Hamborgarglasa. í
öðru lagi hefur fjármálaráöu-
neytið skipað svo fyrir að öllum
launaútgjöldum skuli stillt í
hóf svo og kostnaði við endur-
nýjun búnaðar. Því eru ódýr,
Krummi
...sér að margir hafa orðið
kóngar á einni nóttu...!