Tíminn - 27.05.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 27.05.1987, Blaðsíða 5
Miövikudagur 27. maí 1987 Tíminn 5 Skreiðarmál í brennidepli Hágsmunanefnd skreiðarfram- hann þennan fund síðustu tilraun leiðenda efndi til fundar í gær- kvöldi í kjölfar fundahalda Skreið- arsamlagsins og fundar Skreiðar- deildar Sambandsins. Var það gert til þess að ná saman á einn fund öllum skreiðarframleiðendum og hagsmunaaðilum, sem margir hverjir komu utan af landi. Tilgangur fundarins var þríþætt- ur. í fyrsta lagi að gera grein fyrir stöðu framleiðenda, í öðru lagi gera grein fyrir fjármálastöðu í Nígeríu frá árinu 1981 og í þriðja lagi til þess að núverandi stjórn gæti sagt af sér og ný tekið við. Þegar Tíminn fór í prentun í gærkvöldi lá fyrir fundinum hug- mynd að ályktun frá Ólafi Björn- ssyni stjórnarformanni Skreiðar- samlagsins. Hún varsvo hljóðandi: „Almennur fundur framleiðenda á skreið á íslandi, haldinn að Hótel Sögu 26. maí 1987 samþykkir að stofna samtök um sölu á allri skreið og þurrkuðum hausum sem framleidd eru í iandinu. Jafnframt samþykkir fundurinn að kjósa sjö manna nefnd til þess að semja stofnskrá og lög fyrir væntanleg samtök. Framhaldsstofnfundur verði haldinn svo skjótt sem við verður komið.“ Miklar umræður spunnust um tillögu Ólafs og var því ekki búið að greiða atkvæði þegar Tíminn fór í prentun. ðlafur ræddi almennt um skreið- arviðskipti og sagði aðalvanda framleiðenda vera sundrungu og að skreiðarmálin væru rekin þann- ig í dag að þau væru öllum til skaða og skammar. Veittist Ólafur að Skreiðardeild Sambandsins og sagði ástæðu fyrir velgengni þeirra í Nígeríu vera undirboð. Tómas Þorvaldsson á sæti í stjórn hagsmunanefndar, sagði til að koma skreiðarframleiðend- um í ein samtök. “Mistakist það, fer allt í sama farið aftur," sagði Tómas. Jakob Sigurðsson frá Sameinuð- um framleiðendum sagði tillögu Ólafs fáránlega. „Örðugleikarnir í Nígeríu eru vegna efnahagserfið- leika þar, ekki vegna skipulags- erfiðleika hér heima. Ég er ekki hissa á því að tillagan komi fram núna, því nú liggjum við vel við höggi,“ sagði Jakob Björgvin Jónsson formaður hagsmunanefndar gerði grein fyrir fjármálastöðunni í Nígeríu. Sagði hann útistandandi skreiðarskuldir vera alls 4,5 milljónir dollara. Björgvin rakti ítarlega hvernig þessar skuldir hefðu komið til og benti jafnframt á að mikill hluti gamalla skulda væri glataður vegna gengisbreytinga í Nígeríu á síðast- liðnum árum. Björgvin vandaði ekki kveðjurnar til viðskiptaaðila í Nígeríu og sagðist ekki gera grein- armun á þeim og bandarísku mafí- unni. Þáttur stjórnvalda var lítið rædd- ur á fundinum en þó vitnuðu menn til tilrauna Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra, sem hefðu ekki borið fullnægjandi árangur, þar sem báknið hefði reynst of þungt í vöfum. Þegar leið á fundinn urðu um- ræður heitari og æ þyngri orð féllu. Sumir ræðumanna gerðust per- sónulegir í málflutningi sínum, og verður það rakið síðar. Sökum þess hve heitar umræður urðu, dróst fundurinn á langinn og Tím- inn gat ekki beðið niðurstöðu. Verður nánar greint frá niðurstöð- um fundarins á morgun. - SÓL/ES Frá fundi skreiðardeildar SAFF á Hótel Sögu í gærmorgun. Tímamynd Pjetur Andvígir nýjum heildarsamtökum Á síðasta ári voru seldir 33.000 pakkar af skreið og rétt um 100.000 pakkar af hausum til Nígeríu og er þetta sala fyrir um 11 milljónir dollara. Af þessu er 95% greitt og aðeins á eftir að fá greiðslu fyrir sölu sem fór fram seint á síðasta ári. Þetta kom m.a. fram á aðalfundi skreiðardeildar SAFF sem haldin var í gærmorgun. Á þessum fundi voru aðal málin tvö. Annars vegar sölumál í Níger- íu og hins vegar tillaga sem leggja átti fram á aðalfundi Skreiðarsam- lagsins seinna um daginn. Eins og áður hefur komið fram er ástandið gott hjá SAFF í Nígeríu og hefðu greiðslur jafnvel borist fyrr en þær hafa gert, ef útgáfa skoðunarvottorðs frá Veritas í Kaupmannahöfn hefðu komið fyrr, en ekki er hægt að innleysa ábyrgð nema vottorðið fylgi öðrum skjölum. Einnig kom fram að heildsölu- Aðalfundur Skreiðarsamlagsins var haldinn í gær ásamt mörgum öðrum fundum um skreiðarviðskiptin. Stefán Runólfsson fundarstjóri er hér í ræðustól. Honum á vinstri hönd situr Ólafur Björnsson endurkjörinn stjórnarformaður Skreiðarsamlagsins. Hannes Hall framkvæmdastjóri til hægri. Tímamynd Pjetur Aðalfundur Skreiðarsamlagsins: SIF yfirtaki starfsemina Á aðalfundi Samlags skreiðar- framleiðenda sem haldinn var í gær var samþykkt tillaga stjórnar sem felur í sér að starfsemi félags- ins verði lögð niður í núverandi mynd og samið verði við Sölusam- band íslenskra fiskframleiðenda (SÍF) um að það yfirtaki starfsemi Samíagsins að svo miklu leyti sem hagkvæmt er að halda þessari starf- semi áfram miðað við ríkjandi aðstæður í skreiðarmálum. Þessi tillaga felur það jafnframt í sér að þá og því aðeins skuli leitað eftir þessari yfirtöku SÍF á starfsemi Samlagsins að ekki takist að koma allri skreiðarsölu í landinu á eina hendi. Sá valkostur er hins vegar ólíklegur miðað við þá afstöðu sem fram kom á aðalfund Skreiðar- deildar Sambandsins, að þeir vilji ekki slíka sameiningu. Sambandið hefur um 25% af skreiðarútflutn- ingnum á sinni könnu (sbr. frétt á þessari síðu). Þetta er hins vegar annað árið í röð sem Skreiðarsamlagið ályktar um nauðsyn þess að koma skreið- arsölumálum á eina hendi. í umræðum á aðalfundinum kom það m.a. fram hjá stjórnarfor- manni Samlagsins, Ólafi Björns- syni, að þegar hafa einhverjar viðræður farið fram við SÍF um hugsanlega yfirtöku á starfsemi Skreiðarsamlagsins, en nauðsyn- legt væri að eining væri um slíkt meðal aðildarfélaga SÍF til að þessi hugmynd gæti orðið að veruleika. Þá kom það einnig fram á fundin- um að ógerlegt myndi reynast að leggja Skreiðarsamlagið alveg nið- ur við svo búið, þar sem það ætti gífurlegar skuldir útistandandi. Töldu menn að það gæti tekið nokkurn tíma áður en unnt yrði að slíta félaginu, jafnvel nokkur ár. Var rætt um að í millitíðinni hefði Skreiðarsamlagið einn starfsmann sem féngi skrifstofuaðstöðu hjá SÍF. Útistandandi skuldir Skreiðar- samlagsins eru nú mestar í Nígeríu, en í skýrslu Hannesar Hall fram- kvæmdastjóra kom fram að heild- arskuldir sem útistandandi eru á tímabilinu frá 1983-1986 nema um450 milljónum íslenskra króna. Hluti þessarar upphæðar hefur þó verið greiddur í nairum sem ekki hefur fengist skipt í annan gjaldeyri. Á aðalfundinum í gær var jafn- framt samþykkt tillaga frá Finn- boga Jónssyni þess efnis að fram fari „ítarleg endurskoðun" á úti- standandi skuldum og eignum Skreiðarsamlagsins. Stjórn sam- lagsins í samvinnu við viðskipta- banka og viðskiptaráðuneyti var falið að ráða til þess bæra aðila að annast þetta verkefni. Stefna á að því að ljúka þessari endurskoðun fyrir næstu áramót. Stjórn Samlags skreiðarfram- leiðenda var á aðalfundinum öll endurkjörin, sem og varastjórn og endurskoðendur. Stórnarformað- ur er því áfram Ólafur Björnsson en aðrir í stjórn eru Aðalsteinn Jónsson, Eiríkur Tómasson, Gísli Konráðsson, Ólafur B. Ólafsson, Rögnvaldur Ólafsson, Stefán Run- ólfsson, og Svavar Svavarsson.BG verð á skreið hefur verið frá 850 - 1050 nairum, sem er nígeríski gjaldmiðillinn og lækkar gengið enn og er nú orðið 4,25 og í 4,50 nairur fyrir dollarann, en þyrfti að vera 3 - 3,5 naira til að geta gefið svigrúm til hækkana. Neysla í Nígeríu er þetta 15 - 18.000 pakkar á mánuði, en talið er að ef heildsöluverðið hækki um 10 - 20% þá myndi neysla stórlega minnka, allt niður í 6 - 8.000 pakka á mánuði. Norðmenn bíða með um 160.000 pakka og reyna að þvinga fram hærra verð og íslendingar eiga um 60.000 óselda pakka. Þannig eru tæplega tveggja ára birgðir til og má lítið út af bera til að bágur efnahagur Nígeríumanna geri skreiðarsölu mjög erfiða. Hitt meginmálið á þessum aðal- fundi var sameining allra skreiðar- útflytjenda í ein samtök. Kom fram á fundinum að skreiðardeild SAFF var fylgjandi hugmyndinni fyrir nokkrum árum, þó með því meginskilyrði að öll skreiðarsala í landinu félli undir þetta félag og jafnframt að þessi starfsemi félli undir SÍF, bæði til að nýta markað- sreynslu þeirra og til að halda niðri kostnaði. Þessu var ekki hægt að framfylgja þar sem Sameinaðir skreiðárframleiðendur og fslenska umboðssalan settu sig alfarið á móti því og sögðust aldrei mundu taka þátt í því. Kom fram í máli fundarmanna að þeir hefðu áhyggjur af óupp- gerðum hlutum og óleystum vandamálum sem hin sölusamtökin væru með og sögðu vandséð hvern- ig fara ætti að því að stofna félag sem myndi yfirtaka skreiðarsölu án þess að þessi málefni kæmu þar inn í. Það væri því ljóst að þetta væru mál þeirra sem til þeirra hafa stofnað. Lýstu fundarmenn því yfir að mjög ólíklegt væri að þessi hugmynd næði fram að ganga á fundinum um kvöldið og sögðu m.a. að vegna ofangreindra mála, og þeirra eigin farsælu sölustefnu, þá sæju þeir enga ástæðu til að velta fyrir sér þeirri hugmynd að vera með í stofnun heildarsölusamtaka. - SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.