Tíminn - 07.05.1988, Side 15
HELGIN
15
Laugardagur 7. maí 1988.
r—----------------------
Eg verð að byrja þessa
síðu á því að skýra sam-
viskusamlega frá áliti því
sem ég hef um árabil haft á
Mercedes-jeppanum. Er
það að hluta til sprottið af
trausti því sem ég ber til
Benz-Unimog og að hluta
til trúnni á vestur-þýsk
tæknigæði. Er skemmst frá
því að segja að reynsluakst-
ur þessi varð til að auka
verulega álit mitt á þessum
Mercedes-G bOum sem
Ræsir flytur til landsins.
Öflugur torfærubíll
Reynsluaksturinn varð nokkru
ýtarlegri en ráð var fyrir gert í
upphafi. Á daginn kom að vega-
slóðar þeir sem Tíminn ekur að
jafnaði, til að kanna kosti jeppa-
bifreiða, voru með blautasta móti.
Þá urðu holklaki og jarðís einnig
til þess að þyngja róðurinn. Mæli
ég með því að menn fari ekki mikið
út á moldarvegi nú í vorleysingum,
veganna vegna, en þegar upp er
staðið eftir þennan akstur verður á
hinn bóginn nægt að fullyrða meira
um getu jeppans. Til að tryggja
öryggi á fáförnum vegum, var hóað
í einn af velunnurum Tímans,
Matthías Örlygsson, og hann feng-
inn með á Bronco-jeppanum sín-
um í erfiðustu brautina. Niðurstað-
an er sú að Mercedes-G er mun
öflugri torfærubíll en ég hafði talið.
f stórum dráttum má segja að hann
gat nær endalaust krafsað sig áfram
og rifið sig úr festum, jafnvel þótt
ekki væri gott grip nema undir einu
hjóli. Þægilegar 100% gírlæsingar
á fram- og afturdrifum ráða þar
verulega úrslitum þegar annað hef-
ur verið nýtt til hins ýtrasta. Þetta
„annað“ er reyndar með öflugasta
. móti, einsog vikið verður aðsíðar.
Kemst af með
125 DIN/hestöfl
Benzinn, sem notaður var í slóð-
irnar, var af gerðinni 230 GE. 230
stendur fyrir 2,3 lítra vél, G er
samheiti fyrir jeppana og E þýðir
að vélin er bensínvél. Stærsta vélin
í Benz-G er 280, eða 2,8 lítra og
sex cylindra, sem skilar 150 hestöfl-
um á DIN kvarða. Dieselvélarnar
eru tvær. Sú minni er 4 cylindra og
2,4 lítra, en sú stærri er fimm
cylindra, 3ja lítra, er skilar tæpum
90 DIN hestöflum.
Hátt vogarafl
Að grunni til er um sömu vél að
ræða og í öðrum 230 Benz-bílum.
Jeppavélin hefur þó þann eigin-
leika að skila hærri hestaflatölu við
hæsta snúning og um leið að skila
besta vogarafli (toque) á skemmra
snúningshraðasviði miðað við
eyðslu. Hámarks „torque“ er 192
Nm miðað við 2400 snúninga á
mínútu og hestöflin ná því að vera
125 DIN hestöfl við 5000 snúninga.
Þar sem vélin er auk þess slaglöng
að uppruna, er hún með því allra
seigasta sem tíðkast orðið í jeppa-
heiminum. Þá er hún mjög spar-
neytin og kemst niður í 17,1 líter á
hundraðið í blönduðum akstri.
Svona jafnframt vélatalinu má
geta þess að innan fárra ára verður
farið að bjóða þessa bíla með
nýjustu Benzvélunum, en það eru
ögn léttari vélar og af lítið eitt
öðrum stærðum. Verður það um
svipað leyti og nokkrar minniháttar
útlitsbreytingar verða gerðar.
Millikassi og læsingar
Næst er að geta gírkassa og
drifa. Ennþá er millikassinn þannig
gerður að hann er annað hvort
læstur í afturhjóladrifi eða fjór-
hjóladrifi. Samkvæmt heimildum
úr innsta Mercedeshring getur far-
ið svo að strax á næsta ári verði
farið að afgreiða þessa jeppa með
millikassa sem dreifir aflinu líkt og
Quadratrack-hugmyndin byggir á.
Þessi kassi verður að sjálfsögðu
með gírlæsingu. En eins og er
liggur ýmist 100% afl á afturhás-
ingu, eða því er deilt til jafns,
50/50, á milli beggja heilla hásing-
anna. Augljós ókostur þessara
Sem betur fer hefur þessi bOI aldrci orðið bara að stöðutákni, enda er Benz 230 GE hörkujeppi og afburða
notalegur ferðabfll. Tímamynd Gunnar
Á FJÓRUM HJÓLUM: REYNSLUAKSTUR: MERCEDES BENZ 230 GE
og öryggi út
í hvert hjól
jöfnu helmingaskipta er sá að ekki
er vogandi að aka í fjórhjóladrifi á
þurru malbiki. Á móti þessum
annmarka má geta þess að sérstök
unun er því fylgjandi að finna
hversu auðvelt er að skipta milli-
kassanum, jafnt í kyrrstöðu sem á
lítilli ferð.
V-þýska aksturslagið
Gírskiptingar á Mercedes-G er
einnig kafli út af fyrir sig. Þarna
verður að segjast eins og er, að mér
finnst gaman að beita skiptingunni
og alveg sérstaklega skiptingu
millikassans. Það er t.d. lítið mál
að skipta, á ferð. úr fyrsta gír í háa
drifi niður í annan gír í lága drifi.
Lék ég mér að þessu við erfiðar
aðstæður þar sem ekki mátti stöðva
bílinn. Voru aðstæðurnar reyndar
þannig að við vorum að aka í
gegnum vilpur, taka snarpa beygju
og þar í beygjunni tók við löng
skriðubrekka. Kom sér vel að ekki
þarf endilega að taka mögnuð
tilhlaup í brekkur, þegar hægt er
að stilla á driflæsingar í miðjum
klíðum. Hef ég nú kosið að kalla
þetta „v-þýsku aðferðina".
Seigla og þyngd
Þá er Mercedes-G með frekar
lágum gírhlutföllum. Fyrsti gír í
háa drifi hefur hlutfallið 4.628,
lága drifið hefur hlutfallið 2,14 og
snúningshlutfallið á öxlinum er 4,9.
í samstarfi við slaglanga vélina og
hátt vogarafl er útkoman sú að
varla er að finna algengan jeppa
sem kemst jafn hægt við erfiðar
aðstæður. Er þessi kostur lfka afar
mikilvægur þegar beita þarf honum
til dráttar.
Væri lengi hægt að fjalla um
hlutföll og drif, en einhvers staðar
verður umfjöllun um annað að fá
stað. Ég verð að viðurkenna að G
er nokkuð þungur bíll, enda byggð-
ur á sterka grind og með sterku
húsi. Án ökumanns vegur hann um
1880 kg. Styrkleikinn gefur mögu-
Tímumynd Guðrún Helga
leika á mikilli dráttargetu og allt að
620 kg hleðslu. Þunginn kemur
honum vel til góða á meðan hann
hefur eitthvert grip undir einhverju
hjólanna, en verður til vandræða
þegar þörf er á að fljóta yfir
snjóbreiður eða þess háttar færi.
Hér verð ég að finna það að
þessum draumabíl að margt er að
sjá í honum sem veldur óþarfa
þyngd. T.d. erjárn í baki aftursætis
og einnig er mælaborðið borið
uppi af járni. Þá er hvarvetna að
sjá sterka járnbita, rör og rær, í
sætisfestingum og víðar. Mælist ég
hér með til þess að G-bíIlinn verði
léttur.
Dekkjaloftstakki
En fyrst við erum farin að tala
um þyngd á jeppum og þann
draumakost að hægt sé að láta þá
fljóta í snjó, verð ég að segja ykkur
aðra frétt úr innsta hring „Auðnu-
stjörnunnar". Ef þú pantar fimm-
tíu Mercedes-G, eða fleiri, er hægt
að fá þá með búnaði sem gerir
bílstjóranum kleift að minnka loft-
Aðkomuhorn er 36 gráður, bakhornið er 31 gráða og kviðarhornið,
undir miðjan bflinn, er 21 gráða. Miðað er við hlaðinn bfl og þá er hæð
undir lægsta punkt 21 cm.
þrýsting í öllum hjólbörðum, eða
auka hann, með því að snúa einum
takka í mælaborðinu. Til þessa
hafa jepparnir ekki verið afgreiddir
með þessum búnaði nema sem
herbílar til ákveðinna landa, en þá
eru þeir jafnan taldir í tugum.
Aðspurður sagði forstjóri Ræsis að
þessi búnaður væri ekki á pöntun-
arlistanum sem sendur er frá V-
Þýskalandi.
Reyndar kemur ekki á óvart að
Benz-verksmiðjurnar hafa orðið
fyrstar, að ég best veit, til að senda
frá sér jeppa með þessum dekkja-
loftþrýstibúnaði. G-jeppinn ert.d.
búinn að vera með markaðshæfum
gírlæsingum á mismunadrifinu í
meira en áratug, en það var ekki
fyrr en í haust sem hliðstæður
búnaður kom í fyrsta japanska
jeppann.
Lúxus aðbúnaður
En nú verður innrétting, stýri og
aðbúnaður mannanna að komast
að. Sætin eru með því allra besta
sem ég hef prófað. Þau eru mátu-
lega stíf til að styðja vel við bak og
læri og svo er hægt að stilla þau á
alla kanta. Þá var að finna í
reynslujeppanum lakka fyrir sætis-
hitun með tveimur stillingum, fyrir
hvort framsætið um sig. Mjög auð-
velt er að umgangast aftursætin í
þriggja dyra útgáfunni, þar sem
framsætin falla alveg að mæla-
borði.
Það kom mér einnig að óvörum
hversu vel er hugsað um miðstöðv-
arhitun á aftursætisfarþega. Ristin
sem gengur aftur á milli framsæt-
anna er u.þ.b. 40 cm breið og blæs
vel. Þarna í aftursætunum er ofan
á allt annað mjög rúmgott. Bekk-
urinn er gerður fyrir þrjá farþega
og á honurn eru þrenn öryggisbelti
og þrír höfuðpúðar. Mjög hátt er
til lofts í hvaða sæti sem setið er í.
Fyrir aftan bekkinn cr að lokurn að
finna sitt hvorn hliðarbekkinn, en
hægt er að hafa seturnar spenntar
uppi. Afturhurðin er stór og sér-
staklega þægileg.
Verð ég nú samt að setja út á
einn hlut er snertir ökumann sér-
staklega. Svo virðist sem gírstöngin
sé fengin úr öðrum bíl, en hún er
óþægilega stutt miðað við hversu
framarlega hún er staðsett. Þá má
einnig deila um hvort afturábakgír-
inn eigi að vcra þannig að toga þarf
stöngina lítillega upp. Þetta fannst
mér fyrst óþægilegt en síðar sættist
ég alveg við hugmyndina, öryggis-
ins vegna.
Þægindin verða ekki af Merce-
des skafin og er G ekki undantekn-
ing frá þeirri góðu reglu. Hann er
sérstaklega makindalegur á þjóð-
vegum og í venjulegum akstri og
kemur gormafjöðrun á hverju hjóli
vel út í fjallaslóðaakstri.
ABS læsingar-
vörn á hemla
Eitt er það enn sem þessi jeppi
hefur umfram flesta jeppa. Allir
Benz-jepparnir koma með ABS
læsingarvörn á bremsunum. Hjólin
læsast ekki við hemlun, og stöðva
bílinn því á skemmri vegalengd.
Grundvallar sjónarmiðið er það að
ekki sé nóg aö komast nær enda-
laust áfram, heldur sé ekki síður
nauðsynlegt að geta haldið aftur af
tækinu þótt hált sé undir í snjó,
aurbleytu eða lausamöl.
Án þess að geta fjallað frekar
um Mercedes G, vegna plássins, er
niðurstaða mín þessi: Fjallaferðir
ættu helst að bjóða uppá óvænt
ævintýri og uppákomur, en ekki
sjálfur torfærubíllinn. Þetta hefur
tekist í hönnun Mercedes G.
Innanbæjar- og þjóðvegaakstur á
að vera notalegur, öruggur og skila
mönnum sem minnst þreyttum á
áfangastað. Þetta hefur líka tekist.
Krístján Björnsson
•+-Vél, gírskiptingar,
læsingar,
aksturseiginleikar,
þægindi, sæti,,
einangrun,
styrkleiki
-Þyngd,
aðalgírstöng,
óskipt aftursæti