Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er miðvikudagurinn 4. mars, 63. dagur ársins. 8.24 13.39 18.56 8.13 13.24 18.37 Dag nokkurn á öndverðum sjö-unda áratug síðustu aldar kom ungur maður að tali við stöðvar- stjóra á lestarstöð skammt frá Bea- ulieu á Englandi. Sá ungi bar ekki höfuðið hátt enda hafði hann logn- ast útaf nóttina áður á drykkju- samkomu á tjaldsvæði í nágrenn- inu en vaknað síðan glerþunnur og peningalaus úti á engi. Þar að auki var hann búinn að gera í brækurn- ar og æla yfir sig allan. Menn sem þannig er ástatt fyrir eru ekki lík- legir til að ná einhverjum árangri í samningaviðræðum. En stöðv- arstjóri sá aumur á þeim unga og hripaði skuldarviðurkenningu svo hann kæmist heim til Ripley. AF hverju í ósköpunum skyldi hann hafa gert það? Hvað fær menn til að treysta einhverjum sem er með allt niðrum sig? Ekki nóg með það heldur lætur hann reyna á þolmörk samferðafólks- ins sem var almennilega til fara og þurfti að þola návist þessa út ataða saurlífsseggs. STÖÐVARSTJÓRINN hefur verið meðvitaður um það að skuldir má afskrifa en mannsandann aldrei. Jafnvel þótt hann sé í lægstu skör niðurlægingarinnar. Og oft vill það nú verða þannig að sá sem þekkir lægðirnar fær oft viljann og mátt- inn til að lyfta mannsandanum í efstu hæðir. Og stöðvarstjórinn hafði á réttu að standa. Lífið er oft eins og rússibani og þó maður rekist á einhvern sem kominn er á fjóra fætur væri manni hollast að staldra við áður en hann er afskrif- aður líkt og skuld fyrrverandi auð- kýfings. Enda rættist heldur betur úr þessum unga manni, Eric Clap- ton að nafni, þó vissulega hafi hann lognast út af við sullið nokkr- um sinnum síðan. Clapton hefur komist til æðstu metorða enda lyft anda ófárra upp til skýja með tón- list sinni. Hann hefur einnig opnað meðferðarstofnun fyrir vímuefna- fíkla og því afeitrað marga sem áttu það á hættu að vakna illa á sig komnir úti á engi. VIÐ Íslendingar erum einmitt núna nývaknaðir úti á engi eftir svakalegt svall og ástandið er ekki upp á marga fiska; kannski nokkrar gulldeplur. Samnings- staða okkar er því svipuð og hjá gítarleikaranum knáa í árdaga. Ég vil því benda sendinefnd Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins á sjálfsævi- sögu Erics Clapton, en hún er á til- boði núna, kostar ekki nema átta pund. Einnig geta skilanefndirnar eflaust nálgast íslensku þýðinguna í betri bókabúðum. Með Clapton úti á engi „Veita persónulega ráðgjöf.“ Kona, 39 ára. Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar okkar lengur við símann. Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum Íslandsbanka. Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21 í síma 440 4000. Getum við aðstoðað? Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka. Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála- viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með okkur og fara ítarlega yfir stöðuna. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 8 -2 2 5 4

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.