Morgunblaðið - 08.07.2006, Side 34
Ísfirsku skjald-
bökufangararnir:
Sveinbjörn Krist-
jánsson, Lúther
Ólason og Örn
Torfason.
Vika á Spáni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
32
54
6
05
/2
00
6 13.200 kr. - ótakmarkaður akstur,kaskó, þjófavörn, flugvallargjaldog skattar.
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá
Daglegtlíf
júlí
Þær heita Íslandssól, Sólliljaog Tobba trunta enda erHalldór Laxnes í sérstökuuppáhaldi hjá flotaforingj-
anum Önundi Jóhannssyni, sem nú
hyggur á skútuútgerð frá tyrknesku
skútuhöfninni í Göcek á miðjarð-
arhafsströnd Tyrklands. Skútunum
þremur, sem eru 45 feta af gerðinni
Jeanneau Sun Oddyssey, var hleypt
glænýjum af stokkunum í Port
Napoleon í Frakklandi í júníbyrjun
og þeim síðan siglt í halarófu 1.300
sjómílna leið frá Suður-Frakklandi
til Suður-Tyrklands þar sem lagst
var við festar að morgni kvennafrí-
dagsins 19. júní eftir rúmlega átta
sólarhringa siglingu í gegnum Mið-
jarðarhafið og tvö olíustopp á leið-
inni, annars vegar í Bonifacio á suð-
urenda Korsíku og hins vegar í
Reggio di Calabria á suðurenda Ítal-
íu.
Athafnamaðurinn Önni, eins og
hann er gjarnan kallaður af vinum
og vandamönnum, fékk íslenska
„skipstjóra“ til liðs við sig við að
ferja skúturnar alla þessa leið.
Að jafnaði var siglt á um sjö hnút-
um í sól, hita og logni og því þurfti
oftar en ekki að grípa til vélarinnar
samhliða seglanotkuninni.
Vestfirðingur veiðir skjaldböku
Íslensku áhafnirnar skiptust á
þriggja tíma vöktum við stýrið að
nóttu sem degi. Á frívaktinni var svo
ýmist dormað í sólinni uppi á dekki
eða í koju undir þiljum auk þess sem
þeir sprækustu sáu um að töfra fram
ítalska pastarétti með ýmsum lit-
brigðum til að seðja mannskapinn.
Að öðrum ólöstuðum má segja að
áhöfnin á Sóllilju, ungir sveinar að
vestan, hafi verið hvað hugmynda-
ríkastir í matargerðinni enda til-
heyra þeir bæði sérstökum veiði-
klúbbi og matarklúbbi. En þegar
sæskjaldbaka ein átti sér einskis ills
von þegar hún ákvað að kæta piltana
ungu með því að synda fram hjá hin-
um vestfirsku „villimönnum“, brá
svo við að einn þeirra tók á sig rögg,
henti sér niður í lítinn slöngubát og
barasta náði í skjaldbökuna með
berum höndum.
„Við erum á skjaldbökuveiðum.
Það verður skjaldbökusúpa í kvöld-
matinn, ef einhver hefur áhuga.
Við erum nefnilega sterkir strák-
ar að vestan og köllum ekki allt
ömmu okkar,“ heyrðist í talstöð-
inni stuttu síðar. Svo fór þó að litla
skjaldbakan lifði hremmingarnar
af og var sleppt út í frelsið á ný áð-
ur en dagur var að kvöldi kominn
þar sem enginn kunni skjaldböku-
verkun þegar til átti að taka.
Fráhrindandi íslenskt skrifræði
Þótt skúturnar komi til með að
hafa bækistöðvar í Tyrklandi tek-
ur Önni ekki annað í mál en að
skrá þær á Íslandi og sigla undir
íslenska fánanum. „Ég er nefni-
lega mikill þjóðernissinni auk
þess sem mér finnst íslenski fán-
inn vera afskaplega fallegur. Fyr-
ir þessa sérvisku mína þarf ég
hins vegar að borga mun meira en
ella auk þess sem íslenska skrif-
ræðið í kringum þetta stúss virkar
mjög fráhrindandi, svo ekki sé
meira sagt. Komi til þess að ég
stækki flotann síðar meir er ég
ekki viss um að treysta mér á ný í
gegnum reglugerðarfrumskóg
hinnar alíslensku Siglingamálastofn-
unar.“
Óhætt er að segja að íslensku
skúturnar hans Önna og Sigurveigar
Guðmundsdóttur, konu hans, séu
glæsifley, útbúnar öllum helstu þæg-
indum og fullkomnustu siglinga-
tækjum, sem völ er á enda lætur
nærri að hver skúta leggi sig á um 20
milljónir króna. Að auki festu Önni
og Sibba kaup á 49 feta skútu, sömu
tegundar, sem þau eiga í félagi við
nokkra aðra Íslendinga. Sú heitir
Salka Valka 2 og var henni siglt
sömu leið í apríl síðastliðnum. Hún
er einnig til útleigu með skipstjóra ef
eigendurnir eru ekki að nota hana
sjálfir.
Pláss fyrir allt að tíu manns
Nú er búið að gera íslensku skút-
urnar í Göcek klárar fyrir útleigu, en
auk þess að vera búnar meira en 100
fermetrum af seglum er 75 hestafla
Yanmar-vél í þeim öllum. Auðvelt er
að sigla á svæðinu. Að mestu er siglt
eftir auganu, en æskilegt er að leigu-
takar hafi kunnáttu í siglingafræði
og notkun sjókorta sem og í með-
höndlun báts í höfn og á akkerislægi.
Skúturnar leigjast frá apríl og fram í
nóvember. Hægt er að fá skúturnar
leigðar með skipstjóra, en án hans
nemur skútuleiga í viku frá 2.100
evrum og upp í 3.300 evrur. Pláss er
fyrir allt að tíu manns um borð í
hverri skútu og innifalið í verðinu er
akstur til og frá flugvelli og allt er
við kemur bát og búnaði um borð að
undanskilinni dísilolíunni.
Bærinn Göcek stendur við Fet-
hiye-flóa þar sem er að finna ótelj-
andi fagrar víkur og flóa til að varpa
akkeri eða binda við bryggju. Þar er
svo hægt að synda, sóla sig, snorkla,
fara í könnunarferðir og gott er að
enda daginn á litlum fjölskyldurekn-
um veitingastöðum í flæðarmálinu.
Á síðustu tíu árum hefur Göcek
verið að breytast úr pínulitlu fiski-
þorpi í skútubæ með lúxusaðstöðu.
Skútuhöfnin er nú orðin ein af þeim
vinsælustu við suðurströnd Tyrk-
lands. Íbúar eru um átta þúsund
talsins og býður bærinn upp á fjöl-
breytta þjónustu í göngufæri við
höfnina auk þess sem verðlag í Tyrk-
landi er hagstætt. Kaupmenn taka
bæði við evrum og tyrkneskum lír-
um, en geta má þess að Tyrkir skáru
heil sex núll aftan af gjaldmiðli sín-
um um síðustu áramót.
Sneri sér alfarið að áhugamálinu
Önni og Sibba hafa lengi búið í
Frankfurt í Þýskalandi, en bæði hafa
þau verið starfandi hjá Lufthansa,
hann sem flugstjóri undanfarin
sautján ár og hún sem flugfreyja. En
Önni er nú orðinn sextugur og búinn
að gera starfslokasamning við fyrr-
um vinnuveitanda, en áður hafði
hann m.a. rekið flugskóla og var einn
af stofnendum Arnarflugs. Í staðinn
fyrir að setjast í „helgan stein“, sem
kallað er, afréð hann að taka flugið í
áhugamálinu af krafti þótt segja
megi að röð tilviljana hafi fremur
ráðið för í öllu ferlinu en
rökræn og meðvituð við-
skiptamannapólitík. „Ég
hef sjálfur verið forfallinn
skútuáhugamaður í þrjá-
tíu ár og siglt um öll
heimsins höf. Það er hins
vegar hvergi betra að sigla
en við Tyrklandsstrendur.
Þetta svæði toppar allt
annað og ég vil að fleiri
njóti.
Það má þó segja að lífið
hafi tekið 90° beygju á
London Boat Show í jan-
úar sl., en þar var ég ein-
göngu að þreifa fyrir mér
með það fyrir augum að
skipta gömlu Sölku Völku,
sem við nokkrir Íslend-
ingar áttum saman í fé-
lagi, út fyrir nýja. Ég sá
Jeanneau-skúturnar og
varð bara ástfanginn. Svo
einfalt er það. Það varð
ekkert aftur snúið. Þegar
upp var staðið var ég bú-
inn að kaupa fjórar skútur
í stað einnar. Nú vona ég
bara að þetta framtak mitt
falli íslenskum ferðamönnum í geð
því nú með vikulegu beinu leiguflugi
Úrvals-Útsýnar til Dalaman-
flugvallar, sem er 22 km frá okkur,
hefur skapast auðvelt aðgengi að ís-
lensku skútunum. Þetta er nefnilega
geysilega skemmtilegur ferðamáti
enda er ávallt bullandi byr í Tyrk-
landi.“
SIGLINGAR | Á lúxusskútu undir íslenskum fána yfir endilangt Miðjarðarhafið
Bullandi byr í Tyrklandi
Morgunblaðið/Jóhanna IngvarsdóttirSkútubærinn Göcek situr í fallegu umhverfi á Miðjarðarhafsströnd Tyrklands.
Önundur Jóhannsson siglir skútunum sínum í
tyrkneskum sjó undir íslenska fánanum.
Áhöfn Íslands-
sólar: Önundur Jó-
hannsson, Kristín
Guðmundsdóttir,
Jason Plews og Jó-
hanna Ingvarsdóttir.Morgunblaðið/JI
Glænýjum lúxusskútum með íslenskum fánum var hleypt af stokkunum í Port Napoleon í Frakklandi í júní-
byrjun. Skúturnar eru í eigu íslenskra hjóna, sem ætla að leigja þær út í fögru umhverfi við Tyrklandsstrend-
ur. Jóhanna Ingvarsdóttir var í hópi áhafnarmeðlima, sem skiptust á þriggja tíma vöktum við að ferja skút-
urnar 1.300 sjómílna leið yfir endilangt Miðjarðarhafið, allt frá Frakklandi til Tyrklands.
TENGLAR
.....................................................
www.seaways-sailing.com
join@mbl.is