Morgunblaðið - 14.07.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.07.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hagstæðustu kaupin Hinn eini sanni íslenski DALA FETA nú fáanlegur á TVENNUTILBOÐI í næstu verslun. Einnig með tómötum og olífum! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 1 4 2 Við getum alveg skorið niður veg á þetta krummaskuð, Jón minn, þetta komast nú allir á vel búnum fjallajeppum. Framhaldsskólakerf-inu hér á landi erskipt í tvo nokkuð aðgreinda hluta, bóknám og starfsnám. Nemendur sem stunda nám í bók- námshlutanum fá stúd- entspróf eftir að hafa lokið námi sem veitir þeim að- gang að háskólanámi. Í lögum er gert ráð fyrir að þrjár bóknámsbrautir séu kenndar í framhaldsskól- anum, náttúrufræðabraut, tungumálabraut og fé- lagsfræðabraut. Fjölbreyttur hópur námsgreina Starfsnámsbrautirnar eru aftur á móti mun fleiri eða rúmlega 85. Meðal þeirra eru námsbrautir í löggildum iðngreinum sem og aðr- ar námsbrautir sem veita mönn- um tiltekin atvinnuréttindi. Yfir- leitt er um að ræða nám sem tengist handverki eins og bifvéla- virkjun, húsasmíði, pípulagnir, ýmsar heilbrigðis-, félags- og upp- eldisgreinar, hönnun, hársnyrt- ingu, blikksmíði, vélvirkjun, ljós- myndun, flugstjórn o.fl.. Mismunandi er hvaða kröfur um starfstíma eru gerðar til nemenda í þessum fögum en margir ljúka fyrst prófi frá skóla og hefja síðan vinnutímanám hjá fyrirtækjum, eða „fara á samning“ eins og kall- að er. Á sumum námsbrautum gefst nemendum hins vegar kost- ur á að ljúka vinnustaðanáminu í skólanum sjálfum. Í mörgum fög- um gefst nemendum sem lokið hafa prófi frá starfsnámsbraut framhaldsskóla og starfstíma í vinnustaðanámi tækifæri til að ljúka sveinsprófi. Gallar tvískiptingar Nemendur sem lokið hafa starfsnámi hafa ekki átt þess kost að hefja nám á háskólastigi þar sem einblínt hefur verið á stúd- entsprófið sem forkröfu þess að innritast í háskólanám. Gert hefur verið ráð fyrir að slíkir nemendur geti lokið stúdentsprófi með því að ljúka ákveðnu viðbótarnámi, burt- séð frá því hvað þeir hafa lært í starfsnáminu. Í þessu endurspegl- ast skýrt hversu tvískipt fram- haldsskólastigið er, próf af öðrum hluta þess er ekki metið til fulln- aðarprófs hins hlutans. Tvískipting birtist ekki bara í því að starfsnámsnemar hafa þurft að ljúka sérstöku viðbótar- námi til að öðlast rétt til setu í há- skólanámi heldur fara nemendur síður í starfsnám en bóknám eftir útskrift úr grunnskóla. Hér á landi hefur verið litið svo á að eðli- legt sé að börn ljúki stúdentsprófi áður en ákveðið er hvert stefna skuli í lífinu og fara margir nem- endur því ekki í starfsnám fyrr en eftir að hafa lokið stúdentsprófi. Á bóknámsbrautum lenda margir nemendur í námi sem hentar þeim ekki en fleiri flosna úr framhalds- skólanámi hér en öðrum OECD- ríkjum. Fyrirkomulagið má líklega rekja til þess tíma þegar ekki var litið á iðnmenntun sem menntun, heldur fremur þjálfun í vinnu- brögðum. Nú telja flestir að þessi viðhorf eigi ekki lengur við um margt af því námi sem flokkað er sem starfsnám þar sem það bygg- ist á heilmiklu bóknámi. Tillögur starfsnámsnefndar, sem kynntar voru í vikunni, fela í sér að þessari tvískiptingu verður eytt og hætt verði að tala um bók- nám og starfsnám. Báðar gerðir náms verði metnar til eininga sem nemandinn geti síðan fengið metnar til stúdentsprófs. Þeir nemendur sem stunda nám í greinum sem veita atvinnuréttindi muni fá þau réttindi óháð því hvort þeir fái stúdentspróf eða ekki. Nái þessar hugmyndir fram að ganga verða stúdentspróf nem- enda mjög fjölbreytileg og þeir að- ilar sem taka við nemendunum, háskólar og atvinnulíf, munu þurfa að gera kröfur um innihald stúdentsprófanna en ekki bara til þess að nemandi hafi lokið slíku prófi. Binda menn vonir við að nemendur muni í auknum mæli velja nám sem þeir hafi áhuga á og sé við þeirra hæfi. Námsferillinn ein heild Nefndin hefur einnig lagt til að skipulag vinnustaðanáms starfs- nema verði bætt. Nám nemandans hjá fyrirtæki sem tekur hann í læri verði sett í hluta aðalnám- skrár og skólarnir muni því bera ábyrgð á að nemendur fái umsjón og þjónustu til loka starfsnáms á vinnustað. Námsferillinn verði því ein heild frá upphafi námsins til atvinnuréttinda. Vinnustaðafyrir- tækin verði valin sértaklega og tryggt að þau hafi á að skipta ein- staklingi sem geti annast fræðslu og afmarkað hvað nemandinn eigi að læra hjá viðkomandi fyrirtæki. Kostnaður fyrirtækja vegna vinnustaðanámsins verði jafnaður á öll fyrirtæki í landinu en ekki bara á þau sem séð hafa um það. Einnig er lagt til að fleiri náms- tækfæri verði sköpuð sem tengist starfsnámi. Í nágrannalöndunum hafa þróast námsbrautir í starfs- tengdum greinum fyrir þá sem lokið hafa starfsnámi í framhalds- skóla. Veita eigi framhaldsskólum heimild til að setja á stofn eins til þriggja ára nám á fagháskólastigi sem yrði sjálfstætt skólastig. Fréttaskýring | Nýr framhaldsskóli Starfsnámið jafnt bóknámi Umhverfi starfsnáms hér á landi hefur verið óheppilegt að mati nefndar Kennslutæki í bifreiðadeild Borgarholtsskóla Stúdentsprófið verði endurskilgreint  Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra kynnti í vikunni niðurstöður nefndar sem skoðað hefur stöðu starfsnáms á Íslandi. Nefndin leggur til að uppbyggingu fram- haldsskólanáms verði breytt og stúdentsprófið endurskilgreint. Hætt verði að tala um starfsnám og bóknám heldur verði einungis rætt um framhaldsskólanám til stúdentsprófs. Staða starfsnáms og bóknáms verði þannig jöfnuð. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar á landinu öllu í seinasta mánuði jafn- gilda því að 2.029 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í júní og að atvinnuleysi hafi verið 1,3% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um at- vinnuástandið. Meðalfjöldi atvinnulausra var 1,5% minni í júní en í maí og 1.213 færri en í júní á seinasta ári, sem er um 37% fækkun atvinnulausra frá sama mánuði í fyrra. Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæð- inu er nú 1,4% af áætluðum mannafla og 1,1% á landsbyggðinni. Á landsbyggðinni er atvinnuleysið mest 2,1% á Norðurlandi eystra, en minnst er atvinnuleysið á Austur- landi 0,3%. Aukið atvinnuleysi kvenna en færri karlar eru án atvinnu Atvinnuleysi karla hefur minnkað um 7% milli mánaða en atvinnuleysi kvenna jókst um 2,1%. „Atvinnu- ástandið batnar yfirleitt milli júní og júlí. Í fyrra minnkaði atvinnuleysi úr 2,1% í júní í 2% í júlí og var með- alfjöldi atvinnulausra um 3,3% minni í júlí en júní það ár. Árið 2004 lækkaði atvinnuleysishlutfallið milli júní og júlí úr 3,1% í 3%. Ólíklegt er þó að atvinnuástandið í ár batni með sama hætti. Þannig voru laus störf í lok júní í ár 510 og fækkaði um 143 milli mánaða. Fækkunin er heldur meiri nú en fyrir ári auk þess sem störf í boði á vormánuðum í ár eru víðast hvar á landinu umtalsvert færri en á sama tíma fyrir ári,“ segir í skýrslu Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysið 1,3% í júní Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.