Morgunblaðið - 14.07.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2006 53
BLUE Lagoon Soundtrack by Margeir, kallast nýr safn-
diskur sem Sena gefur út í samvinnu við Bláa lónið en þar
er um að ræða safn laga sem plötusnúðurinn Margeir Ing-
ólfsson setur saman. Platan er í þessum „chill-out“-stíl
sem hefur verið vinsæll undanfarinn áratug eða svo og
leggur upp með þægilega en svala tónlist líka þeirri sem
Coldcut, Rhythm & Sound og Zero 7 hafa fullkomnað.
Margeir segir að hugmyndin að þessu verkefni hafi ver-
ið að gerjast mjög lengi.
„Ég tengdi fyrst tónlist og Bláa lónið saman fyrir 12 til
13 árum þegar mér datt í hug að halda tónleika þar. Þá
leit lónið sjálft allt öðruvísi út en það var einhver tenging
sem ég sá þarna strax á milli tónlistar og þessa umhverf-
is.“
Sérstök stemning
Síðan þá hefur Margeir við ýmis tækifæri spilað í Bláa
lóninu sem hann segir hafa gefist mjög vel. „Mig langaði
að ná fram þeirri stemningu á disknum sem ég upplifði
þegar ég spilaði þarna og það fór satt að segja ekki mikil
orka í að sannfæra Senu og Bláa lónið um að þetta væri
góð hugmynd. Mér hefur hins vegar sjálfum fundist
megnið af þessum „chill-out“-diskum frekar leiðinlegt og
vildi setja saman disk sem endurspeglaði þetta sérstaka
umhverfi sem er þarna, orkuverið, náttúruna og lónið
sjálft.“
Þekkt vörumerki
Margeir segir að platan sé bæði hugsuð fyrir innlendan
markað og ferðamenn sem hingað koma. „Það var fyrst og
fremst hugsunin að búa til disk fyrir unnendur góðrar
tónlistar en það er að sjálfsögðu fullt af útlendingum sem
þekkja Bláa lónið og það er óneitanlega vel þekkt og gott
vörumerki. Hins vegar er tónlistin þannig að ef maður set-
ur sig í sérstakar stellingar fyrir fram, í stað þess að
vanda til verksins, lendir maður í vandræðum. Platan ætti
því einfaldlega að höfða til allra sem unna góðri tónlist –
hvaðan sem það fólk kemur.“
Margeir segir að það sé ekkert ákveðið framhald á
verkefninu en það sé aldrei að vita.
„Það verður örugglega slegið upp útgáfuteiti í Bláa lón-
inu í ágúst og svo verður sérstök Blue Lagoon dagskrá í
kringum Iceland Airwaves í október. Annað kemur bara í
ljós síðar.“
Tónlist | Margeir sendir frá sér nýja safnplötu
Innblásin af Bláa lóninu
Margeir hefur verið með vinsælli plötusnúðum landsins um árabil.
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI
AÐ SKORA
eeee
KVIKMYNDIR.IS
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
SUPERMAN kl. 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
SUPERMAN LUXUS VIP kl. 4:50 - 8 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 3:50 - 6 - 8 - 8:15 - 10:20 - 10:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/ÍSL TALI kl. 3 - 5:30
CARS M/ENSKU TALI. kl. 3:30
SHE´S THE MAN kl. 6
SUPERMAN kl. 4 - 6 - 8 - 10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN.
THE BREAK UP kl. 8:20 - 10:30
BÍLAR M/ÍSL TALI kl. 3:30 - 6
CARS M/ENSKU TALI kl. 3:30 DIGITAL SÝN.
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
eeee
V.J.V. Topp5.isS.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
...ljósmyndasamkeppni
HansPetersenogmbl.is
Verðlaun fyrir mynd vikunnar eru:
50 fríar 10 x 15 myndir
Ljósmyndari: Sigurður Guðbrandsson
Nafn myndar: Hvítur flötur
Tækniupplýsingar: ef einhverjar?
Myndvikunnar í...
Ljósmyndari: Gísli Kristinsson
Nafn myndar: Gaman í heita pottinum