Morgunblaðið - 17.08.2006, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ásdís Ólafsdótt-ir fæddist á
Þórisstöðum í
Svínadal 30. júlí
1922. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 11. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Þuríður
Guðnadóttir, hús-
móðir, f. 25.12.
1884, d. 3.5. 1959,
og Ólafur G. Magn-
ússon, bóndi, f.
27.7. 1887, d. 14.6.
1952. Ásdís var þriðja yngst af
tíu systkinum. Hin eru: María, f.
1914, d. 1966, Guðfinnur, tvíburi,
f. 1915, d. skömmu eftir fæðingu,
andvana fæddur drengur, tví-
buri, f. 1915, Laufey, f. 1916,
Magnús, f. 1918, d. 1996, Guðrún,
f. 1919, Ólafía, f. 1921, Jóhanna,
f. 1924, d. 2005, og Guðni, f.
1926, d. 2005.
Ásdís giftist 22. desember 1951
Sigurði Guðmundssyni verka-
manni frá Akurgerði á Akranesi,
f. 13. mars 1920, d. 27. maí 1990.
Hann var sonur hjónanna Marsi-
bilar Gísladóttur, f. 1880, d. 1950,
og Guðmundar Hanssonar, f.
1876, d. 1961.
Börn Ásdísar og
Sigurðar eru: 1)
Marsibil, f. 1951,
maki Viðar Magn-
ússon, nú látinn.
Þau eiga þrjú börn,
Ásdísi, Helgu og
Magnús, og fimm
barnabörn. 2)
Ólafía, f. 1953, maki
Elmar Þórðarson.
Þau eiga þrjá syni,
Gísla, Snorra og
Mána, og fjögur
barnabörn. 3) Þór-
dís, f. 1956. Hún á
tvö börn Sigurð Þórðarson og
Vöku Antonsdóttur, og tvö
barnabörn.
Ásdís ólst upp á Þórisstöðum í
Svínadal. Hún stundaði nám einn
vetur við húsmæðraskólann á
Staðarfelli í Dalasýslu. Árið 1951
fluttist hún á Akranes og bjó þar
til dánardags, lengst af í Akur-
gerði 19, en fluttist að Einigrund
4 árið 2000, þá orðin ekkja. Hún
starfaði um langt árabil við fisk-
verkun hjá Haraldi Böðvarssyni
& Co, en vann jafnframt alla tíð
við prjónaskap á heimili sínu.
Útför Ásdísar verður gerð frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Í dag verður tengdamóðir mín
Ásdís Ólafsdóttir lögð til hinstu
hvílu við hlið eiginmanns síns í
kirkjugarðinum að Görðum á Akra-
nesi.
Fyrir u.þ.b. 30 árum varð ég svo
heppinn að ganga inn í fjölskyldu
Ásu eins og hún var kölluð af flest-
um. Þar eignaðist ég góðan bak-
hjarl og góða tengdafjölskyldu. Frá
fyrstu tíð var gott á milli okkar
Ásu. Það var gaman að sitja við
litla eldhúsborðið á Akurgerðinu,
gæða sér á kræsingum sem Ása
átti alltaf nóg af, hvort sem það
voru kleinur, hveitikökur eða slátur
og ræða dægurmál. Hún hafði fast-
mótaðar skoðanir á flestu og varð
þeim sjaldnast hnikað. Hún fylgdist
vel með íslenskri pólitík. Hún var
réttsýn, heiðarleg og stálminnug.
Nánast alla ævi stundaði hún
verkamannavinnu og safnaði ekki
veraldlegum auði. Það hlýtur að
hafa verið gott að hafa hana í vinnu
því duglegri konu hef ég vart
kynnst. Hún var ekki vön að ræða
mikið um hlutina heldur lét hún
verkin tala.
Ömmuhlutverki sínu skilaði Ása
óaðfinnanlega. Drengirnir okkar
Ólafíu hafa meira eða minna notið
umönnunar hennar í lengri eða
skemmri tíma þegar foreldrar
þeirra voru of uppteknir við vinnu
eða skólasókn. Fyrir það ber að
þakka.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég heiðra minningu Ásdísar Ólafs-
dóttur með þakklæti fyrir allan
þann stuðning og væntumþykju
sem hún sýndi mér og fjölskyldu
minni.
Elmar Þórðarson.
Í dag langar mig að segja nokkur
orð um hana ömmu mína. Stórkost-
leg kona, mér svo kær og eftir-
minnileg.
Akurgerði 19 á Akranesi var
löngum heimili ömmu og bjó hún
þar lengst af með honum afa. Þetta
var tignarlegt steinhús klætt ljósri
klæðningu og umkringt mosagrænu
trégrindverki. Húsinu fylgdi góður
andi og var það alla tíð akkeri fjöl-
skyldunnar og kærkominn sam-
komustaður hennar. Í Akurgerðinu
áttum við barnabörnin alltaf gott
skjól og fóstrar húsið margar sælar
og skemmtilegar minningar æsku-
áranna.
Ég man svo vel eftir ömmu í Ak-
urgerðinu. Eftir því að hafa legið
frammi á gangi við litla prjóna-
herbergið, hlustað á kurrið í
prjónavélinni og horft á ömmu þar
sem hún sat einbeitt við að prjóna.
Annað slagið leit svo við viðskipta-
vinur og nældi sér í sokkapar, nær-
bol eða gammósíur. Líklega geta
fáir státað af eins mikilli fram-
leiðslu og hún amma og enn færri
af því að eiga jafn glæsilegt safn af
heimaprjónuðum dýrgripum eins
og ég.
Mér er sérstaklega minnisstæður
einn hlutur úr Akurgerðinu. Hægra
megin á veggnum við eldhúsglugg-
ann hékk alltaf dagatal, gersemi
eldhússins. Á hverjum degi reif
amma gærdaginn af dagatalinu og
hóf þannig nýjan dag. Með þessu
móti fylgdist hún vel með hvað tím-
anum leið, enda sérfræðingur mikill
þegar kom að því að muna afmæl-
isdaga. Þegar ég flutti til útlanda
fyrir nokkrum árum gaf amma mér
dagatal til þess að hafa í fyrsta eld-
húsinu mínu, gersemi eldhússins
míns.
Amma var kjarnakona. Hún var
alla tíð heilsuhraust og þrátt fyrir
að fæturnir væru farnir að gefa sig
gaf hún sig ekki. Enda var hún allt-
af miklu betri í dag en í gær. Dugn-
að sinn sótti hún örugglega í upp-
vöxt sinn í sveitinni, en amma var
frá Þórisstöðum í Svínadal. Hún
talaði alltaf af mikilli gleði um
sveitina sína, hestana, kýrnar, kind-
urnar og sveitunga sína. Hún var
mjög félagslynd enda úr stórri fjöl-
skyldu og var hún alla tíð í sérlega
góðu sambandi við systkini sín. Er
mér það minnisstætt hvernig
glumdi í veggjum Akurgerðisins
þegar einhver systra ömmu rak inn
nefið. Allar voru þær kraftmiklar
konur, snarar í snúningum og var
varla komið lengra en upp í miðjan
stiga þegar farið var að færa fregn-
ir, þá gjarnan úr sveitinni. Var svo
sest inn í eldhús spjallað, fengið sér
kaffi, einn kandísmola eða tvo og
jafnvel tekið í spil. Ég man hvað
mínum barnseyrum þótti það
spennandi og framandi að fá vera
fluga á veggnum þegar þær systur
ræddu málin.
Þegar amma fluttist úr Akur-
gerðinu á Einigrundina öðlaðist
nýja heimilið hennar strax sama
mikilvæga sess í lífi fjölskyldunnar
og Akurgerðið hafði haft, því amma
flutti með sér anda og hlýleika
gamla hússins.
Á seinni árum tókum við amma
okkur stundum rúnt niður í miðbæ,
keyptum okkur ís og spjölluðum.
Samræðurnar voru alltaf á léttu
nótunum, við höfðum svo gaman af
því að gantast hvor í annarri. Alltaf
keyrðum við löturhægt fram hjá
gamla Akurgerðinu og virtum fyrir
okkur yfirstandandi húsabreytingar
sem þar eru að eiga sér stað. Vor-
um við á einu máli um að nýbygg-
ingarnar við gamla Akurgerðið
væru ekkert annað en lýti á annars
skemmtilegu svipmóti miðbæjarins.
Ég veit að okkur þótti báðum mikið
til þessara ferða koma.
Amma starfaði lengst af við fisk-
verkun hjá HB & Co á Akranesi,
auk þess að vera handverkskona
mikil. Hún mat eiginleika eins og
dugnað og samviskusemi mikils og
gladdi það hana alltaf þegar hún
heyrði ávæning af því að eitthvert
barnabarnanna stæði sig vel í
vinnu. Þegar við krakkarnir vorum
minni hafði hún gaman af því að
segja okkur sögur úr frystihúsinu,
hún kallaði þær íshússögur. Nú,
þegar ég er orðin fullorðin hafa æv-
intýralegar frásagnirnar úr frysti-
húsinu fengið sérstakan sess í huga
mér. Það er ekki hægt annað en að
líta fullur virðingar og aðdáunar til
kynslóðar ömmu sem vann svo
hörðum höndum alla sína ævi og
byggði undirstöður þess þjóðfélags
og þeirra lífsskilyrða sem við njót-
um og metum svo mikils í dag.
Annar eins dugnaður er vandfund-
inn. Sannaði það sig í verki hér um
daginn þegar amma, á 84 ára af-
mælisdegi sínum, bar sig fagmann-
lega að við að flaka nýveiddan lax-
inn úr Botnsá beint ofan í alla
fjölskylduna! Og geri aðrir betur.
Elsku besta amma mín, nú þegar
leiðir skilja langar mig að þakka
þér fyrir allar hlýju, fallegu og
skemmtilegu stundirnar sem prýða
og sæma minningar mínar. Þín
verður sárt saknað.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
(Pétur Þórarinsson)
Þín
Vaka.
Elsku Ása amma. Það er svo
skrítið að sitja hér og skrifa um þig
minningargrein. Maður er ekki al-
veg búinn að átta sig á því að þú
skulir vera búin að kveðja þennan
heim því veikindi þín og andlát bar
svo skjótt að.
Það var alltaf einstaklega nota-
legt að vera í kringum þig og í
huga okkar sjáum við þig brosandi,
hlæjandi og ánægða með lífið. Þó
að líkaminn hafi ekki verið upp á
sitt besta þá varst þú samt svo dug-
leg að bjarga þér og komst allra
þinna ferða á hörkunni einni sam-
an, enda búin að vinna mikið á lífs-
leiðinni og ekki vön að kvarta und-
an hlutunum.
Það er okkur mjög dýrmætt hvað
þú varst dugleg að passa Sölva fyr-
ir okkur, því honum fannst svo
óskaplega gaman að fara í pössun
til Ásu ömmu. Aldrei mótmælti
hann þegar það átti að skilja hann
eftir hjá þér, en þú varst ein af
þeim fáu manneskjum sem hann
var sáttur við að vera í pössun hjá.
Það brást heldur aldrei að amma
var tilbúin með nýbakaðar pönnu-
kökur handa litla kútnum þegar
hann kom í heimsókn eða pössun
og slógu þær rækilega í gegn hjá
honum. Sölvi á helling af prjóna-
sokkum, -vettlingum, -sokkabuxum
og gammosíum sem þú prjónaðir
handa honum og hafa haldið á hon-
um hita í gegnum tíðina. Þessar
flíkur verða vel geymdar og verða
síðar meir örugglega notaðar af
fleiri börnum en honum.
Fyrir nokkrum dögum keyrðum
við framhjá blokkinni þinni og þá
hrópaði Sölvi voðalega ánægður:
„amma!!!“. Hann er auðvitað allt of
ungur til að skilja það að hann hitt-
ir ömmu sína ekki aftur.
Það var voðalega sárt að þurfa að
kveðja þig á sjúkrahúsinu, en þér
leið greinilega ekki vel og erum við
þakklát fyrir að þú þurftir ekki að
þjást meira, þó svo að það sé mjög
erfitt að þú skulir vera farin.
Þú lætur eftir þig þrjár ynd-
islegar dætur sem þú getur verið
svo stolt af því þær eru allar ein-
staklega hjartahlýjar og hjálplegar,
alveg eins og þú varst.
Við viljum þakka þér fyrir allar
yndislegu stundirnar sem við áttum
með þér. Hvíl í friði.
Snorri, Fanney Svala og Sölvi.
Í dag er Ásdís Ólafsdóttir, eða
Ása í Akurgerði eins og hún var oft
kölluð, borin til hinstu hvílu. Ása
var góð, sterk og heilsteypt kona.
Hún hafði skýra lífssýn sem hún
hafði mótað með sér snemma á æv-
inni. Lífssýn sem meðal annars
fólst í að láta aldrei sitt eftir liggja,
vera bjartsýn og trúa á hið góða í
lífinu. Frá Ásu bárust ávallt já-
kvæðir straumar og var hún fljót
að ná góðu sambandi við samferða-
fólk sitt. Áberandi var hve fljótt
myndaðist hópur þar sem hún fór
og hve þar ríkti mikil samkennd.
Ása átti marga vini og voru þeir á
ýmsum aldri. Hún fór ekki í mann-
greinarálit og umgekkst bæði börn
og fullorðna af virðingu.
Margar minningar leita á hugann
á þessari stundu. Gott var að koma
inn á heimili hennar sem barn. Allt-
af var Ása á kafi við ýmis störf, svo
sem bakstur, þvotta eða prjóna-
skap. Afköst Ásu voru mikil, hand-
tökin hröð og hún kunni vel til
verka. Ef gest bar að garði var þó
alltaf tími til að líta upp, þó það
væri sjö ára gömul vinkona dóttur
hennar. Ása hafði líka góðan skiln-
ing á þörf unglingsins fyrir frelsi
og um leið fyrir aðhald. Margir leit-
uðu því í Akurgerðið, bæði fjöl-
skylda og vinir, því þar ríkti skiln-
ingur á þörfum einstaklinganna en
þar var um leið gefandi umhverfi.
Þegar dæturnar voru farnar að
heiman safnaði Ása oft fjölskyldu
sinni í kringum sig. Ýmsar hefðir
sköpuðust í kringum jólaboð, bollu-
kaffi og afmælisdaginn hennar. Ása
hafði til dæmis gaman af söng og
skapaðist því sú hefð í fjölskyldunni
að syngja saman. Gaman var líka
að fá Ásu í heimsókn því henni
fylgdi gleði og samtakamáttur. Þá
lumaði hún oft á einhverju góðgæti
eða prjónlesi og alltaf var hún
tilbúin til að taka að sér verk. Ása
hafði gaman að því að spjalla um
lífið og tilveruna. Hún hafði frá
ýmsu að segja, ekki síst lífinu í
sveitinni. Oft höfum við Ása spilað
saman og var það alvöruspila-
mennska. Hún gaf aldrei eftir og
mikill var hraðinn í spilamennsk-
unni, hverjir sem spilafélagarnir
voru.
Ása var mikil prjónakona. Hún
prjónaði bæði í vél og í höndum
peysur, húfur, gammósíur, ullar-
boli, sokka og vettlinga. Hún var
alltaf að prófa eitthvað nýtt og
tilbúin að takast á við nýja ögrun.
Hún var örugg í litavali og hafði
næmt auga fyrir hlutföllum. Það
lék í höndunum á henni að stækka
og minnka uppskriftir og hanna
peysur á fólk á öllum aldri. Gaman
var að skoða í skápinn hjá henni og
sjá allt úrvalið sem þar var að
finna.
Ása vann lengst af við fiskverk-
un. Þar var hún einn af aðalflök-
urunum um árabil. Hún hafði gott
vald á handbragðinu sem hún sýndi
nú síðast þegar hún flakaði lax á af-
mælisdaginn sinn fyrir hálfum
mánuði. Ása var ein af þeim sem
alltaf mættu til vinnu og á réttum
tíma eða öllu heldur í góðum tíma
til að standa klár í slaginn þegar
klukkan kom. Hún bar hag vinnu-
staðar síns fyrir brjósti og sýndi
samstarfsfólki sínu umhyggju. Hún
gaf barnabörnum innsýn í heim
frystihússins þegar hún sagði þeim
sögur á meðan þau voru klædd eða
mötuð.
Eftir að Ása hætti að vinna var
hún mjög virk í félagslífi. Hún fór í
margar ferðir um landið. Henni
fannst mjög gaman að aka um
sveitir landsins og fylgjast með
heyskap og skepnuhaldi. Hún vildi
þó aldrei vera lengi að heiman enda
hentaði henni vel að gera hluti
hratt. Hún hafði engu að síður lag á
að njóta þeirra jafnframt. Hún var
alltaf tilbúin að skjótast hvort sem
var með Massý dóttur sinni suður
til Reykjavíkur eða í bíltúr um
nærliggjandi sveitir. Skemmtilegast
þótti henni þó að koma heim í
Svínadal og sjá gömlu sveitina sína.
Þá komu margar góðar sögur og
sungið var hástöfum Blessuð sértu
sveitin mín.
Það er margs að minnast nú þeg-
ar leiðir skilja en efst er mér þó í
huga að Ása var kona sem unni líf-
inu, vann ötullega alla ævi og
studdi vel við allt sitt fólk, fjöl-
skyldu, vini og ættingja.
Guðbjörg Pálsdóttir.
Nú er komið að kveðjustund.
Elskuleg amma mín og nafna hefur
kvatt þennan heim. Þetta gerðist
allt svo hratt að það er erfitt að
átta sig á því að amma sé farin. Ég
hugsa oft til síðustu ferðar minnar
og barnanna til Íslands. Mamma og
systurnar á ferðalagi og ég kom
heim til þess að vera ömmu innan
handar á meðan. Þetta var sjálfsagt
ein af okkar bestu stundum saman.
Hún var eldhress, kom í morg-
unkaffi á hverjum degi, borðaði
með okkur á kvöldin og bakaði sín-
ar heimsins bestu pönnukökur og
hveitikökur eftir sundtúrana okkar.
Ég er svo þakklát fyrir þennan
tíma. Við eigum eftir að sakna
ömmu Ásu sárt.
Þín
Ásdís og fjölskylda.
ÁSDÍS
ÓLAFSDÓTTIR
Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar, systur, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
VILBORGAR HANSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær frábært starfsfólk deildar 7a
á Landspítalanum í Fossvogi og starfsfólk
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fyrir umönnun og
ljúft viðmót.
Rósmundur Sigurðsson,
Elísabet Kolbrún Hansdóttir, Hafsteinn Guðmundsson,
Richard Henry Echard, Oddný Guðjónsdóttir,
Rósmundur Hans Rósmundsson, Guðbjörg Oddsdóttir,
systkini, barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓLI KRISTINSSON
fyrrverandi kaupmaður á Húsavík,
sem lést í Hveragerði þriðjudaginn 8. ágúst
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 19. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afbeðnir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á
Húsavík eða Hjartavernd.
Ingunn Jónasdóttir,
Örn Ólason,
Einar Ólason, Jódís Hlöðversdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.