Morgunblaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Menningarnótt er fram-undan, og eins og síðustuár er dagskráin svo um-
fangsmikil að liggur við að vænleg-
ast væri að láta vera að kynna sér
hvað er á boðstólum, og ramba
þess í stað um miðborgina og njóta
þess sem tilviljunin færir manni.
Það eru enda engar ýkjur að segja
að eitthvað sé að gerast í hverju
sundi og skoti í miðbænum á laug-
ardag.
En ég er ekki þekktur fyrir aðláta kylfu ráða kasti, og gat
því ekki staðist að setja saman lít-
inn lista yfir það sem ég vil síst
missa af á dagskrá menning-
arnætur.
Ég sé Menningarnótt nefnilega
sem kjörið tilefni til að heimsækja
menningarstofnanir og staði sem
ég hef vanrækt alltof lengi. Ég er
örugglega ekki einn um að vera
latari en ég myndi vilja vera að
njóta þeirrar menningar sem boðið
er upp á í borginni hvunndags. Ég
sé því Menningarnótt sumpart sem
tækifæri til menningarsyndaafláts.
Ég er alltof latur til að vilja takaþátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu sem borgarstjóri setur kl. 11.
Það á betur við mig að lúra í hengi-
rúmunum sem sett verða upp í trjá-
lundi á Miklatúni. Og fyrst ég væri
á Miklatúni á annað borð myndi ég
að sjálfsögðu líta við á Kjarvals-
stöðum þar sem boðið verður upp á
leiðsagnir um safnið.
Eða kannski það væri best að
byrja Menningarnótt á heimsókn út
í Viðey sem ég hef ekki heimsótt í
háa herrans tíð?
Hvort heldur yrði fyrir valinu
myndi leið mín á endanum liggja
um Skólavörðustíg þar sem ég gæti
ekki staðist að líta stuttlega við í
Ostabúðinni til að stelast í smakk. Í
Nakta Apanum þykist ég nokkuð
viss um að komast í feitt: ungir
myndlistarmenn halda sýningu og
tónlist og gleði verður allan dag-
inn.
Á leiðinni niður í bæ myndi ég
líta við í Gallerí Fold við Rauð-
arárstíg þar sem dregið verður á
30 mínútna fresti í ókeypis lista-
verkahappdrætti. Ef ég hefði ekki
lukkuna með mér þar gæti ég vel
hugsað mér að bjóða í einhverja af
ljósmyndunum sem hafa verið til
sýnis á Lækjartorgi, Austurvelli og
Fógetagarðinum í sumar, og boðn-
ar verða upp kl. 16, 17 og 18. Ljós-
myndasafn Reykjavíkur og Morg-
unblaðið standa einnig fyrir
getraun og ratleik þar sem leita
þarf vísbendinga á úti-ljós-
myndasýningunni til að svara
spurningum sem birtast á baksíðu
Lesbókar á laugardaginn.
Mig hefur lengi langað að skoðaMyntsafn Seðlabankans, sem
opið verður almenningi til kl. 17,
og ég á líka enn eftir að líta á land-
námsskálann sem verður til sýnis
allan daginn. Sjóminjasafnið hef ég
sömuleiðis vanrækt alltof lengi, og
ef ég heimsæki safnið á réttum
tíma verður Raggi Bjarna á staðn-
um, syngjandi af stakri snilld.
Á leiðinni út á Sjóminjasafn
myndi ég að sjálfsögðu staldra við
hjá Guerilla Store þar sem verður
hátíðarstemmning og útimarkaður.
Og fyrst ég væri kominn á þessar
slóðir kemur ekki annað til greina
en að skoða nýjar vinnustofur SÍM
við Seljaveg 32, sem örugglega
verða iðandi af lífi.
Til að auka á leti mína tæki ég
síðan menningarstrætó frá Sjó-
minjasafninu alla leið austur að Ó.
Johnson & Kaaber húsinu en þar
verður heljarinnar sviðslistahátíð
allan daginn. Þaðan er ekki langur
gangur að Laugavegi 77 þar sem
„Hitt svið“ Landsbankans verður
með ungum og spennandi hljóm-
sveitum allan daginn.
Þá á ég enn eftir að skoða gaml-ar skipulagstillögur hjá Borg-
arskjalasafninu í Tryggvagötu,
upplifa alvöru Bollywoodstemmn-
ingu í Múltí, Ingólfsstræti 8, klappa
húsdýrunum sem verða á vappi í
Hallargarðinum við Fríkirkjuveg
11 og fylgjast með Tilfinningatorgi
við Víkurkirkjugarð.
Ef ég er heppinn rekst ég
kannski á víkinga í fullum her-
klæðum eða fæ að sjá karatekemp-
ur og skylmingakappa sýna listir
sínar á Austurvelli.
Svo verð ég hreinlega að líta við
í verslun Bláa Lónsins á Laugavegi
15 og fá handanudd og heilsute.
Norræna félagið í samstarfi við
Sænska félagið og Siggi Hall bjóða
til vatnakrabbaveislu við Óðinstorg
sem hljómar mjög freistandi.
Í Iðnó verða framhaldsskólanem-ar með fjölbreytta dagskrá, og
vil ég síst missa af ræðukeppninni
kl. 16.30 þar sem Gísli Marteinn,
Helgi Hjörvar og Oddný Sturlu-
dóttir etja kappi við úrvalslið
menntaskólanema. Steinsnar frá
Iðnó, í Tjarnarbíói, verða frum-
sýndar þrjár evrópskar verðlauna-
dansmyndir kl. 14 til 16.30, og end-
ursýndar í 12 Tónum á
Skólavörðustíg kl. 18 til 22. Örugg-
lega ekki amalegt að hvíla lúnar
lappir þar þegar líða tekur á dag-
inn. Eða kannski ég setjist niður
með Hugleik Dagssyni og læri að
teikna á örnámskeiðunum sem
hann verður með kl. 17 og 18 í
Hafnarhúsinu.
Það fer svo alfarið eftir skapihvað ég myndi vilja gera um
kvöldið: Kannski ég myndi dansa
salsa í Alþjóðahúsinu eða fara á
tónleika á Sirkús þar sem meðal
annars troða upp Mínus og Lang-
iseli og Skuggarnir. Mezzoforte
verða á aðalsviði Landsbankans í
Austurstræti kl. 21.30 og lofa
gömlu góðu smellunum í uppruna-
legum útsetningum.
En ef ég verð ekki í stuði fyrir
ærsl og læti er óvitlaust að fara á
tónleika Páls Óskars og Móníku í
Listasafni Einars Jónssonar eða
upplifa óperuveisluna sem verður á
Klambratúni kl. 20 til 21.30.
Kannski að ég gæti, úrvinda eftir
menningarmaraþon dagsins, komið
mér notalega fyrir í hengirúm-
unum, kominn aftur á byrjunarreit,
og látið stjörnulið íslenskra óp-
erusöngvara syngja mig í svefn.
Rumska svo við flugeldasýninguna
kl. 22.31, og hraða mér heim á und-
an öllum öðrum, svo ég losni við
umferðarteppuna. Og heima myndi
ég svo kúra undir hlýrri sæng, sof-
andi værum svefni hinna menning-
arsyndlausu.
Menningarnótt eftir mínu höfði
’Ég er örugglega ekkieinn um að vera latari en
ég myndi vilja vera að
njóta þeirrar menningar
sem boðið er upp á í
borginni hvunndags. Ég
sé því Menningarnótt
sumpart sem tækifæri til
menningarsyndaafláts.‘
Morgunblaðið/Þorkell
Raggi Bjarna mun syngja nokkur lög í Sjóminjasafninu.
asgeiri@mbl.is
AF LISTUM
Ásgeir Ingvarsson
Morgunblaðið/Ásdís
Hugleikur kennir fólki að teikna í Hafnarhúsinu.
Morgunblaðið/Golli
Hljómsveitin Mínus spilar á tónleikum á Sirkus á Menningarnótt.
www.menningarnott.is
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
eeee
P.B.B. DVCOLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
Það hefur ekki verið svikari í
leyniþjónustunni í 141 ár...
þangað til núna!
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
Miami Vice kl. 5, 8 og 10.50 B.i. 16 ára
Miami Vice LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
The Sentinel kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Ástríkur og Víkingarnir kl. 4 og 6
Silent Hill kl. 10 B.i. 16 ára
Over the Hedge m. ensku.tali kl. 4 og 8
Over the Hedge m.ísl.tali kl. 4 og 6
Stick It kl. 8 og 10.20
Miami Vice kl. 8 og 10.40 B.i. 16.ára.
The Sentinel kl. 8 og 10 B.i. 14.ára.
Ástríkur og Víkingarnir kl. 6.
Stormbreaker kl. 6
eee
“Látið ykkur líða vel,
fylgist með Douglas,
njótið gæða
framleiðslunnar og
vel upp byggðar og
linnulausrar
spennunnar”
S.V - MBL
eee
„Með þeim betri
glæpamyndum
sem sést hafa í
ágætan tíma“
Tommi - kvikmyndir.is