Morgunblaðið - 05.01.2007, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
föstudagur 5. 1. 2007
bílar mbl.isbílar
ÖNNUR KYNSLÓÐ BMW X5 REYNSLUEKIÐ Í AÞENU » 4
UM ÁRAMÓT
ER TILVALIÐ AÐ LÍTA YFIR FARINN VEG OG
BERA SAMAN NÝJA METHAFA OG GAMLA.
STUTTU eftir að nýi borgarjepp-
inn Quashquai kemur á markað í
Evrópu í vor kynnir Nissan enn
einn borgarjeppann. Sá kallast
Rogue og er blendingur af fólksbíl
og jeppa. Nafnið er dálítið sérstakt
því á ensku stendur það fyrir þrjót
eða þorpara. Rogue er mun nær
því að geta talist vera litli bróðir
sportjeppans Murano en X-Trail
og meiri blendingur af borgarbíl
og jeppa. Bílar af þessu tagi hafa
verið á markaði um nokkurra ára
skeið og líklega voru það Subaru-
menn sem fyrstir riðu á vaðið með
Forester. Blendingar borgarbíls
og jeppa eiga vaxandi vinsældum
að fagna, ekki síst í Bandaríkj-
unum, og þá einkum stærri gerðir
eins og Nissan Murano, Subaru
Tribeca og Mazda CX-7. Hyundai
mun einnig kynna sinn blending á
bílasýningunni í Detroit í janúar
sem kallast Veracruz.
Rogue er minni bíll en þeir sem
nefndir hafa verið í samanburði.
Hann er 4,58 cm á lengd og Nissan
vísar því á bug að hann eigi með
tíð og tíma að leysa X-Trail af
hólmi. Enda minna mjúkar línur
bílsins meira á nýlega bíla eins og
Hyundai Santa Fe en X-Trail.
Rogue verður boðinn í tveimur
gerðum, þ.e. Rogue S og Rogue
SL, og verða þær báðar með fjög-
urra strokka bensínvél, 2,5 lítra.
Þær skila 170 hestöflum og há-
markstog er 238 Nm. Hann verður
framleiddur framdrifinn og fjór-
hjóladrifinn og fáanlegur með
þreplausri CVT-reimskiptingu.
Bíllinn á að höfða til yngri kaup-
endahóps sem setur lífsstíl og ein-
staklingshyggju í fyrirrúm. Rogue
kemur í sölu í Bandaríkjunum í
september en óvíst er með öllu
hvort hann kemur á Evrópumark-
að. Þá verða Evrópubúar að láta
sér nægja Quashquai, sem sam-
kvæmt ljósmyndum virðist ekki
lakur kostur. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Ingvari Helgasyni hf.
hefur ekki verið ákveðið hvenær
sala hefst á Quashquai hérlendis.
„Það er þó hugsanlegt að við setj-
um hann á markað 4x4 með 140
hestafla bensínvél og CVT-
skiptingu í mars. Ennfremur kem-
ur til greina að við kynnum hann í
júlí og þá 4x4 með 150 hestafla 2,0
lítra díselvél með sex þrepa sjálf-
skiptingu. Nýi X-Trailinn kæmi
þar strax á eftir með sömu vél,“
segir Karl Steinar Óskarsson,
sölustjóri Nissan hjá Ingvari
Helgasyni.
Quashquai og Rogue
Rogue Ekkert þorparalegt við þennan laglega borgarjeppa.
Quashquai Íslendingar fá að kynnast honum strax í vor.
ENN eitt sölumet féll hjá Toyota
á Íslandi á árinu þegar samtals
seldust yfir 10.000 nýir og not-
aðir bílar á árinu. Vart þarf að
taka það fram að þetta er metár í
sögu fyrirtækisins. Á árinu voru
afhentir 5.444 nýir bílar, 5.285
frá Toyota og 159 frá Lexus. Sala
Toyota – Betri notaðra bíla var
rúmlega 4.600 og því fer heild-
arsalan fyrir árið yfir 10.000 bíla.
Þetta er það mesta sem fyr-
irtækið hefur nokkru sinni selt
og er jafnframt einsdæmi hér á
landi.
Toyota seldi
yfir 10.000
nýja og
notaða bíla
föstudagur 5. 1. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Eiður Smári og Arnór eru á feðgalistanum >> 4
ÓKEYPIS RÚTUFERÐ
EGGERT MAGNÚSSON BIÐUR STUÐNINGSMENN WEST
HAM AFSÖKUNAR Á 6:0 TAPINU FYRIR READING >> 2
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Nú sér fyrir endann á þessum
meiðslum og á mánudaginn heldur
hann í æfingaferð með Hannover-
liðinu til Mallorca og ef allt gengur
að óskum verður hann hugsanlega
klár í slaginn í fyrsta leik liðsins
eftir vetrarhléið en hinn 27. þessa
mánaðar sækir Hannover topplið
Werder Bremen heim.
Meiðsli á nára og hné
Gunnar Heiðar gekkst undir að-
gerð í nára í október og þegar
hann var rétt kominn af stað um
miðjan nóvember eftir aðgerðina
meiddist hann á hné og hefur verið
á sjúkralistanum síðan. Illa gekk
að fá greiningu á meiðslunum en
það var ekki fyrr en hann kom í
jólafrí til Íslands að úr því fékkst
skorið hvað var að angra hann í
hnénu.
,,Þetta er búið að taka mikið á
mig en ég er farinn að brosa á nýj-
an leik,“ sagði Gunnar Heiðar við
Morgunblaðið í gær.
Gunnar sagði að læknarnir í
Þýskalandi
hefðu talið að
beinmar og bein-
flís undir hné-
skelinni væri
vandamálið og
var hann með-
höndlaður eftir
því en í ljós kom
síðar að hann
fékk ekki rétta
greiningu á
meiðslunum og var því ekki með-
höndlaður á réttan hátt.
Allur að koma til
,,Ég fann ekki fyrir neinum bata
eftir þá meðhöndlun sem stóð yfir
í nokkrar vikur og þar sem fyr-
irséð var ég myndi ekki spila leik-
ina fyrir vetrarhléið tjáði ég for-
ráðamönnum liðsins að ég ætlaði
að leita til læknis á Íslandi. Ég fór
til Sveinbjörns Brandssonar og
hann var fljótur að átta sig á hvað
var að angra mig. Brjósk í hnénu
hafði skaddast og Sveinbjörn fyr-
irskipaði mér að hvíla mig og fá
síðan meðferð. Ég er núna allur að
koma til og ég mun hefja æfingar
að nýju í næstu viku þegar við
höldum til Mallorca,“ sagði Gunn-
ar og segist svekktur yfir því að
hafa ekki leitað til Sveinbjörns
fyrr.
Gunnar Heiðar hefur aðeins
komið við sögu í tveimur leikjum
Hannover á leiktíðinni en eftir 17
umferðir er liðið í 11. sæti af 18
liðum.
Sér fyrir end-
ann á meiðslum
Gunnars
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu og
leikmaður þýska 1. deildar liðsins
Hannover, sér fram á bjartari tíma
nú á nýju ári en frá því hann gekk í
raðir Hannover frá sænska liðinu
Halmstad síðastliðið sumar hefur
hann verið meira og minna frá
keppni vegna meiðsla.
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson
TVEIMUR íslenskum knatt-
spyrnumönnum hefur verið
boðið til sænska úrvalsdeild-
arliðsins GAIS í Gautaborg
til reynslu. Þetta eru þeir
Eyjólfur Héðinsson, leik-
maður úrvalsdeildarliðs
Fylkis, og Bjarni Hólm Að-
alsteinsson úr ÍBV. Eyjólf-
ur, sem er miðvallarleikmað-
ur, er 22 ára gamall og lék
fjóra leiki með 21 árs lands-
liðinu. Hann er samnings-
bundinn Árbæjarliðinu út
tímabilið 2008 en Eyjólfur
hefur verið í herbúðum
Fylkis frá árinu 2003 og hef-
ur leikið 53 leiki í efstu deild
og skorað tvö mörk.
Bjarni Hólm, sem er upp-
alinn hjá Hugin á Seyðisfirði
en hefur einnig leikið með
leikið með
öllum
yngri
landslið-
unum.
Með
GAIS,
sem varð í
10. sæti af
14 liðum í
sænskuEyjólfur Héðinsson
Eyjólfur og Bjarni
Hólm til GAIS í Svíþjóð
FORSVARSMENN NBA-
deildarinnar í körfuknattleik
hafa lagt af stað með metn-
aðarfulla áætlun þess efnis að
auka vinsældir íþróttarinnar
á Indlandi. Markmið NBA
eru skýr, körfuknattleikur á
að verða næstvinsælasta
íþróttagrein Indlands eftir 10
ár.
Krikket er vinsælasta
þjóðaknattspyrnusambandið,
hefur einnig hug á því að ná
betri fótfestu á Indlandi og á
dögunum gerði FIFA sam-
komulag við indverska knatt-
spyrnusambandið þess efnis
að efla innra starf þess og
auka útbreiðslu íþróttarinnar
í landinu.
NBA-deildin mun skipu-
leggja marga stóra viðburði á
verða æfingabúðir fyrir unga
leikmenn settar á laggirnar
víðsvegar um landið.
Á undanförnum þremur ár-
um hafa markaðssérfræðing-
ar á vegum NBA gert margar
kannanir á Indlandi og telja
þeir að gríðarlegir mögu-
leikar séu fyrir íþróttina í
landinu sem er næstfjölmenn-
asta þjóð í heimi.
NBA og FIFA herja á
markaðinn í Indlandi
Morgunblaðið/ÞÖK
Grannaslagur Friðrik Hreinsson leikmaður Hamars/Selfoss fagnaði sigri gegn Þór frá Þorlákshöfn í Iceland-
Express deild karla í gær. Fjórir leikir fóru fram í gær þar sem KR lagði Snæfell á útivelli. B/2-3
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Daglegt líf 24/29
Staksteinar 8 Forystugrein 30
Veður 8 Umræðan 32/33
Úr verinu 14 Minningar 34/45
Viðskipti 16/17 Leikhús 50
Erlent 18/19 Myndasögur 52
Menning 20/21, 48/52 Dagbók 53/57
Höfuðborgin 22 Staður og stund 54
Akureyri 22 Bíó 54/57
Suðurnes 23 Víkverji 56
Austurland 23 Ljósvakamiðlar 58
* * *
Innlent
Samkvæmt rekstraráætlun
Landspítala – háskólasjúkrahúss
var á síðasta ári gert ráð fyrir að
kostnaður við S-merkt lyf yrði um
1,7 milljarðar króna á verðlagi árs-
ins 2007. Samkvæmt áætluðum
rekstrarniðurstöðum ársins mun
kostnaður við lyfin hins vegar nema
rúmum 1,9 milljörðum króna.
» Miðopna
Ökumenn sem vitni urðu að bíl-
veltu sl. miðvikudag við golfvöllinn í
Borgarnesi stoppuðu ekki til að at-
huga með líðan þeirra sem í bifreið-
inni voru, þrátt fyrir að slíkt sé skylt
samkvæmt umferðarlögum. Bifreið-
in fór tvær veltur utan vegar eftir að
ökumaður missti stjórn á henni í
hálku. » Baksíða
Rannsókn á tilraun til smygls á
um tveimur kílóum af kókaíni sl.
sumar leiddi lögreglu á spor íslensks
manns sem flúði land til að komast
hjá því afplána fangelsisdóm sem
hann hlaut vegna nauðgunarmáls ár-
ið 2004. Talið er að maðurinn sé höf-
uðpaurinn í fíkniefnamálinu og er
hann eftirlýstur af Interpol.
» Forsíða
Erlent
Að minnsta kosti fjórir menn
biðu bana og yfir 20 særðust þegar
ísraelskt herlið réðst inn í borgina
Ramallah á Vesturbakkanum í gær.
Ísraelsk sjónvarpsstöð hermdi í gær
að Ehud Olmert forsætisráðherra
hefði ákveðið að víkja Amir Peretz
úr embætti varnarmálaráðherra.
Talsmenn Olmerts vísuðu þessu hins
vegar á bug. » 18
Louise Arbour, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, skor-
aði í gær á stjórnvöld í Írak að taka
ekki tvo gamla samstarfsmenn
Saddams Husseins af lífi. » 18
John Negroponte, yfirmaður
leyniþjónustustofnana Bandaríkj-
anna, mun segja sig frá því starfi til
að verða næstráðandi í utanrík-
isráðuneytinu. » 19
Demókratinn Nancy Pelosi varð í
gær ein valdamesta kona sögunnar
þegar hún varð fyrst kvenna forseti
fulltrúadeildarinnar á Bandaríkja-
þingi, eftir að 233 þingmenn af 435
staðfestu kjör hennar í embættið.
» Forsíða
Viðskipti
Citygroup, stærsti banki heims,
mælir með kaupum á bréfum Kaup-
þings í nýju verðmati sínu. Verðmat-
ið er það fyrsta sem Citygroup gerir
á íslenskum banka og telja sérfræð-
ingar bankans virði Kaupþings
verða á bilinu 1.000 til 1.036 krónur á
hlut. » 16
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„VIÐ fáum í kringum fjórar millj-
ónir viðskiptavina í viku hverri og
jafnvel þó að aðeins nokkur þúsund
hætti að koma til okkar vegna and-
stöðu við hvalveiðar þá mun það
kosta sitt,“ segir Malcolm Walker,
forstjóri bresku verslunarkeðjunnar
Iceland sem er í eigu Baugs Group
og fleiri íslenskra fjárfesta. Walker
hrósar Baugi fyrir að gefa út yf-
irlýsingu þess efnis að fyrirtækið
lýsi yfir andstöðu við hvalveiðar Ís-
lendinga og segir það eiga eftir að
koma fyrirtækjum þess í Bretlandi
til góða.
Walker minnist þess að þegar
umhverfissamtök og þrýstihópar
hófu herferð gegn hvalveiðum Ís-
lendinga í vísindaskyni hafi Iceland
átt undir högg að sækja. „Við feng-
um mikinn fjölda mótmælabréfa,
mörg hver ansi harðorð, frá fólki
sem hélt að fyrirtækið væri ein-
hvern veginn tengt landinu. Ég
skrifaði öllum til baka og útskýrði
að nafn fyrirtækisins tengdist ekki
hvalveiðiþjóðinni á neinn hátt, auk
þess sem Iceland væri sjálft á móti
hvalveiðum,“ segir Walker og bætir
við að þau rök gangi vart í þetta
skiptið.
Umhverfismál ofarlega á baugi
Aðspurður hvort hvalveiðar Ís-
lendinga hafi haft áhrif á sölu hjá
Iceland segir Walker engin slík
áhrif merkjanleg enn sem komið sé.
Hann er hins vegar viss um að nei-
kvæðra áhrifa muni gæta, ekki síst
þar sem umhverfismál séu ofarlega
á baugi hjá Bretum um þessar
mundir. „Á síðustu árum hefur orð-
ið mikil vitundarvakning hjá al-
menningi vegna umhverfismála,
hvort sem það er útblástur gróð-
urhúsaloftegunda eða hvað annað
sem viðkemur náttúrunni.“ Walker
telur ekki að málið muni fjara út
með tímanum og segir breskan al-
menning ekki hlusta á rök íslenskra
stjórnvalda um sjálfbærar hvalveið-
ar.
Baugur Group sendi í miðri viku
frá sér yfirlýsingu þar sem fyrir-
tækið lýsir andstöðu sinni við hval-
veiðar Íslendinga. Er það m.a. gert
vegna hótana þrýstihópa um að
hætta að versla við fyrirtæki í ís-
lenskri eigu. Walker segir Baug
munu öðlast mikla viðskiptavild hjá
Bretum með yfirlýsingunni en óvíst
sé hvort hún dugi ein og sér.
Bréf til forsætisráðherra
Hundruð bréfa hafa borist Ice-
land á undanförnum mánuðum og
þar segjast margir viðskiptavinir
ekki ætla að versla við keðjuna aft-
ur. Sjálfur segist Walker ætla að
rita bréf til Geirs H. Haarde for-
sætisráðherra þar sem hann muni
skýra stöðu fyrirtækisins.
Hlusta ekki á rök stjórnvalda
Forstjóri Iceland fær hundruð mót-
mælabréfa vegna hvalveiða Íslendinga
Morgunblaðið/Agnes Bragadóttir
Hvalveiðar Malcolm Walker varar
við afleiðingum hvalveiða.
HAPPDRÆTTI Háskóla Íslands
telur að deila um staðsetningu og
rekstur spilasalar í Mjódd sé komin í
réttan farveg eftir fund borgarstjóra
og fyrirsvarsmanna happdrættisins í
gær. Á fundinum kom fram að fyr-
irhugað væri að ræða við Háspennu
ehf., sem rekur spilasali, og kanna
hvort finna mætti lausn á málinu en
að öðrum kosti hefðu borgaryfirvöld
til athugunar að breyta gildandi
skipulagi fyrir Mjódd.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá HHÍ. Í tilkynningunni er
bent á að borgaryfirvöld hafi það í
hendi sér hvar starfsemi eins og
rekstur spilasala fari fram, eins og
komi fram í yfirlýsingu borgarstjóra
frá því fyrr í vikunni.
Löglegur rekstur
„Það er því vert að benda á að
samkvæmt gildandi skipulagi borg-
aryfirvalda um Mjódd er leyfilegt að
reka spilasal þar. Sá fyrirhugaði
rekstur spilasalar sem fyrirtækið
Háspenna ehf. hefur í hyggju að
reka þar er því löglegur og í sam-
ræmi við gildandi skipulagsákvarð-
anir borgaryfirvalda og hefur hlotið
öll tilskilin leyfi frá borgaryfirvöld-
um til rekstrarins. Í þessu ljósi kem-
ur á óvart að borgaryfirvöld séu
óánægð með staðsetningu þessa fyr-
irhugaða reksturs. Þá vekur það
undrun að borgaryfirvöld hafa beint
spjótum sínum í fjölmiðlum að
Happdrætti Háskóla Íslands sem í
einu og öllu hefur farið að lögum og
hefur gætt þess að happdrættisvél-
arnar séu ekki á öðrum stöðum en
samrýmist löglegum skipulags-
ákvörðunum borgaryfirvalda á
hverjum tíma,“ segir síðan í tilkynn-
ingunni frá HHÍ.
Þá segir að á fundinum með borg-
arstjóra hafi komið fram að ræða
eigi við forsvarsmenn Háspennu og
athuga hvort finna megi lausn. „Að
öðrum kosti hefðu borgaryfirvöld
það til athugunar að breyta gildandi
skipulagi fyrir Mjódd. Að þessu at-
huguðu telur Happdrætti Háskóla
Íslands að málið sé komið í réttan
farveg og vonast til að á því finnist
lausn sem sátt verður um.“
Deilan um spilasal í Mjódd
komin í réttan farveg
Í HNOTSKURN
» Borgarstjóri og forsvars-menn Happdrættis Há-
skóla Íslands hafa deilt um
rekstur spilasalar í Mjódd þar
sem áður var áfengisútsala.
» Ágóði af rekstri happ-drættisins og spilasala
rennur til starfsemi Háskóla
Íslands.
LÖGREGLUSTJÓRINN á höfuðborgarsvæðinu, Stefán
Eiríksson, fékk í gær í hendur merktan lögreglubíl sem
hann mun aka á þegar hann er í embættiserindum. Bíll-
inn er af gerðinni Subaru Legacy, en þetta er liður í að
auka sýnilega löggæslu. Á næstunni verður merktum
bílum lögreglunnar fjölgað, í samræmi við stefnu um
að auka sýnileika lögreglunnar. Um er að ræða minni
fólksbíla sem verða með lágmarksbúnaði. Lögreglu-
menn sem eru að sinna löggæsluerindum verða fram-
vegis meira á merktum bílum en ómerktum.
Morgunblaðið/Júlíus
Merktur bíll fyrir lögreglustjórann
VEGAGERÐIN íhugar nú hvort
ekki eigi að setja rækilegri merking-
ar við Kjalveg þar sem varað er við
því að vegurinn sé ófær. Tilefnið er
ferðalag erlendra ferðamanna á
smájeppa sem ætluðu einbíla yfir
Kjöl á miðvikudagsmorgun. Festu
þeir bílinn norðan Bláfellsháls en
gátu látið lögreglu vita.
Vegagerðin segir að ekki eigi að
fara framhjá vegfarendum skilti við
þjónustumiðstöðina við Gullfoss þar
sem sagt sé á ensku og íslensku að
Kjalvegur sé ófær. Vandinn snúist
e.t.v. um það að fyrsti spottinn inn að
Sandá sé orðinn það góður að fólki
þyki ótrúlegt að slíkur vegur sé í
framhaldinu ófær þegar það aki
framhjá skiltinu. Fólk aki áfram í
góðri trú um að aðstæður muni ekki
versna eins og raunin sé. Það sé því
umhugsunarefni hvort merkja eigi
Kjalveg innar.
Meiri merk-
ingar við
Kjalveg?