Morgunblaðið - 27.09.2007, Page 21

Morgunblaðið - 27.09.2007, Page 21
|fimmtudagur|27. 9. 2007| mbl.is daglegtlíf Með auknum valmöguleikum sem nú orðið bjóðast í flugi þurfa ferðalangar aukna fræðslu og betri undirbúning. » 22 neytendur Íslendingar opnuðu nýlega veit- ingastað í London sem hlaut góðar viðtökur hjá gagnrýn- anda Evening Standard. » 26 veitingastaðir Knattspyrnudeild Þórs á Ak- ureyri var um helgina valin fyr- irmyndardeild innan Íþrótta- sambands Íslands. » 26 bæjarlífið Það var eftir svakalega malaríu í Kongó sem hugmyndin kvikn- aði hjá Borgari Þorsteinssyni að stofna safarí-fyrirtæki. » 24 ferðalög Mikið ber á kjötmeti alls konar í helgartilboðunum sem mat- vöruverslanir senda frá sér að þessu sinni. » 24 helgartilboðin Afi minn spurði mig hvort ég væri ekkiaðeins of ung til að ganga með stafiþegar ég sagði honum að ég væri aðfara til Noregs til að læra staf- göngu,“ segir Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðs- stjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, en hún ætl- ar á laugardaginn ásamt fjölmörgum öðrum stafgöngukennurum að kynna landanum staf- göngu. „Afi minn er ekki einn um að halda að stafganga sé aðeins fyrir gamalt fólk, sumir þeirra sem hafa verið á námskeiði hjá mér tala um það í byrjun að þeir séu svolítið feimnir við að láta sjá sig á stafgöngu í hverfinu heima hjá sér. Þeim finnst það svolítið hallærislegt. En svo hverfur þessi spéhræðsla alveg og eftir því sem stafganga hefur breiðst út, því minna er um fordóma. Þetta er íþrótt fyrir fólk á öllum aldri og meira að segja líka fyrir börn. Stóri kosturinn við stafgöngu er að hún þjálfar allan líkamann, ólíkt því sem gerist til dæmis á göngu með enga stafi. Vöðvar efri hluta lík- amans eru notaðir og blóðflæði eykst til axla- svæðis og háls, sem gerir það að verkum að þetta svínvirkar á vöðvabólgu kyrrsetufólks sem vinnur við tölvur.“ Jóna segir að áríðandi sé að beita stöfunum rétt, því ef fólk geri það ekki sé hætta á að það stífni upp í höndum og öxlum. „Fólk þarf að halla sér aðeins fram á stafina og láta þá halla aftur og þeir mega alls ekki vera lóðréttir. Taka á stærri skref en venjulega og rúlla sér vel upp á tærnar til að nýta vöðvana í fótunum vel. Eins er gott að vinda upp á búkinn og fá snúning sem þjálfar mittisvöðvana og grind- arbotninn. Við þetta verður göngulagið ekki svo ólíkt því sem John Travolta stundaði í kvikmyndinni Saturday Night Fever. En það er ekkert nema skemmtilegt að ganga eins og hann.“ Jóna segir að það sé líka hægt að hlaupa með stafina, nota þá í styrktaræfingum, teygjuæfingum og fleira. „Þá er líka hægt að nota í fjallgöngum, sérstaklega ef fólk er með þungan poka á baki. Þá er hægt að dreifa þunganum og í stað þess að setja allt álagið á fæturna þá er hægt að setja það líka á hendur og fólk verður í raun eins og ferfætlingar.“ Jóna hefur stundað stafgöngu í fjögur ár eða frá því hún fór til Noregs til að kynna sér þessa heilsubót. „Síðan tók ég leiðbeinenda- próf hjá finnskum þjálfurum sem komu hingað til lands, en þetta er upprunnið þar í landi, því þar notuðu gönguskíðagarpar þetta til að halda efri búk sínum í þjálfun á sumrin.“ Jóna hefur í þessi fjögur á verið með námskeið í stafgöngu í Laugardalnum, bæði fyrir byrj- endur og lengra komna en hún segir það taka nokkur skipti að ná tökum á tækninni. „Allir geta komið á sínum forsendum og enginn þarf að halda takti við einhverja tónlist heldur get- ur hver og einn gengið á sínum takti. Staf- ganga er mjög góð fyrir eldra fólk sem er kannski orðið hokið, því þá réttir það betur úr sér og öndunin verður greiðari og því finnst góður stuðningur í stöfunum.“ Stafgöngudagur ÍSÍ þetta árið er í sam- vinnu við Beinvernd, en hreyfing er ein mik- ilvægasta forvörn gegn beinþynningu. Morgunblaðið/Golli Hressandi Jóna segist endurnýjast við stafgöngu í lok vinnudags og útiveran frískandi. Stafganga með Travoltastíl Ef rétt er með farið er hægt að þjálfa líkamann heilmikið með staf- göngu. Auk þess má hafa mikla skemmtan af því að stæla göngulag töffarans Travolta í Saturday Night Fever. Kristín Heiða Krist- insdóttir hitti stafgöngukonu í Laugardalnum og fékk að prófa. Upp á tá Halla á líkamanum örlítið fram á við og færa þannig þunga hans yfir á stafina. Stinga staf í jörð á móts við gagnstæðan hæl. Stór skref Axlir skulu vera afslapp- aðar og armsveifla eðlileg. Stafir sveiflist óhindrað. Stika skal stórum þegar stafganga er stunduð. Opna lófann Áður en framsveifla hefst skal opna lófann. Sérhann- aðar ólar verða til að stafur fylgir sveiflu arma.  Virkjar og styrkir efri hluta líkamans.  Eykur hreyfigetu í axlarliðum.  Styrkir vöðva í kviði, rassi, lærum, kálf- um, öxlum, brjósti, upphandleggjum og baki.  Eykur blóðflæðið og losar um spennu í hálsi, herðum og baki.  Með hjálp stafanna virkjast efri hluti lík- amans og þar með dregur úr álagi á mjaðmir, hné og ökkla. Liðirnir þjálfast í að þola álag án þess að of mikið sé á þá lagt.  Brennslan er 20% meiri en í venjulegri göngu án stafa.  Hjartsláttur verður að meðaltali um 16% hraðari eða sem nemur um 5-20 slögum á mínútu.  40% meiri styrktaraukning verður í efri hluta líkamans miðað við venjulega göngu.  Súrefnisupptaka eykst um allt að 46%. Áhrif stafgöngu: Vika á Spáni 13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Huyndai Getz eða sambærilegur 522 44 00 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta frá ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 3 69 19 0 9/ 07

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.