Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í LJÓSI um- ræðna um um- hverfismat nýrra virkjana Orku- veitu Reykjavík- ur undir Hvera- hlíð og í Bitru hefur fyrirtækið ákveðið að bjóða til nýs kynning- arfundar um fyrirhugaðar fram- kvæmdir. Einungis einn gestur mætti á fund sem auglýstur var í blöðum og haldinn í höfuðstöðvum OR 3. október sl. Nýr fundur verður haldinn þriðjudaginn 6. nóvember kl. 17 á Bæjarhálsi 1. Frummatsskýrslur vegna framkvæmdanna eru m.a. aðgengilegar á vef Orkuveitunnar á slóðinni http://www.or.is/ Forsida/Frodleikur/Skyrslurum- umhverfismal. Nýr kynning- arfundur, einn á fyrri fundi STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur féllst á þriðjudag á málaleitan Far- ice og ríkisstjórnarinnar um að taka þátt í fjármögnun nýs sæ- strengs sem efli fjarskiptaöryggi. Hagsmunir Orkuveitunnar og annarra orkufyrirtækja sem að málinu koma felast í því að nýr sæ- strengur mun auðvelda netþjóna- búum, sem falast hafa eftir orku- kaupum hér á landi, að hasla sér völl, segir í tilkynningu. OR mun leggja 500 milljónir sem hlutafé til verkefnisins og sama fjárhæð mun koma frá Landsvirkjun og Hita- veitu Suðurnesja. Ríkissjóður legg- ur einnig fram nýtt hlutafé. OR með 500 millj. í Farice BARNASPÍTALI Hringsins er 50 ára í ár. Í tilefni af afmælinu er efnt til málþings í Hringsal við Barnaspítala Hringsins í dag, fimmtudaginn 1. nóvember, kl. 9 til 16. Kynnt verða brot úr starfseminni, árangur og þróun þjónustunnar. Margir at- hyglisverðir fyrirlestrar verða fluttir. Hátíðardagskrá verður síðan á morgun, föstudaginn 2. nóvember, í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, kl. 13.30 til 16. Í fjölbreyttri dag- skrá verður m.a. farið yfir sögu Barnaspítalans. Málþing og hátíðardagskrá MINNINGARFYRIRLESTUR Vil- hjálms Stefánssonar 2007 verður haldinn 7. nóvember. Að þessu sinni flytur dr. Astrid Ogilvie, veðurfars- sagnfræðingur við Institute of Arctic and Alpine Rese- arch í Boulder, Colorado, fyrirlest- urinn. Efnið er loftslag, saga og mannvistfræði á norðanverðu Íslandi í ljósi þverfag- legra rannsókna. Nánari upplýs- ingar um Astrid og hennar verk er að finna á slóðinni http://insta- ar.colorado.edu/people/bios/ ogilvie.html. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar boðar að venju til fyrirlestursins og að þessu sinni í samstarfi við Há- skólann á Akureyri og RANNÍS. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.15 í stofu L201 í húsnæði Háskólans á Ak- ureyri á Sólborg og eru allir vel- komnir. Erindi í minn- ingu Vilhjálms Vilhjálmur Stefánsson NOKKRIR núverandi og fyrrver- andi starfsmenn Bónuss, Hagkaupa og Krónunnar hafa greint frétta- mönnum á fréttastofu Ríkisútvarps- ins frá því að verð í búðunum sé lækkað þegar verðkannanir fara fram. Einnig segja starfsmenn að samstarf sé á milli fyrirtækjanna um vöruverð. Forsvarsmenn verslana- keðjanna hafa alfarið neitað þessu. Útvarpið greindi fyrst frá málinu í hádegisfréttum í gær. Þar kom fram að fyrrverandi starfsmaður hjá ann- arri af stóru lágvöruverðskeðjunum, þ.e. Bónus eða Krónunni, hefði greint fréttastofu frá því að Bónus og Krónan hefðu í kjölfar verðstríðs vorið 2005, gert með sér munnlegt samkomulag þess eðlis að sambæri- legar vörur hækkuðu samtímis hjá báðum keðjunum og að verð á þeim vörum sem eru á boðstólum í báðum verslununum væri í flestum tilfellum einni krónu lægra í Bónus. Einnig að verð væri hækkað seinnipart dags og um helgar þegar skrifstofa Al- þýðusambands Íslands er lokuð en eins og kunnugt er gerir ASÍ reglu- lega verðkannanir á matvörumark- aði. „Verðkannanakjöt“ Eftir því sem leið á daginn höfðu fleiri starfsmenn verslananna sam- band við fréttastofuna og staðfestu það sem kom fram í hádegisfréttum. Einn þeirra sagði að verðkannanir væru brandari í sjálfu sér. Keypt væri sérstakt „verðkannanakjöt“ sem væri geymt í kössum í geymslu eða í botninum á kjötkælum. Einn þeirra heimildarmanna sem Ríkisútvarpið ræddi við sagði frá því að verðmiðar væru teknir hjá ann- arri keðjunni og komið í hendurnar á starfsmönnum hinnar. Einnig kom fram hjá heimildarmönnum að verð- ið væri lækkað síðdegis og um helg- ar þegar ekki væri von á fólki frá ASÍ til að gera verðkannanir. Enginn þessara starfsmanna vildi koma fram undir nafni og sögðust þeir óttast viðbrögð yfirmanna sinna, núverandi og fyrrverandi. Fréttamannaverð í Krónunni? Í fyrradag, daginn áður en frétta- flutningur af málinu hófst, höfðu tveir fréttamenn farið í verslanir Bónuss og Krónunnar og kom fram í fréttum að þeir hefðu sannreynt margt af því sem starfsmennirnir sögðu frá. Fyrst fóru þeir á vettvang sem „óbreyttar húsmæður“ og kynntu sér verð á nokkrum vörutegundum. Í öllum tilvikum var verð á pakka- vörum krónu lægra í Bónus, eins og heimildarmenn sögðu að væri sam- starf um, auk þess sem kílóverð á kjöti var lægra þar. Hálftíma síðar höfðu þeir vistaskipti, þ.e. sá sem fór í Bónus fór nú í Krónuna. Í það skiptið kynntu þeir sig sem frétta- menn sem vildu kanna vöruverð. Sama verð var á vörunum í Bónus hvort sem húsmóðirin eða frétta- maðurinn keyptu inn. Verðið í Krón- unni hafði á hinn bóginn lækkað um- talsvert. „Á þeim hálftíma sem leið milli ferða húsmóðurinnar og frétta- mannsins í Krónuna lækkaði kíló- verð á kjúklingabringu um 34% auk þess sem afsláttur við kassa var 50% í stað 10% hálftíma áður. Afsláttur á nautahakki jókst einnig úr 15% í 30% á þessum hálftíma,“ sagði Guð- rún Frímannsdóttir, fréttamaður Ríkisútvarpsins í kvöldfréttum. Allir starfsmenn, núverandi og fyrrver- andi, hefðu staðfest að verð væri lækkað meðan kannanir fara fram. Bæði Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, og Krist- inn Skúlason, rekstrarstjóri Krón- unnar, neituðu þessum ásökunum í viðtölum við Ríkisútvarpið í gær. Kristinn var spurður hvernig hann gæti útskýrt að „óbreytt hús- móðir“ fengi kíló af kjúklingabring- um á 2.500 krónur, auk 10% afsláttar við kassa, en þegar húsmóðir kynnti sig sem fréttamann hefði starfsmað- ur Krónunnar fundið kjúklinga- bringur á kílóverðinu 1.875 krónur og þar að auki hefði verið veittur 50% afsláttur við kassa. Þessu svaraði Kristinn svona: „Þú sem viðskiptavinur kemur kannski að borðinu og þú sérð í 90% fram- stillingu eru kjúklingabringur sem eru merktar frá Móum á þessu [verði, 2.500 krónur] sem þú varst að tala um. Síðan látum við framleiða fyrir okkur, vikulega, kjúklinga- bringur sem eru merktar Krónunni á þessu verði [1.875 krónur]. Það er ekki það mikið magn sem við fáum þannig að það er kannski ekki mjög sýnilegt fyrir viðskiptavininn nema hann leiti sér upplýsinga um það.“ Aðspurður hvort þetta væri ekki óheiðarlegt, að draga vöruna fram þegar ljóst væri að verðkönnun stæði yfir neitaði hann því og sagði að varan væri sýnileg og til í versl- uninni. Fréttamaður benti honum þá á að varan hefði ekki verið sýnileg, tals- vert hefði verið leitað eftir ódýrari kjúklingabringum en þær ekki fund- ist. Þegar fréttamaðurinn hefði kynnt sig sem slíkan hefði starfs- maður Krónunnar fundið bringurn- ar en við leitina stóð „hann nánast á haus ofan í kælidisknum, leitaði og gróf og fann tvo pakka sem voru ódýrari,“ sagði Guðrún Frímanns- dóttir, fréttamaður. Hún spurði líka hvort viðskiptavinir sem vildu fá ódýrustu vöruna yrðu að kalla eftir starfsmanni og óska sérstaklega eft- ir henni. Því neitaði Kristinn og sagði að í flestum tilvikum væri búð- in með mikla og góða framstillingu á vörum sínum. „En alltaf er einhver undantekning á vörum sem þú getur fundið á hrikalega lágu verði sem kannski er ekki raunhæft að sé markaðverð,“ sagði hann. Fari til samkeppnisstofnunar Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, sagði að- spurður að Bónus svindlaði hvorki í verðkönnunum né stundaði Bónus samráð. „Við trúum því og treystum að ef menn hafa rangt við, þá fá menn það í bakið seinna meir. Við stundum ekki svoleiðis vinnubrögð,“ sagði hann. Hann hvatti alla sem teldu sig hafa upplýsingar um annað til að snúa sér til Samkeppnisstofn- unar. „Bónus hefur ekkert að fela.“ Svindla í verðkönnunum? Morgunblaðið/ÞÖK Geymt Einn viðmælenda RÚV sagði að keypt væri sérstakt „verðkann- anakjöt“ sem væri geymt í kössum í geymslu eða í botninum á kjötkælum. Í HNOTSKURN » Heimildarmenn Rík-isútvarpsins hafa sagt frá því að Bónus og Krónan hafi gert með sér munnlegt sam- komulag í kjölfar verðstríðs- ins vorið 2005 um að hafa sam- ráð um verð á tiltekinni vöru. » Þessir heimildarmenn erufyrrverandi og núverandi starfsmenn þessara lág- vöruverðskeðja. » Þeir sögðu einnig frá þvíað þegar ASÍ gerði verð- kannanir væri verðið lækkað. » Þegar óbreytt húsmóðirhafði kynnt sig sem frétta- mann lækkaði verðið í Krón- unni en breyttist ekki í Bónus. » Í Krónunni hrapaði verð ákjúklingabringum.  RÚV greinir frá meintu ólöglegu samráði í verslunum og svindli í verðkönn- unum  Verðið lækkaði í Krónunni þegar húsmóðir kynnti sig sem fréttamann GYLFI Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Al- þýðusambands Ís- lands, segir að þær ásakanir sem fram komu í Ríkisútvarpinu í garð Bónuss, Hag- kaupa og Krónunnar séu gríðarlega alvar- legar. Ólöglegt verð- samráð sé alvarlegasta brotið á samkeppnislöggjöfinni og ásakanirnar hljóti að kalla á rann- sókn samkeppnisyfirvalda. Varðandi hinn hluta ásakananna, að blekk- ingum sé beitt gagnvart verðlagseft- irliti ASÍ, segir Gylfi að þótt hann sé ekki viss um að það sé beinlínis ólög- legt hljóti það sömuleiðis að teljast gríðarlega alvarlegt. Gylfi segir að til skamms tíma hafi verslanakeðjurnar borið hvor á aðra að blekkingum væri beitt í könn- unum. Í samkomulagi sem hafi verið gert við verslanirnar sé klárt að bannað sé að breyta verðlagningu meðan á verðkönnun stendur. Verð- lagseftirlitið byggist á samstarfi og trausti milli aðila og ASÍ reyni eftir megni að koma í veg fyrir blekkingar. „En við getum ekki útilokað að það sé hægt að blekkja okkur frekar en aðra,“ segir Gylfi. Þegar ASÍ gerir verðkönnun láta starfsmenn þess vita af komu sinni. Gylfi segir að þetta sé gert til þess að réttu verðin séu skráð niður. „Þetta byggist á trausti milli aðila um að menn séu að vinna þetta af heið- arleika. Ég verð að viðurkenna það, að ef þetta er satt sem fullyrt er, þá verður Alþýðusambandið að endur- skoða frá grunni alla sína aðkomu að þessu,“ segir hann. ASÍ tekur niður verð í hillu en ekki kassaverð og hef- ur ekki gert kannanir þar sem verð- merkingar eru rafrænar. Eftirlitið hefur byggst á samstarfi og trausti Gylfi Arn- björnsson HAGAR hf., sem reka verslanir Bónuss, Hagkaupa og 10-11, sendu í gær frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem þeim ásökunum sem fram komu í RÚV í gær, bæði í fréttum og í síðdegisútvarpi, er alfarið hafnað. „Hér er um að ræða alvarlega aðför að orðspori fyrirtækisins og æru starfsmanna þess. Undir henni verður ekki setið þegjandi og munu Hagar hf. íhuga rétt- arstöðu sína vegna þessa. Bónus hefur frá upphafi verið leiðandi hér á landi í sölu mat- væla til almennings á lágu verði. Aldrei frá stofnun félagsins og til dagsins í dag hefur átt sér stað samráð við keppinauta á markaði. Hið sama gildir um aðrar versl- anir Haga hf.,“ segir í tilkynning- unni. Hagar íhuga réttarstöðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.