Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ver ð aðeins 600 kr. SÍ ÐU ST U SÝ N. Ver ð aðeins 300 kr. - Kauptu bíómiðann á netinu - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Dark is Rising kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Resident Evil kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Superbad kl. 5:30 B.i. 12 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (300 kr.) Eastern Promises kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Resident Evil kl. 10:10 Síðustu sýn. B.i. 16 ára Heartbreak Kid kl. 6 - 8 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 6 Síðustu sýn. B.i. 14 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 Dark is Rising kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára 4 Months Enskur texti kl. 8 B.i. 12 ára The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 B.i. 12 ára Halloween kl. 10:20 B.i. 16 ára Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Brjálæðislega fyndin mynd!! Frá gaurnum sem færði okkur The 40 Year Old Virgin og Knocked Up - J.I.S., FILM.IS- LIB, Topp5.is DÓMSDAGURDJÖFULSINS! FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS! eee Dóri DNA - DV STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM "THERE´S SOMETHING ABOUT MARY" Þriðji hlutinn í fram- tíðartryllinum með Millu Jovovich í toppformi! Las Vegas er HORFIN... Jörðin er næst! FRÁ LEIKSTJÓRANUM DAVID CRONEBERG ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Mbl. eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið Hann þarf að finna sex falda töfragripi á aðeins fimm dögum... til að bjarga heiminum frá tortímingu! Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon. TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG þetta sé eintómt grallaragrín hjá okkur en því fer fjarri. Vissulega er þetta skemmtilegt og fjörugt en við leggjum metnað og elju í þetta. Hebbi var ekkert að grínast með þennan kántríáhuga sinn og eins er Biggi algjör kántríbolti. Og nú er búið að kristna mig. Við erum svo að plana næstu útrás, en Dark Horse hljóðverið verður sótt heim aftur eftir áramót og við ætlum að leika á stærstu kántríhátíðinni í Nashville næsta sumar.“ Á téðu balli munu Klaufar troða upp en einnig Birgitta Haukdal (Gitta Hau) og Tamra Rosanes, skærasta kántrístjarna Danmerkur. HALLBJÖRN Hjartarson sagði eitt sinn við grein- arhöfund að á endanum myndi kántríið sigra og verða vinsælasta tónlist á jarðríki. Ég tók orðum meistar- ans með hæfilegum fyrirvara en þróun undanfarinna ára – hérlendis a.m.k. – fer langt með að renna stoð- um undir kenninguna. Brimkló, Baggalútur, Sviðin jörð, Hanoi Jane og Föllnu englarnir; allt saman ís- lenskar sveitir sem eru að umfaðma kántríið og svo eru það Klaufar, en útgáfa hennar á Stuðmannalaginu „Búkalú“ var spilað í hengla á Rás 2 í sumar. Fyrsta plata sveitarinnar, Hamingjan er björt var þá tekin upp í Nashville fyrr á þessu ári og er komin í gull- sölu. Kúrekar úr 101 Reykjavík Á myspace-síðu Klaufanna kemur þessi hófstillta setning fyrir: „Við erum úr sveit. Því ekki að spila sveitatónlist?“. Meðlimir sveitarinnar eiga sér allir nokkra forsögu í íslensku tónlistarlífi, en Klaufarnir eru þeir Birgir Nielsen (Land og synir), bræðurnir Herbert og Leifur Viðarssynir (Skítamórall og Moon- styx) og Guðmundur Annas Árnason (Soma, Stolið). Sá síðastnefndi ræddi við blaðamann um þessa ferð þeirra um gresjurnar. „Ég hef alltaf verið mikil 101-rotta en fyrir ca. tveimur árum flutti ég til Selfoss en þaðan er konan mín,“ segir hann. „Þar kynntist ég Hebba og hann var mikið að pæla í kántríi og var sí og æ að fitla við banjóið sitt. Hann smitaði mig fljótlega og við byrj- uðum bara tveir, með gítar og banjó. Þegar Birgir og Leifur slógust í hópinn fóru hlutirnir svo að gerast með undraskjótum hætti.“ Gitta Hau og dönsk kántrístjarna Í ársbyrjun 2007 bókuðu þeir félagar Dark Horse hljóðverið í Nashville þar sem mörg stórstjarnan hef- ur tekið upp. Þar var hent í plötu og leiguspilararnir Dan Dugmore og Glen Duncan settu mark sitt á plöt- una, spilarar sem eru eldri en þrevetur í bransanum. „Maður hafði nú aldrei séð annað eins,“ segir Guð- mundur. „Ótrúlegir spilarar hreint. Sumir halda að www.myspace.com/klaufar Kántrí var það … Selfysska kántrísveitin Klaufar býður til heljarinnar kántríballs nú á laugardaginn Jííhaaaaa! Þeir gerast ekki mikið svalari kúasmalarnir fjórir í Klaufum. Enda komnir upp í gullsölu. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SPOR Regnbogans er um tuttugu og fimm mínútna langt verk án orða eft- ir Karólínu Eiríksdóttur og Messíönu Tómasdóttur og samkvæmt upplýs- ingum frá höfundunum er það aðal- lega ætlað leikskólabörnum. Sagan sjálf er ekki beinlínis flókin en til þess að geta fylgst almennilega með henni er alveg nauðsynlegt að vita eitthvað meira um þær pælingar sem liggja á bak við verkið. Slíkar upplýsingar voru því miður ekki til staðar áður en sýningin hófst. Leikpersónur eru þrjár, Ófelía, Svanurinn og Sóla, og jafnvel ég skildi að verkið snýst m.a. um að tengja saman liti og tónlist. Í grófum dráttum fjallar það um strengjabrúð- una Ófelíu sem fer að hlusta á flautu- tónlist í fyrsta sinn en verður upp- teknari af flautunni en af tónlistinni. Aino Freyja Järvelä sem stjórnar Svaninum og Sigríður Sunna Reynis- dóttir sem stjórnar Ófelíu eru báðar léttar og fimar í hreyfingum sínum en ég hafði samt á tilfinningunni að margar hreyfingar Svansins væru meira eða minna einfaldar sveiflur, einungis miðaðar við að koma honum frá einum stað til annars á sviðinu. Á blöðum sem ég fékk frá leikstjór- anum daginn eftir sýninguna segir að sérhver litur eigi að tákna eitthvað ákveðið (rauður táknar hugrekki, blá- grænn „skapar töfra“ o.s.frv.). Krakkar á sýningum verksins eiga ekki aðeins að horfa á heldur að taka þátt og til þess fá þeir grímu, sem fel- ur einnig í sér ákveðinn hæfileika (t.d. „ég get töfrað“ eða „ég lækna og laga“), og litbönd sem þeir eiga „að sveifla og hreyfa“ og „hafa þannig áhrif á framvinduna“. Sum börn á frumsýningunni tóku svona grímu og litbönd af borði frammi, önnur ekki, en það hefði verið betra ef öll börnin hefðu fengið að vita fyrirfram hvað þau ættu að gera við þessa hluti. Ýmislegt var skýrt, annað ekki. Það var til dæmis auðvelt að sjá að brúðan Ófelía fór að missa áhuga á tónlistinni og fór í staðinn að leika sér og stríða flautuleikaranum en af hverju blómin á sviðinu enduðu öll á nótnastatífi flautuleikarans í tiltekinni röð var mér ekki ljóst. Allt var þetta ljúft og sætt þannig séð en hvort leikskólabörn geta lært eitthvað um liti og tónlist í gegnum svona verk er spurning sem ég treysti mér ekki til að svara. Greini- legt var að einhverjum þeirra fannst skemmtilegt að setja upp grímu og sveifla litbandi og ef til vill hafa ein- hver þeirra skynjað betur táknmál og merkingu verksins en ég. Persónu- lega fannst mér samband litanna, til- finninga og tónlistar svolítið torskilið. Segjum bara að ég heiti Martin og leikskólakrakkar séu skarpari en ég. Fyrir skarpa leikskólakrakka Morgunblaðið/Frikki Litríkt Á sýningunni taka krakk- arnir þátt í leikverkinu. Martin Regal LEIKLIST Möguleikhúsið – strengjaleikhús Tónlist: SPOR eftir Karólínu Eiríksdóttur. Leikstjóri og höfundur sögu, brúða og búninga: Messíana Tómasdóttir. Flytjendur: Guðrún S. Birgisdóttir flautu- leikari, Aino Freyja Järvelä og Sigríður Sunna Reynisdóttir. Spor Regnbogans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.