Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 17 MENNING Á TÓNLEIKUM Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í kvöld gefst tónlistarunnendum tæki- færi til að hlýða á efnisskrá þá sem Sinfóníuhljómsveitin mun flytja í tónleikaferð sinni til Þýskalands í næstu viku. Þrjú íslensk verk verða flutt sem öll hafa unnið óskoraða hylli tónlistarunnenda; „Ice- rapp“ eftir Atla Heimi, Selló- konsert eftir Jón Nordal og Geysir eftir Jón Leifs. Alladin-svíta Carls Niel- sens fær líka að óma auk „Bolero“ eftir Ravel. Einleikari er Bryndís Halla Gylfadóttir. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30. Tónleikar Geysir, Sellókons- ert og Icerapp Bryndís Halla Gylfadóttir SKÁLDASPÍRUKVÖLD númer 89 verður haldið í Amtsbókasafninu á Akureyri í kvöld og hefst það kl. 17.15. Þar munu þeir Þórarinn Torfason og Björn Þorláksson lesa upp úr verkum sínum. Þórarinn les meðal annars úr óbirtu ljóðahandriti, en Björn les meðal annars úr óútgefnu handriti að nýrri skáldsögu. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að fá sér hressingu meðan á upplestri stendur. Sem fyrr er það Benedikt S. Lafleur sem stendur fyrir uppákomunni. Upplestur Þórarinn og Björn á Amtsbókasafni Björn Þorláksson ÁTTUNDU tónleikar ársins í hádegistónleikaröð Hafn- arborgar, menningar- og lista- stofnunar Hafnarfjarðar, verða í dag og hefjast klukkan 12. Að þessu sinni er það Elín Ósk Óskarsdóttir sem er gestur tónleikanna og flytur tónlist frá Þýskalandi, aðallega Wag- ner-aríur. Tónleikarnir standa yfir í hálftíma og eru sér- staklega hugsaðir sem tæki- færi fyrir fólk sem starfar í Hafnarfirði til að njóta góðrar tónlistar í hádegishléi. Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar, aðgangseyrir er enginn og all- ir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Tónleikar Elín Ósk í Hafnar- borg í hádeginu Elín Ósk Óskarsdóttir Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KAMMERSVEIT Reykjavíkur hef- ur 34. starfsár sitt með tónleikum í Listasafni Íslands á sunnudagskvöld kl. 20, en fernir tónleikar verða á dag- skrá sveitarinnar í vetur. Heiti fyrstu tónleikanna er: Tónlist 20. aldarinnar –nútímatónlist? Á efn- isskránni eru verk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson, Anton Webern og Ígor Stravinskíj. Í yfirskriftinni liggur sú spurn hvort enn sé hægt að kalla úr- valstónlist 20. aldarinnar nútíma- tónlist. Rut Ingólfsdóttir er listrænn stjórnandi Kammersveitarinnar. „Við teflum saman Þorkeli, Anton Webern og Stravinskíj, til að sýna hvað þetta er skemmtileg tónlist, þótt hún hafi einhvern tíma þótt framsækin,“ segir Rut. „Eftir því sem ég best veit hafa tvö af verkum Stravinskíjs, Pastorale og Concertino ekki verið spiluð hér fyrr.“ Og spurningin um hvenær tón- list hættir að vera nútímatónlist er brennandi, því á tónleikum Kamm- ersveitarinnar á Myrkum mús- íkdögum í febrúarbyrjun, verður sannarlega leikin nútímatónlist. „Þar leikum við þrjú verk sem er verið að semja núna, eða samin á allra síðustu árum.“ Verkin sem Rut nefnir eru Konsert fyrir horn og strengi eftir Huga Guðmundsson, La serenissima fyrir klarínett, strengi og slagverk eftir Hafliða Hallgrímsson og Kons- ert fyrir fiðlu og strengi eftir Svein Lúðvík Björnsson. Ekkert verkanna hefur heyrst hér áður, en verk Haf- liða hefur verið leikið erlendis. Elfa Rún einleikari Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur hafa um árabil verið ákaflega vinsælir, en í ár verða þeir haldnir 16. desember, og eins og endranær, í Áskirkju. „Elfa Rún Kristinsdóttir sigurvegari í Bach- keppninni í Leipzig verður einleikari á jólatónleikunum, þótt við verðum líka með ýmislegt fleira. Elfa Rún ætlar að spila tvo konserta eftir Bach – en hvorki þann í a-moll né E-dúr sem fólk þekkir, heldur konserta sem hún vill meina að hafi upphaflega ver- ið samdir fyrir fiðlu, þótt þeir séu bara til í öðrum útgáfum í dag, meðal annars fyrir sembal.“ Önnur verk á Jólatónleikum Kammersveitarinnar eru Vatnasvítur í G-dúr og F-dúr eft- ir Händel og Brandenborgarkonsert númer 3 eftir Bach. 18. júní hefst í Reykjavík Norræn hornráðstefna, og hana sækja allir megandi hornleikarar Norður- landanna sem á annað borð eiga heimangengt. Kammersveit Reykja- víkur heldur opnunartónleika ráð- stefnunnar, og eins og gefur að skilja verður horntónlist í öndvegi. „Við ætlum að endurtaka verk Leopolds Mozarts, Sinfonia di Caccia sem gerði mikla lukku, en þar leika einleik þeir Joseph Ognibene, Emil Friðfinnsson, Stefán Jón Bernharðsson og Þorkell Jóelsson; og leika líka með frábærum norrænum hornleikurum sem hingað koma. Ég þekki þá ekki, en hornleik- ararnir okkar segja að það sé topp- fólk.“ Útgáfusaga Kammersveitar Reykjavíkur á sér tæplega nokkra hliðstæðu meðal íslenskra tónlist- arhópa í klassískri tónlist. Fimmtán geisladiskar hafa þegar komið út með leik hennar á fimmtán árum, bæði með íslenskri tónlist og erlendri, en að sögn Rutar er Kammersveitin bú- in að hljóðrita tónlist á tólf diska með íslenskri tónlist, og fleiri eru í und- irbúningi. Þá er Rut sjálf einnig að gefa út disk með íslenskri tónlist fyrir fiðlu og píanó, en áður hefur komið út diskur með leik hennar í íslenskum einleiksverkum fyrir fiðluna. Spurn- ingin er hvaðan elja Rutar og Kamm- ersveitarinnar við flutning og útgáfu íslenskrar tónlist sprettur. „Í fyrsta lagi ber okkur skylda að flytja íslenska tónlist, og það höfum við gert frá upphafi. Árið 2000 ákvað ég að við yrðum að gera átak í að taka íslensku tónlistina upp og gefa út. Mér finnst okkur renna blóðið til skyldunnar að gera íslenska tónlist aðgengilega bæði fyrir Íslendinga og aðra. Það er miklu auðveldara að kynna sér tónverk ef þau eru til út- gefin. Útgáfan hefur ekki gengið jafnhratt fyrir sig og ég vonaði, við erum búin að taka upp efni á tólf diska að minnsta kosti, en sá sjöundi er að koma út. Eftirvinnslan gengur hægar fyrir sig. En þetta er ekki bara skylda okkar, því þetta er mjög góð tónlist, auk þess sem við höfum þekkt flest tónskáldanna persónulega. Sjálf hef ég sérstakar mætur á Jóni Leifs, þótt ég hafi aldrei kynnst honum, og að spila kvartettana hans er stórkost- legt. Og hverjir myndu spila íslenska tónlist og gefa út ef við gerum það ekki sjálf?“ Í sumar var Rut veitt franska orðan Ordre National de Merite, sambærileg við fálkaorðuna, fyrir að stuðla að kynningu á franskri tónlist á Íslandi. Kammersveit Reykjavíkur hefur 34. starfsárið með tónleikum á sunnudagskvöld Rennur blóðið til skyldunnar Í HNOTSKURN » Kammersveit Reykjavíkurvar stofnuð árið 1974. » Rut Ingólfsdóttir hefur fráupphafi verið listrænn stjórn- andi sveitarinnar. » Kammersveitin hefur frum-flutt fjölda íslenskra og er- lendra tónverka. » Kammersveitin hefur gefiðút 15 geisladiska, tveir koma út í vetur og fleiri bíða útgáfu. Rut Ingólfsdóttir „Mér finnst okkur renna blóðið til skyldunnar að gera ís- lenska tónlist aðgengilega bæði fyrir Íslendinga og aðra,“ segir hún. BANDARÍSKI leikarinn og söngv- arinn Robert Goulet lést í fyrradag, 73 ára að aldri. Hann lést á sjúkra- húsi í Los Angeles þar sem hann beið lungnaígræðslu. Goulet skaust upp á stjörnuhim- ininn árið 1960 þegar hann lék í söngleiknum Camelot á Broadway, en þar fór hann með hlutverk Sir Lancelot á móti þeim Richard Bur- ton og Julie Andrews. Í kjölfarið varð Goulet tíður gest- ur á sjónvarpsskjám í Bandaríkj- unum, en hann var reglulegur gest- ur í sjónvarpsþætti Eds Sullivan. Árið 1962 hlaut hann Grammy verðlaunin sem besti nýliðinn og ár- ið 1964 náði lag hans „My Love For- give Me“ miklum vinsældum. Árið 1968 hlaut hann svo Tony verðlaun- in fyrir hlutverk sitt í The Happy Time á Broadway. Á síðari árum lék hann í auknum mæli í kvikmyndum, meðal annars í Beetle Juice og Naked Gun 2½. Goulet lætur eftir sig eiginkonu, þrjú börn og tvö barnabörn. Robert Goulet látinn Hlaut bæði Tony- og Grammy-verðlaun Reuters Farsæll Robert Goulet. FRANSKA skáldið Yves Bonnefoy hreppti Franz Kafka verðlaunin þegar þau voru veitt í Prag í vik- unni. Alþjóðleg dómnefnd sem var skipuð þýska bókmenntagagnrýn- andanum Marcel Reich-Ranicki og breska útgefandanum John Calder komst að þessari niðurstöðu, en það er Franz Kafka félagið í Prag sem stendur að verðlaununum. Verð- launagripurinn er lítil stytta af Kafka, smíðuð af listamanninum Jaroslav Rona, en séu verðlauna- hafar lítið fyrir styttur, fylgir um 600 þúsund krónur í umslagi fyrir verðlaunahafann. Yves Bonnefoy er 84 ára vel þekktur skríbent og esseyjuskrif- ari, og einn mesti þýðandi Frakka á verkum Williams Shakespeares. Meðal verðlaunahafa síðustu ára eru Philip Roth, Elfriede Jelinek, Harold Pinter og Haruki Mura- kami. Bonnefoy fær Kafka- verðlaunin SÝNING á verkum Kristjáns Davíðssonar verður opnuð í Listasafni Íslands í dag. Um er að ræða afrakstur síðastliðinna sautján ára, að viðbættum verkum sem bregða ljósi á þróun listamannsins í átt til þeirra stílbrigða sem hann hefur ræktað frá lokum 9. áratugarins. Kristján er nú níræður og hefur list hans þróast mikið á síðustu áratugum liðinnar ald- ar. Sýning Kristjáns er í þremur sölum safns- ins en auk hennar verður í dag opnuð sýning á úrvali verka úr safni Markúsar Ívarssonar járnsmiðs. Sýnir þróun listamannsins Kristján Davíðsson Sýnir afrakstur sautján ára. Verk Kristjáns Davíðssonar listmálara í Listasafni Íslands Fjallað verður um Kristján Davíðsson í Les- bók Morgunblaðsins næstkomandi laug- ardag. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.