Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 47 X E IN N IX 0 7 10 0 11 Þinn draumur ...okkar veruleiki Inn X Innréttingar bjóða upp á stílhreinar og sérlega notendavænar ítalskar innréttingar. Þarlendir sérfræðingar, með eldheita ást á matargerð hafa náð fullkomnun í aðlögun eldhúsumhverfis að þörfum þeirra sem njóta þess að elda - og borða góðan mat. Gæðin eru ótvíræð, en þó er það verðið sem kemur mest á óvart. Komdu í glæsilegan sýningarsal okkar að Dalvegi 10-14 og leyfðu hönnuðum okkar að aðstoða þig við að setja saman draumaeldhúsið þitt. Þín veröld - veldu Inn X Innrétting á mynd er Etrusca og er framleidd í hnotu. Innrettingar Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur Sími 577 1170 • Fax 577 1172 • www.innx.is TÓNLIST Geisladiskur Hörður Torfa – Jarðsaga JARÐSAGA er þriðji hlutinn í kons- eptverki Harðar Torfasonar, Vit- anum. Næst er það Vatnssaga og svo verður allt bundið saman með þeirri fimmtu, Vitanum. Það er mikið undir á þessum plötum. Í gegnum textana er Hörður að skoða gáfur og galla mannskepnunnar, um leið hefur hann verið í einslags sjálfskoðun en einnig eru innviðir samfélagsins (Ælands) settir undir mæliker. Lögin eru því til skiptis björt og myrk, og áferð platnanna tveggja sem út eru komnar nokkuð ólík. Sú fyrsta, Elds- saga, var kröftug og tilfinningarík, á meðan Loftssaga var dimm og dumb- ungsleg. Ég gagnrýndi Hörð á tveim- ur fyrri plötunum fyrir að missa sig stundum út í tilgerð og offors og það mætti segja að þessi plata sé sú hóf- stilltasta til þessa, rúllar einhvern veginn jafnt og þétt. Lagasmíðarnar sjálfar eru misspennandi en textarnir standa alltaf fyrir sínu. Hörður geng- ur óhikað til verks að vanda, í „Skúff- ur og skápar“ segir: „Í skúffur og skápa/menn skömm sína láta/en leynd vill upp lúkast/lifna og brúkast“ og í „Spegilmyndin“ er þessu slengt fram- an í hlustandann: „Ég er lesbía hommi arabi gyðingur/öryrki svert- ingi útlendingur“. Menn eiga það til að lýsa fjálglega yfir að nú ætli þeir að gera þetta eða hitt og oft eru markmiðin háleit en minna verður úr verki. Ég tek því of- an fyrir Herði, þetta verkefni virðist sigla örugglega áfram og leiðin að Vit- anum nú meira en hálfnuð. Spennan er því tekin að magnast. Hvað verður eiginlega leitt í ljós þar uppi? Arnar Eggert Thoroddsen Vitinn nálgast FINNSKA skrímslarokksveitin Lordi, sem sigraði í Eurovision söngvakeppninni fyrir tveimur ár- um komst í hann krappan í Ken- tucky í Bandaríkjunum, þar sem sveitin er nú á ferðalagi. Vopnaðir ræningjar óku upp að hljómsveit- arrútu þar sem Lordi og hópur áhangenda hennar höfðu safnast saman og ógnuðu hópnum með byssu. Umboðsmaður sveitarinnar flýði á næsta bar og hringdi í lögregl- una, sem kom of seint á vettvang því ræningjarnir voru á bak og burt. Að sögn söngvara sveitarinnar var um að ræða hóp eiturlyfjafíkla sem þegar var leitað af lögreglu þar sem þeir höfðu stolið bifreið fyrr um kvöldið. Fíklunum hefur greinilega ekki þótt finnsku skrímslin meira ógnvekjandi en svo að þeir þóttu prýðileg fórnarlömb vopnaðs ráns. Þjófarnir leika enn lausum hala, en engum sögum fer af því hvað þeir höfðu upp úr krafsinu. Lordi rændir af eiturlyfjafíklum Ófrýnilegir En ekki nógu til að hræða eiturlyfjafíklana á brott. TÓNLIST Geisladiskur Thundercats – New Wave  THUNDERCATS er að stofni til þeir Magnús Leifur Sveinsson og Bjarni Guðmann úr hafnfirsku rokksveitinni Úlpu. Það var fyrir réttum tveimur ár- um sem þeir félagar fundu hjá sér þörf til að stíga út úr ramma rokksveit- arinnar, urðu að fara aðeins úr úlpunum til að koma sköpunarvessunum í gang. Nið- urstaðan varð þessi hljóðgervladúett, nefndur eftir sígildum teiknimyndum frá miðjum níunda áratugnum. Þessi fyrsta plata hans var reyndar tekin upp fyrir um ári, og er gefin út af litlu þýsku merki, Nordic Notes, en eins og nafnið gefur til kynna er fókusinn þar á tónlist frá Norðurlöndunum. Hann er alltaf jafn óbilandi, áhugi þýskra á því norræna. En ekki að það skipti neinu að hér sé um árs gamla plötu að ræða og vís- un hljómsveitarinnar í ríflega tuttugu ára gamlar teiknimyndir segir ým- islegt um hvaðan hún er að koma tón- listarlega. Hér er á ferðinni einslags nútíma kuldarokk, ísi lagt hljóðgervl- arokkið hefði smellpassað með fyrstu útgáfum Mute útgáfunnar bresku, rétt upp úr 1980. Stundum minnir tónlistin á The Cure, í kringum Faith plötuna („Back to Future“) og De- peche Mode, New Order og Front 242 koma í hugann. Hljómborðsnóturnar eru því viljandi „retro“ en undir niðri gárar um leið Úlpulegur nýbylgjugít- ar. Stemningin er í heildina dimm og drungaleg, eiginlega vísindaskáld- söguleg. Lögin skilja reyndar mis- mikið við sig, og sum bera þess merki að það er fyrst og fremst verið að máta þennan „nýja“ hljóm. Þó að kettirnir séu á margan hátt að krafsa sér leið hér er ýmislegt til að byggja á og þeir eiga því góða möguleika á að koma niður á öllum fótum í næstu um- ferð. Úr úlpunni Arnar Eggert Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.