Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þú bara fljúga í útlandið Óla mín, það er svo leiðinlegur ég alltaf vera fá þennan höfuð- verkur, þú vera heima. VEÐUR Einn af fréttamönnum RÚV gerðiDag B. Eggertsson borgarstjóra rökþrota í fréttum sjónvarpsins í gærkvöldi.     Orkuveitan er aðallega í eiguReykjavíkurborgar en að litlum hluta tveggja annarra sveitarfélaga. Borgarstjórn er kjörin til að fara með málefni borgarinnar og þar með fyrirtækja hennar.     Svandís Svav-arsdóttir borgarfulltrúi fer í mál til að fá eig- endafund Orku- veitunnar fyrir nokkrum vikum úrskurðaðan ólögmætan vegna þess að ekki var farið að sam- þykktum um boðun fundarins.     Forstjóri Orkuveitunnar ákveður ísamráði við lögmenn fyrirtæk- isins að krefjast frávísunar. Borg- arstjórinn í Reykjavík staðfesti í samtali við RÚV í gærkvöldi að hann vildi ekki blanda sér í málið.     Fréttamaðurinn spurði borg-arstjórann hvort ekki væri nauð- synlegt að fá efnislegan dóm um lög- mæti umrædds fundar.     Borgarstjórinn, sem ekki vildiblanda sér í málið, sagði að það væri nauðsynlegt að taka af skarið.     En er hægt að taka af skarið,spurði fréttamaðurinn efnislega, ef ekki gengur efnisdómur í málinu?     Borgarstjóranum vafðist tungaum tönn og sagði að það væru til aðrar leiðir. Hvaða aðrar leiðir?     Af hverju má ekki fá efnislegan úr-skurð dómstóls um þetta mál Dagur? STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Þarf að taka af skarið Dagur?! SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                         *(!  + ,- .  & / 0    + -                                12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                         !          "!   :  *$;< ###               !"  # $ ! !% !%&'(!)! *!!! +!  ,    , &-! ,  .  "/!  ! *! $$ ; *! $ % & #  #% #    !  ' ! =2 =! =2 =! =2 $  &  #()*#+ !, ! -         *  0 ,*0(    !!(  ! ,  12&'  #  ! ! /          !   ! , #  ,  "(! )!   &'/!      *! !12 & =7  1! $  3 0# !02  *! * !&'   #  !*! !, %& -. ##!//  ! # #0 !  !#() 3'45 >4 >*=5? @A *B./A=5? @A ,5C0B ).A 1 2 2   13 1 1    31 31 31 1   1  31 1 2 2 2 23 2 2 2 2 2 23 2 2 2 2           Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eygló Harðardóttir | 31. október Áskorun … … Ég tel það skipta miklu fyrir Vest- mannaeyjar að HS komist ekki í meiri- hlutaeigu einkafyrir- tækja, þar sem gróða- hugsunin skiptir mestu en ekki hagur okkar neyt- enda. Þegar eru fordæmi um hversu slæmt þetta getur verið fyrir neytendur og má þar nefna orkuskortinn í Kaliforníu, raf- magnsleysið á austurströnd Bandaríkjanna 2003 og úttekt á raforkumarkaðnum í Svíþjóð. Meira: eyglohardar.blog.is Hlynur Hallsson | 31. október Lífrænt: Hollara og betra á bragðið … Lífrænt ræktaða grænmetið reyndist al- mennt innihalda meira af andoxunarefnum og minna af fitusýrum. „Niðurstöðurnar stangast á við núver- andi stefnu breska Matvælaeftirlits- ins (Food Standards Agency), sem kveður á um að engar vísbendingar séu um að lífrænt ræktað grænmeti sé hollara en annað.“ Vonandi verð- ur þetta til þess að enn meiri áhersla verði lögð á lífræna ræktun … Meira: hlynurh.blog.is Sigríður Laufey Einarsdóttir | 31. okt. Skálholtsstaður … Komið hefur fram í fréttum að kirkjan hyggst reisa sum- arhúsabyggðir í Skál- holti sér til tekjuaukn- ingar. Skálholtsstaður var um langan aldur höfuðstaður þjóðarinnar í trúar- legum og veraldlegum skilningi. Þar var einnig skóli eins og þekkt er. Biskupsstóllinn þurfti tekjur til að standa undir umsvifum; tíund var sett á, og stóllinn átti verstöðvar eins og Grindavík sér til framfærslu. Staða Skálholts hefur ekki breyst hvað varðar veraldleg umsvif sér til framdráttar. Ef þær tekjur sem koma af sumarbústaðabyggð eru notaðar til frekari andlegrar starf- semi í Skálholti þá helgar tilgangur- inn meðalið? Niðurlægingartímabil Skálholts hófst þegar kaþólsk trú var… niðurlögð og stóð fram á sjö- unda tug síðustu aldar þegar Sigur- björn Einarsson þáverandi biskup stóð… Meira: logos.blog.is Kristján B. Jónasson | 31. október Tíu litlir negrastrákar Í síðustu viku boðaði Alþjóðahúsið til fund- ar til að ræða hugtakanotkun í sam- tímaumræðu um fólk af erlendum uppruna vegna endurútgáfu bókarinnar Tíu litlir negrastrákar eftir Gunnar Egilsson með mynd- um Guðmundar Thorsteinssonar, Muggs. Mér var boðið að koma þarna að ræða á fremur óformlegan hátt sýn bókaútgefenda á málið. Mörður Árnason og Hallfríður Þór- arinsdóttir voru einnig í pontu og var ætlað að ná utan um kynþátta- hyggju í hugtakanotkun hvoru á sinn hátt. Ég bjóst við að fáeinar hræður myndu láta sjá sig og hnykkti því aðeins við þegar ég kom. Bæði var setið í hverju sæti og svo var þarna fullt af fjölmiðlafólki sem ég hafði ekki búist við, meira að segja sjónvarpsmyndavélar. Einhver hafði greinilega verið að vinna plöggvinnuna sína. Skemmst er frá að segja að fjallað var um þennan litla atburð í nærri öllum fjölmiðlum. Ég hélt að síðan myndi málið lognast út af en misreiknaði það algerlega. Þeir fjölmörgu sem eiga börn af erlendum uppruna, eiga „blönduð“ börn eða einfaldlega nána vini eða þá ættingja sem eru sökum hörundslitar síns á einhvern hátt skotspónn meira og minna meðvitaðrar kynþáttahyggju virð- ast einfaldlega hafa fengið nóg. Þeir nenna ekki lengur að burðast með óuppgerða arfleifð íslenskrar kynþáttahyggju. Þeir nenna ekki að heyra fólk segja að „negri“ sé alls ekkert rasískt orð, fremur en nokk- ur önnur orð í íslensku og að fólk hafi nú sungið Tíu litla negrastráka í æsku og ekki orðið meint af. Og það nennir heldur ekki að vera skilningsríkt andspænis viðhorfi sem bloggsíðurnar virðast nokkuð seigar að viðhalda: Hvað banna þeir nú næst? Á bara ekki að fara fram bókabrenna! Hvað sjá menn eig- inlega athugavert við myndir af blökkubörnum sem eru limlest, smáð og drepin á hugvitsamlegan hátt uns frábær fjölgunarhvöt þeirra margfaldar töluna að nýju? Ég hef fengið tölvupóst frá fólki sem hefur innt mig frekar eftir skoðun minni á málinu. Í áhrifaríkri bloggfærslu Gauta Eggertssonar – bróður borgarstjóra og undra- manns að sögn allra sem til hans þekkja – sem farið hefur eins og eldur í sinu um bloggheima í gær og dag er mín óverðugs getið í sam- bandi við undarlega stuðningsmenn þessarar útgáfu og fólk hefur hringt í mig til að ræða málin. Í stuttu máli sagt er ekkert lát á um- ræðunni um …Tíu litla negra- stráka, hún bara magnast. Meira: kristjanb.blog.is BLOG.IS WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 Týpa: PV70 VERÐLAUNAÐ SJÓNVARP 219.900- Glæsilegt tæki af nýjustu kynslóðinni sem fékk nýlega hin eftirsóttu EISA verðlaun. HDTV Ready / Upplausn1024x768 / Skerpa: 10.000:1 42” plasma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.