Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 13
NÁTTohUFR.
155
vel var mönnum ráðgáta, hversu hringur þessi væri samsettur,.
en nú er talið fullsannað, að hann sé samsettur af smátungla-sæg
er snúist í breiðri hringlest umhverfis Satúrnus. Stór-tunglin 9,
er fylgja Satúrnus, eiga brautir utan við hringinn.
Ýmsar halastjömur hreyfast eftir afmörkuðum brautum um
sólina, og teljast því til okkar sólkerfis. Brautir þeirra eru mjög
aflangir sporbaugar. Liggur því leið þeirra löngum langt út í
geiminn, langt út fyrir brautir jarðstjarnanna. En eftir þessar
langferðir leita þær aftur til heimkynnis síns, sólkerfisins, og
sveiflast fram hjá sólinni.
Allar stjörnur, er vér sjáum á næturhimninum, — að frá-
töldum þeim, sem heima eiga á voru sólkerfi — eru sjálflýsandi
sólstjörnur. I»ær eru því sama eðlis og Sólin, og líklega margar
miðstöðvar í sérstökum sólkerfum, líkum voru. Þær eru allar
óra-langt í burtu, margfalt fjær jörð vorri en Sólin. Fjarlægðin
frá jörð til Sólar er allt að 150 miljónir km. En sú sólstjarna
sem menn þekkja næst jörðinni (Proxima í Kentár-stjörnumerk-
inu, , sunnarlega yfir suðurhveli Jarðar) er 270 þúsund sinnum
fjær Jörðu en sólin (40 þúsund miljarðar km.). Stjarna þessi er
mjög ljósdauf, og er því alveg nýlega fundin. Er hugsanlegt, að-
til séu sólstjörnur nær okkur en þessi, sem séu svo litlar eða ljós-
daufar, að stjörnufræðingum hafi eigi enn tekizt að finna þær
með stjörnuleitar-tækjum sínum. — Fjarlægð þessarar næstu
sólstjörnu frá jörðinni er svo mikil, að oss veitir erfitt að miða
hana við jarðneskar vegalengdir. Ef til vill eru menn nokkru
nær, ef þeir íhuga það, að ljósið, sem fer ca. 304 þús. km. á sek-
úndu, og fei; á 8 mínútum og 12 sekúndum vegalengdina milli Sólar
og Jarðar, myndi vera 4 ár og rúma 3 mánuði að berast til þess-
arar næstu sólstjörnu frá jörðinni. Það er orðin venja, að miða
þessar miklu vegalengdir til sólstjarnanna við ljós-ár, — eða þá
vegalengd, sem ljósgeisli kemst yfir á einu ári, eins og vér höfum
hér á landi mælt vegalengdir í dagleiðum fyrir gangandi eða ríð-
andi menn.
Sirius eða hundastjarnan í Stóra hundinum, er nálega 8%
(8,65) ljósára vegalengd frá Jörðu. Værum vér þangað komnir
með svo góðan sjónauka, að vér gætum greint menn á Þingvöll-
um, gætum vér eigi vænst þess, að sjá hátíðarhöldin, er fram
fóru á Þingvöllum 1930, fyr en í ársbyrjun 1939. Þó má Síríus
teljast nágrannastjarna sólkerfis vors, því að eigi þekkjum vér
nema 5 sólstjörnur nær okkur í geimnum, og er Proxima í Ken-
tárinum, sem áður er nefnd, ein þeirra.