Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 16
158
náttCtrufr.
Eftir þennan inngang- getum vér snúið okkur að því, að at-
huga meðfylgjandi stjörnukort, og reynt að finna stjörnurnar á
himninum eftir því. Ijví miður áttum vér ekki völ á stjörnukorti
með íslenzkum nöfnum. Höfum vér valið stjörnukort úr enskri
hók, ])ar sem heiti stjörnumerkjanna er á latínu. Kann það að
valda lesaranum nokkurra örðugleika, en hefir ])ann kost, að
hann, jafnt íslenzku nöfnunum, fær tækifæri til að kynnast lat-
nesku heitunum, sem notuð eru óbreytt í fræðibókum erlendra
þjóða. —
Til skýringar á meðfylgjandi mynd, skal ])að tekið fram, að
stjörnum er skipað í flokka, eftir ])ví, hvað þær sýnast stórar.
Þær stærstu eru taldar 1. (fyrstu) stærðar, þær næstu 2. (ann-
arar) stærðar, svo 3. (]>riðju) stærðar o. s. frv. Með berum aug-
um sjá fæstir smærri stjörnur en 6. stærðar. Á myndinni tákn-
ar átthyrnd stjarna 1. stærð, sexhyrnd 2 stærð, fimmhyrnd 3.
stærð, ferhyrnd 4 stærð, og punktur 5. stærðar-stjörnu.
Á myndinni sjást 14 stjörnumerki að nokkru eða öllu leyti.
Til þess að átta sig á þeim á himninum, eftir myndinni, er bezt að
byrja á Órion, sem eg vona, að lesarinn hafi þegar lært að þekkja.
Örions hefir verið getið í greininni á undan, og verður ]iví sleppt
hér. —
1. Hérinn (Lepus) er beint niður af fótum Órions. Sést sjald-
an glöggt, af því að hann hefir enga stjörnu stærri en 3. stærðar,
og þegar hann kemur upp, er hann oft hulinn í skýjamóðu niður
við sjóndeildarhringinn.
2. Stóri húndurinn (Canis major). Lína, miðuð yfir beltis-
stjörnur Órions, niður á við til vinstri (suðausturs), lendir hér um
bil á Sirius (Hundastjörnunni), sem er stærsta stjarnan í þessu
merki og bjartasta stjarnan á himninum, frá okkur að sjá. Sirius
kemur seint upp framan af vetri, og aðrar stjörnur í merkinu
sjást sjaldan greinilega.
3. Litli hundurinn (Canis minor). Lína yfir axlastjörnur Órí-
ons (Bellatrix og Betelgeuze) til vinstri (austurs), lendir mjög
nærri Prólcyon, sem er stærsta stjarnan (1. stærðar) í þessu merki,
4. Tvíburamir (Gemini). Lína, miðuð frá Delta í belti Óri-
ons, yfir Betelgeuze gengur yfir tvíburamerkið. Björtustu stjörn-
urnar, efst til vinstri í þessu merki, eru Tvíburarnir, P o I 1 u x
(neðar, 1 st.) og Castor (ofar, 2 st.).
5. Ökumaðurinn (Auriga), er mjög hátt á lofti, beint •'-pir
höfði Orions. Þar heitir stærsta stjarnan (Alfa) Kapella, (Ca-
pella — geit eða kiðlingur, sem Ökumaðurinn á að halda í). Hún