Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 17
5JÁTTÚRUFR
159
Tiefir verið kölluð kanpamannastjarna. Er leið á sumar, skyldu
’kaupamenn eigi hætta slætti, fyr en stjarna þessi sást á kvöld-
um. Merki þetta nefna sumir Erechtaníus, eftir konungi einum í
Aþenu, sem átti að hafa innleitt notkun vagna. Kapella ásamt
Epsilon, Eta og Zeta í þessu merki, (er mynda þríhyrning),
mynda geitina, sem ökumaðurinn heldur í.
6. Eridanus-fljótið byrjar hægra megin við fætur Orions, og
liggur til vesturs. Er það mjög langt stjörnumerki. I>að er lágt
-á lofti og smástirnt, og sést því sjaldan vel. Heitir eftir fljóti,
•er kemur við sögur í goðafræði Grikkja.
7. Na7itið (Taurus). Lína miðuð yfir beltisstjörnur Orions
(Fjósakonurnar) upp á við til hægri, lendir í þessu merki. I
því merki munu flestir þekkja Sjöstimið eða Sjöstjörmma. Hér
um bil mitt á milli hennar og Bellatrix, í vinstri öxl Orions, er
Aldebaran (augað í nautinu), sem er eina stjarnan í Nauts-
merkinu af 1. stærð, og er rauð að lit. Beta (2. st.) og Zeta
(4. st.) þessa merkis, upp af höfði Orions, eru fremst í horn-
xim Nautsins.
Sjöstimið (Pleides) er fjölstirndur stjörnuhópur. Menn
með meðal sjón, geta greint ]>ar 6 stjörnur. Talið er, að sumir
geti greint þá 7. í viðbót. En nokkrir hafa ])ótzt geta séð þær
miklu fleiri, og er það heldur ótrúlegt. Það mun sumum þykja
■ósennilegt, að Sjöstirnið sé stærra um sig en tungl í fyllingu.
Þó er það svo. Geta menn reynt það með því að halda eineyr-
ingi með útréttri hendi, og láta hann bera fyrir bæði á víxl,
þegar hvorutveggja sjást á lofti. Sumar fornar sögur telja Sjö-
stjörnurnar dætur Atlasar, er guðirnir settu til að bera himin-
inn.
8. Hrúturinn (Aries) er spöl fyrir vestan Nautið. Er það
ein stjarna af 1. stærð og önnur lítið eitt neðar, af 2. stærð.
Hinar eru óglöggar.
8. Hvalurinn (Cetus) er víðáttumikið stjörnumerki, neðar-
lega á himni, niður frá Hrútnum. Sést aðeins vestasti hluti hans
á myndinni. Þar er Mira nafnkennd stjarna. Hvalurinn er sæ-
skrímslið, er granda vildi Andromedu, dóttur Kefeusar konungs
í Eþiopíu. En Persevs breytti óvættinum í stein, með því að
snúa að honum andliti Medúsu.
10. Flugan (Musca) er lítið og óglöggt stjörnumerki, miðja
vega milli Nautsins og Hrútsins, en lítið eitt ofar.
11. Persevs er hátt á himni upp af Sjöstirninu, vestan vert
við Ökumanninn. Alfa í Persevs heitir Algenip eða Mirak (2.