Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 3

Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Ritstjóraskipti OG NÁTTÚRUMINJASAFN Náttúrufræðingurinn á sér orðið langa sögu. Tímaritið hefur komið út frá ár- inu 1931, þegar dr. Ámi Friðriksson fiskifræðingur og dr. Guðmundur G. Bárðarson jarðfræðingur hófu útgáfu þess. Tíu árum síðar keyph Hið ís- lenska náttúrufræðifélag ritið og hefur gefið það út síðan, í seinni tíð sem fé- lagsrit sitt. Tímaritið gegnir nú sem fyrr mikilvægu hlutverki, bæði sem fagtímarit þar sem íslenskir náttúru- fræðingar geta lagt rannsóknaniður- stöður sínar fram á móðurmálinu og sem vettvangur fyrir almennan fróð- leik um náttúrufræði. Að sjálfsögðu hefur Náttúrufræðingurinn breyst mikið á rúmlega sjötíu ára ævi sinni enda miklar breytingar orðið í þjóðfé- laginu á þessum tíma. Síðasta stór- breytingin varð árið 2002 er úthti tíma- ritsins var breytt; m.a. var brot þess stækkað til að koma til móts við breytt- ar þarfir og nýja tækni hvað varðar myndir og gröf. Það er ljóst að vel heppnuð útgáfa tímarits er háð góðu fólki sem tekur þátt í útgáfu þess og hefur félagið verið svo lánsamt að hafa stóran hóp fólks sem unnið hefur við útgáfuna í gegnum árin, bæði ritstjórn- armeðlimi og ritstjóra. Að baki hverju hefti Náttúrufræðingsins liggur mikil vinna margra aðila, allt frá höfund- um, ritstjóm og yfirlesurum, hl rit- stjóra sem ber hitann og þungann af útgáfunni. Frá upphah hafa 17 ritstjór- ar starfað við Náttúrufræðinginn og með síðasta hefh í lok árs 2006 lét sá rit- stjóri af störfum sem hefur starfað einna lengst við útgáfuna. Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur og blaðamað- ur, tók við Náttúrufræðingnum af Sigmundi Einarssyni jarðfræðingi árið 1997 og stýrði útgáfunni í áratug. Nátt- úrufræðingurinn dafnaði vel á þessu tímabili og tók Álfheiður þátt í að breyta útlih ritsins sem áður var nefnt. Ég vil fyrir hönd stjómar Hins íslenska náttúrufræðifélags þakka Álfheiði vel unnin störf í þágu tímaritsins og félagsins undanfarinn áratug. Eins vil ég nota tækifærið og óska nýjum ritstjóra, Hrefnu B. Ingólfsdóttur, vel- famaðar í starh. Það hefur oft reynst erfitt að halda úh fjórum heftum Náttúrufræðingsins á ári eins og til er ætlast og því hefur útgáfan oft orðið fyrir seinkunum og verið á eftir áætlun. Því miður er tveggja ára seinkun nú og leggur stjóm félagsins mikla áherslu á að reyna að vinna hana upp. Við ritstjóraskiptin ákvað stjórnin að setja af stað átaks- verkefni sem felur í sér að Náttúru- fræðingurinn komi hðar út á næstu árum. En það er ekki nóg að aðstand- endur tímaritsins séu allir af vilja gerð- ir - við setjum traust okkar á höfunda til að þetta megi takast. Ég vil því hvetja alla náttúrufræðinga sem luma á góðu efni að vera duglegir að skrifa, því með samshlltu átaki er ég sartnfærð um að við getum náð takmarkinu. Enda þótt Náttúrufræðingurinn hah verið einna fyrirferðarmestur í starf- semi Hins íslenska náttúrufræðifélags í seinni tíð hefur eitt helsta markmið félagsins frá upphah verið að koma upp náttúrugripasafni. Það er ótrúlegt að rík þjóð eins og Islendingar skuli ekki vera búin að byggja yhr og treysta enn frekar það náttúrugripasafn sem áhugamannafélag gaf henni fyrir 60 árum. Þegar Hið íslenska náttúru- fræðifélag gaf ríkinu safnið árið 1947 fylgdi því byggingarsjóður og var gert ráð fyrir að ríkið byggði yfir safnið. Nú 60 árum síðar er safnið í óviðunandi ástandi og þarf vart að rifja það upp efhr mikla umfjöllun í fjölmiðlum síð- ustu mánuði. Á haustþingi lagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fram frumvarp til laga um Náttúruminjasafn íslands. Með gildistöku þeirra laga verður safnið eitt þriggja höfuðsafna íslend- inga, ásamt Þjóðminjasafni Islands og Listasafni íslands. Stjóm félagsins telur brýnt að lögin verði samþykkt sem fyrst þannig að hefja megi öhugt starf við skipulag og uppbyggingu safnsins. Það er afar mikilvægt að uppbygging glæsilegs safns verði nú að veruleika og við upplifum ekki enn einu sinni síendurtekin vonbrigði 20. aldar, því í harmasögu náttúrugripasafnsins hefur oftar en einu sinni verið búið að út- hluta lóð og allt bent hl þess að sigur væri í höfn þegar eitthvað kom upp á sem stöðvaði málið. Ég hvet alla sem að málinu koma hl að stefna að því að á árinu 2007, á 60 ára afmæli gjafar Hins íslenska náttúrufræðifélags, verði lokið við formlegar hliðar málsins þannig að unnt verði að hefja fram- kvæmdir svo veglegt safn verði opnað á 120 ára afmæli Náttúrugripasafnsins og Hins íslenska náttúrufræðifélags árið 2009. Á langri ævi félagsins hefur það átt marga velunnara. Rétt fyrir sl. jól barst því rausnarleg gjöf frá einum ævi- félaga sínum, Sigurði Bjamasyni sem búsettur er í Noregi. Tölvufyrirtæki Sigurðar og eiginkonu hans, Paritet AS, hefur það í stefnu sinni að verja hluta hagnaðar hl styrkja, þar af helm- ingnum hl menningarmála. Árið 2006 ákvað Sigurður að styrkja Hið íslenska náttúrufræðifélag vegna þess hve félagið og Náttúrufræðingurinn hefðu veitt honum mikla ánægju allt frá því að hann var drengur. Ég vil fyrir hönd félagsins þakka þessa höfðinglegu gjöf. Kristín Svavarsdóttir, formaður HÍN Leiðrétting: í Náttúrufræðingnum 74. árg. 3.-4. hefti urðu þau mistök að 4. tafla kom í stað 5. töflu á bls. 98. Þetta leiðréttist á meðfylgjandi einblöðungi og er beðist velvirðingar á mistökunum. 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.