Fréttablaðið - 21.08.2009, Page 4

Fréttablaðið - 21.08.2009, Page 4
4 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR D Y N A M O R E Y K JA V ÍK www.bjartur.is Ný stjarna á himni reyfarahöfunda Þýðandi: Bjarni Jónsson BEINT Í 3. SÆTI METSÖLULISTA EYMUNDSSON D Y N A M O D Y N A M O M R E Y K J R E Y K JA V A V AA ÍKÍ ORKUMÁL Kanadíska orkufyrirtæk- ið Magma Energy hefur fallist á að framlengja kauptilboð í 32 pró- senta hlut Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í HS Orku til að gefa íslenska ríkinu tækifæri til að kanna hvort vilji sé til þess að hafa fyrirtækið að meirihluta í opinberri eigu. Tilboð Magma Energy átti að renna út í gær. Eftir fund stjórnar- formanns OR, borgarstjóra og for- manns borgarráðs með fjármála- ráðherra á miðvikudag var ákveðið að óska eftir framlengingu. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og aðrir áhrifa- menn innan Vinstri grænna hafa lýst áhuga á því að HS Orka verði í eigu opinberra aðila, mögulega með aðkomu lífeyrissjóðanna. Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður OR, segir að forsvarsmenn Magma Energy hafi fallist á framlengingu, og endur- nýjað tilboð renni út 31. ágúst klukkan 17. „Þeim fannst vissulega óþægi- legt að geta ekki gengið frá mál- inu, en skildu þessar aðstæður,“ segir Guðlaugur. Hann segir bolt- ann nú hjá ríkisstjórninni, og bíður útspils hennar. Verði tilboð Magma Energy í hlut OR í HS Orku samþykkt mun OR tapa milljörðum á kaup- um sínum í Hitaveitu Suðurnesja, segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinn- ar, í tilkynningu til fjölmiðla. OR keypti hlut í Hitaveitu Suður- nesja um mitt ár 2007, en síðar hefur fyrirtækinu verið skipt upp í HS Orku annars vegar og HS Veit- ur hins vegar. Sigrún Elsa segir aðeins lítinn hluta kaupverðsins greiddan út við undirritun. Geysir Green Energy, samstarfsaðili Magma Energy, hafi þegar keypt 34 prósenta hlut Reykjanesbæjar, og verði 32 pró- senta hlutur OR seldur til Magma Energy hafi þessir samstarfsaðil- ar greitt út 6,2 milljarða fyrir 66 prósenta hlut í HS Orku. Öðrum peningagreiðslum sé skotið langt inn í framtíðina. Til samanburðar má geta þess að OR keypti 16,6 prósenta hlut í Hita- veitu Suðurnesja fyrir 8,7 millj- arða króna, segir Sigrún Elsa. Orkuveitan telur tilboð Magma Energy jafngilda 6,31 krónu á hlut. Sé tilboðið núvirt jafngildir það um 4,4 krónum á hlut miðað við 10 prósenta ávöxtunarkröfu, segir Sigrún Elsa. Miðað við það verði afföll OR um 6 milljarðar króna, að því gefnu að lokagreiðsla skili sér eftir sjö ár. Guðlaugur segist algerlega ósamþykkur því að tilboð Magma Energy sé óhagstætt. Útreikning- ar Sigrúnar Elsu virðist því rangir. Það sé ekki skoðun fjármálastjóra OR, sem sé löggiltur endurskoð- andi, né óháðs ráðgjafafyrirtækis sem OR hafi kallað til. brjann@frettabladid.is Stjórnvöld fá frest til að skoða HS Orku Tilboð Magma Energy í hlut OR í HS Orku hefur verið framlengt til 31. ágúst að beiðni stjórnvalda. Boltinn hjá ríkisstjórninni segir stjórnarformaður OR. Verði tilboð Magma samþykkt mun OR tapa milljörðum segir fulltrúi Samfylkingar. ÓTTAST TAP Greiðsla til Orkuveita Reykjavíkur gæti rýrnað um sex milljarða króna frá því skuldabréf verður gefið út þar til það fæst greitt eftir sjö ár, segir Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 30° 21° 27° 30° 23° 22° 21° 29° 23° 22° 29° 21° 32° 33° 21° 23° 36° 24°Á MORGUN 5-10 m/s sunnan og vestan til en hvassara með suður- ströndinni. Hægari annars staðar. SUNNUDAGUR 5-13 m/s hægastur suð- vestan til 10 10 10 10 9 8 9 10 14 12 4 5 5 5 6 8 12 8 10 8 10 6 12 12 12 12 14 15 11 12 10 12 VEÐRIÐ Á MENNINGARNÓTT Þokkalegasta veður- spá er í kortunum fyrir menningarnótt í Reykjavík. Vindur verð- ur sæmilega hægur en því er ekki að neita að búast má við skúrum en þó eru líkurnar ekki mjög miklar ennfrem- ur sem sú gula gæti gægst fram, einkum þó þegar líður á daginn. Hlýtt verður í veðri eða hátt í 14 stig þegar hlýjast verður. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur LÖGREGLUMÁL Lögreglan rannsakar enn gögn sem aflað var á morðvettvanginum í Dals- hrauni á þriðjudag. Þá er enn verið að ræða við vitni úr húsinu. Rannsóknin er þó langt komin. Ekki fæst uppgefið hvort Bjarki Freyr Sigurgeirsson, grunaður morðingi, hefur játað glæpinn eða hvort hann man yfir höfuð eftir því sem gerðist. Lögregla vill ekki gefa upp hvað Bjarki er talinn hafa notað til að myrða fórnarlambið og segir morðvopnið enn í rannsókn. Heim- ildir blaðsins herma að um eldhústæki hafi verið að ræða, líklega samlokugrill, sem hafi verið mölbrotið og illa farið eftir bar- smíðarnar. Bjarki var í annarlegu ástandi þegar hann var handtekinn eftir að hafa bankað upp á hjá nágranna sínum alblóðugur en rólegur og tilkynnt honum að félagi hans hefði slasast við að leika Köngulóarmann- inn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Bjarki Freyr í mikilli óreglu. Hann átti það til að taka muldar sjóveikitöflur í nefið, en það hefur sterk vímuáhrif. Þá keypti hann reglulega bjór, tappaði honum sykurblönd- uðum á plastflöskur og lét hann gerjast frekar til auka áfengismagnið. Tekin var formleg skýrsla af Bjarka á þriðjudag en ekki er búið að yfirheyra hann síðan. Eins og áður segir fæst ekki uppgef- ið hvort Bjarki hefur játað morðið en sam- kvæmt heimildum blaðsins þykir málið liggja tiltölulega ljóst fyrir. Bjarki mun sæta gæsluvarðhaldi til 1. september hið minnsta. - sh Lögreglurannsókn á morðinu í Dalshrauni í Hafnarfirði stendur enn yfir en er langt komin: Vopnið enn rannsakað og rætt við vitni Í DALSHRAUNI Það var í þessu húsi sem morðið var framið á mánudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA VIÐSKIPTI Kröfur í þrotabú Baugs eru á þriðja hundrað milljarða króna, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Gjaldþrotið er þar með stærsta gjaldþrot fyrirtækis í einkaeigu í Íslandssögunni, að bönkunum frátöldum. Frestur til að lýsa kröfum í þrotabúið rann út á miðviku- dagskvöld. Yfir hundrað kröfur eru gerðar í búið, og kemur sú stærsta frá Landsbankanum. Bæði gamli og nýi Landsbankinn gera kröfu í búið og nema kröf- urnar samtals líklega yfir hundr- að milljörðum, að því er sagði í fréttum Stöðvar 2. - sh Fjöldi krafna í þrotabú Baugs: Kröfurnar yfir 200 milljarðar REYKJAVÍK Þorleifur Gunnlaugs- son borgarfulltrúi hefur lagt til við stjórn Orkuveitu Reykjavík- ur að fyrir- tækið hætti að bjóða „völd- um sveitar- stjórnarmönum og embættis- mönnum til lax- veiða í Elliða- ánum“. Í stað þess verði leyfin afhent Stang- veiðifélagi Reykjavíkur. Þorleifur reifar að borgar- fulltrúar, fyrrum borgarstjórar, embættismenn, sveitarstjórar á veitusvæði OR, stjórn og æðstu stjórnendur OR, fyrrum stjórn- endur OR og sviðsstjórar, fái í eina viku á ári að veiða í ánum. Kostnaðurinn sé á þriðju milljón króna. Tímabært sé að afnema þessa arfleifð frá tíð Geirs Hallgríms- sonar. - kóþ Borgarfulltrúi Vinstri grænna: Orkuveitan láti af laxveiðinni ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON UTANRÍKISMÁL Brasilísk yfirvöld leggja mikla áherslu á að fá lýta- lækninn Hosmany Ramos fram- seldan til heima- lands síns. Ramos, sem er vel þekktur og stórtækur glæpamaður í Brasilíu, var handtekinn við komuna til Íslands í síðustu viku þegar hann framvísaði vegabréfi bróður síns. Dómsmálaráðherra Brasilíu, Romeu Tuma Junior, hefur sagt við þarlenda fjölmiðla að hann sé reiðubúinn að koma sjálfur til Íslands ef það kynni að liðka fyrir framsalsbeiðninni. Enginn fram- salssamningur er í gildi á milli landanna. Hann hefur sagst tilbú- inn að skipta á Ramos og íslensk- um föngum sem sitja í fangelsi í Brasilíu. -sh Dómsmálaráðherra Brasilíu: Íhugar að koma til Íslands til að fá Ramos heim HOSMANY RAMOS ÞÝSKALAND Þýskur lögreglustjóri sætir nú gagnrýni eftir að hafa í tvígang handtekið fimm ára gamla stúlku. Vefmiðillinn Anan- ova greinir frá þessu. Fyrst handtók hann stúlkuna eftir að hún hafði strítt syni hans í sandkassaleik. Nokkrum dögum síðar handtók lögreglustjórinn stúlkuna aftur þegar hún sá hann einkennisklæddan og gaf honum fingurinn, að því er hann fullyrð- ir. Hann sendi síðan lögreglulið að heimili hennar til að tilkynna foreldrunum að stúlkan yrði kærð fyrir andfélagslega hegðun. Lögmaður fjölskyldunnar hefur kvartað til innanríkisráðuneytis- ins vegna málsins. - sh Þýskur lögreglustjóri í vanda: Handtók 5 ára stúlku í tvígang GENGIÐ 20.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 224,2466 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,7 129,32 212,29 213,33 182,96 183,98 24,575 24,719 21,253 21,379 17,922 18,028 1,3646 1,3726 200,56 201,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.