Andvari - 01.01.1885, Side 84
78
Odáðahraun.
opið á Yxnadal að vestanverðu við fljótið eru rústir af
Helgastöðum í Króksdal.
Krossá er stutt, en fellur í miklum gljúfrum, og er
móberg í hömrunum, beint á móti Krossármynni eðapó
litlu sunnar er hóll vestan fljóts, sem heitir Galthóll.
Þar tekur fljótsdalurinn að beygjast til vesturs; par er
Króksdalur,-sem áður var byggður, skógi vaxinn og frjór;
beygist dalurinn enn meir vestur við Helgastaði, og
heldur þeirri stefnu suður fyrir Kiðagil, þá verður stefn-
an hjer um bil beint í suður; þar fellur Skjálfandafljót
ofan af hálendinu 1 miklum gljúfrum; heitir þar Ytra-
Fljótsgil og Fremra-Fljótsgil Kiðagil kemur í þremur
drögum af hálendinu fyrir vestan fijót; nyrzta dragið
kemur upp nálægt Gvendarhnúk upp af Mjóadal. Hrauná
fellur í fljótið að austan beint á móti Kiðagili; þar hefir
hraunkvísl fallið niður í fljótsdalinn og er kölluð Kvía-
hraun; heíir hún fallið niður undir mynnið á Yxnadal;
hefir íljótið orðið að grafa sjer farveg austan við það.
Melgrófir eru víða vestur með hrauninu og töluverðir
hagablettir í því sjálfu. Milli Hraunár og Yxnadalsár
er Illagil. Yxnadalur er langur og mikill dalur, snýr
liann fyrst til suðausturs en beygist svo í suður, er hann
fer að grynnka; áin er vatnsmikil og beggja vegnaurðir
og melöldur; hlíðarnar eru að mestu leyti uppblásnar,
en allgóðir hestahagar eru á mýrlendi neðarlega 1 miðj-
um dalnum norðanvert við ána utan í hlíðunum rjett
fyrir vestan Stapaá, þar sem hún fellur niður í dalinn.
Um kvöldið 12. ágúst komum við á Yxnadal og tjöld-
uðum í gróf rjett fyrir norðan rústir af gömlum gangna-
mannakofa.
Um morguninn 13. ágúst riðum við á stað upp úr
Yxnadal upp á hálendið, og fórum síðan beint suður á
Trölladyngju til þess að skoða liana. Móberg er hjer í
fjöllum, eins og fyr hefir verið getið, en ofst í dala-
brúnunum er alstaðar dólerít; það eru afargömul ísnúin
hraun, runnin fyrir ísöld, sem liggja ofan á móberginu;