Spegillinn - 01.07.1983, Page 12
Bretland:
Nakin kona
Já, góöan daginn. Er þetta ekki ör-
ugglega hjá lögreglunni?
Eg heiti Jón Th. Jónsson. Sko, ég sit
hérna á Horninu.
Já sjáðu...nei ekki á næsta horni,
heldur á Horninu, það er sko veitinga-
staður eða þannig.
Ég vil taka það fram strax í upphafi að
ég er að vísu búinn að drekka eina hvít-
vín.
Klukkan er orðin sex.
Jú þetta var ágætt hvítvín en það var
annað sem ég ætlaði að tala um.
Ég er ekkert fullur samt, ég datt
aðeins í það í gær sko, en það hefur
næstum ekki komið fyrir síðan ég fór í
meðferðina um jólin, ég veld þessu al-
veg.
Já, það var þetta með gangstéttarhell-
urnar hérna fyrir utan.
Heyrðu fyrirgefðu ég ætla að ná í
krónu.
...Já þetta er Jón Th. hérna aftur.
Hann er hérna ennþá fyrir utan sá með
gangstéttarhellurnar.
Ég vil ennfremur taka fram áður en ég
held áfram að ég hef eiginlega ekkert
komist í kast við lögin nema undir
áhrifum áfengis.
Það var ekki ég sem braust inní Gull
og silfur í gær, ég kannast við hann að
vísu, alræmdur kvennabósi sem var nreð
mér í meðferð.
Nei, ekki með mér þannig, heldur
með mér í meðferð. Með í meðferðinni.
Það var hann sem var í skjalafalsinu
þarna um árið, ekki ég. Við erunr að
vísu skyldir og hann heitir Jón líka, okk-
ur er stundum ruglað saman.
Hinsvegar viðurkenni ég að það var
ég sem stal tómötunum í Lúllabúð þegar
ég var tólf ára, en það settlaðist, við
Lúlli erum sko báðir af Bergsætt.
Heyrðu, hann er ennþá að bisa við
gangstéttarhellurnar. Það sem ég ætlaði
að fá að vita, það var hvort það væri
löglegt að taka gangstéttarhellur og
setja þær uppí skottið á bílnum sínum?
Það er hérna maður að gera það, nei
ekki það, heldur hitt.
Nei sko, að setja gangstéttarhellur
uppí skottið á bílnum sínum.
Hann erá rauðri Lödu, hann er farinn
núna, en númerið var R 2601, það stakk
mig svo að sjá númerið af því það er
sama númerið og á tékkheftinu sem ég
fékk lánað í Þjóðleikhúskjallaranum í
gær hjá eiginmanni fyrrverandi konu
minnar, þessum sem var með mér í
meðferðinni.
Heyrðu gangstéttarhellnaþjófurinn
var nú grunsamlega líkur þessum gæja
sem er giftur konunni minni og var með
mér í meðferð.
Ég á ekki fleiri krónur, en ég verð
hérna áfram á Horninu í kvöld og næ í
sönnunargagn, ég held hann hafi skilið
eftir smá hellubrot.
Að
láta
vita
12 SPEGILLINN