Fálkinn


Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 2

Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 2
o FÁLKINN Málverkdsýning Natthíasar Siafússonar Um þessar mundir hefir Matthías Sigfússon, listmálari, sýningu á mál- verkum og vatnslitamyndum í Lista- mannaskálanum. Alls eru myndirn- ar 60, þar af 57 málverk. Meðal myndanna eru nokkrar kop- íur af verkum gömlu stórmeistar- anna, t. d. Raphaels, Rubens, Rem- brandts og Titians. Annars eru lands- lagsmyndir yfirgnæfandi, þar af margar frá Þingvöilum. Matthías er skemmtilegur málari og mjög fjölhæfur, og ber sýningin þess glögg merki. Doppustíllinn, sem Ásgeir Bjarnþórsson er þekktastur fyrir af íslenskum málurum, er á nokkrum myndunum, og sumar þeirra eru nokkuð skennntilegar. Kjarvalsblær mótar sumar mynd- irnar, t. d. hraúnmyndir frá Þing- völlum. Nokkrar abstraktmyndir get- ur einnig að líta. Heildarsvipur sýn- ingarinnar er snotur og tistvinir eiga allir erindi niður i Listamannaskála til að skoða hana. Flosagjá. Ljósm.: Vignir. Einar Vigfússón, fyrrv. bakarameist- uri, Njálsg. 85, verður 80 ára 17. þ.m. HÚSNÆÐISLEYSIÐ i Argentínu er verra en i nokkru landi, sem ekki hefir verið eytt í stríði og versnar síöðugt, bæði vegna mannfjölgunar í landinu og stóraukins innflutnings. Er talið að 800.000'ib'úðir vanti í Argentínu, þar af yfir 100.000 í höfuðborginni, Bue- nos Aires. AÐALSMAÐUR í ATVINNULEIT. Sir Alexander Seton, 45. baronett í ættinni er að leita sér að ársvist sem vinnumaður einhvers staðar í Skotlandi. Honum samdi ekki við síðasta húsbónda sinn, sem greiddi honum ekki nema fjögur pund fyrir vikuna, en sir Alexander sagðist liafa ráðið sig fyrir fimm. „Sunday Pictorial“ segir frá þessu og lætur þess getið að sir Alexander sé mikið uppáhald samverkamanna sinna. Blaðið hefir lika haft tal af lady Set- on, sem sömuleiðis er á hnotskóm eftir atvinnu. þó að hún eigi von á 50.000 punda arfi innan skamms. VELMEGUNIN í U.S.A. Yfir helmingur þeirra 50.4 milljón fjölskyldna, sem eiga lieima í Banda- ríkjunum, á bifreið, segir í skýrslu frá Federal Reserve Board. En yfir 77% af öllum fjölskyldum eru líf- tryggðar með minnst 100 dollara ið- gjalda á ári. 70% eiga innstæðu í banka og 45% eiga liús eða jörð. FIMM Á ÁRI! Frú Tlielma Gibbs í Atlanta, sem eignaðist tvíbura 16. janúar í fyrra, eignaðist þríbura í viðbót í nóvem- ber, og vógu þeir kringum 1300 gr. hver. Þessi ársframleiðsla er eintóm- ar stúlkur. Frú Gibbs er 27 ára og hefir eignast fjögur börn áður. — og úr því að farið er að tala um barneignir er rétt að geta þess að Alexandro gamli Massini (hann er 78 ára) gaf nýlega öllum samverka- mönnum sínum vindil í tilefni af því að konan hans eignaðist tvíbura. Hún er 39 ára og þau giftust 1939. RÓMANTÍK. Það er póstmeistarinn í New York, Albert Goldman, sem segir þessa sólskinssögu sem fjallar um bréf, er var sett á póst fyrir 25 árum. Mað- urinn sem sendi bréfið var að biðja sér stúlku, skriflega. Hann sagði í bréfinu að ef hann fengi ekki svar þá mundi stúlkan ekki heyra frá honum framar. — Áritunin á bréf- Inu var ófullnægjandi og það komst ekki i hendur viðtakanda fyrr en nýlega. Hún svaraði sendándanum um Iiæl og sagði að ef hann vildi .... og svo framvegis, þá .... og svo framvegis. Viku síðar voru þau gift. KOM RÍKUR HEIM. Harry W. Stedman fór nýlega á veðhlaup i Flemington með 50 krón- ur i vasanum. Hann veðjaði rétt á 7 vinnendur af átta og varð að eigja sér skothelda bifreið til að komast heim með vinninginn, sem var um liálf milljón krónur. 234 PÖR AF KVENNSKÓM. Perugia er frægt nafn í Púrís. Það er hann sem gerir teikningar af kvenskóm og er sjaldgæfur lista- maður í þeirri grein. En hann er líka slyngur kaupsýslumaður og hef- ir grætt stórfé á skófyrirmyndum sínum. En nýlega gekk fram af honum er Iiann fékk pöntun á 234 pörum af skóm frá Senora Eva Du- arte de Peron, forsetafrúnni í Ar- gentínu. „Kaupskapur er kaupskap- ur,“ hugsaði Perugia með sér og hrosti, „en ekki skil ég hvað frúin ætlar að gera við alla þessa skó. Hún yrði 400 ár að slíta þeim út. Kannske heldur hún að liún sé ó- dauðleg." EKTA LILJEFORS. Það hefir komið á daginn, að teikning ein, af úlfi í skógi, sem var keypt á uppboði fyrir 50 aura fyrir tiu árum, er frummynd eftir sænska málarann Bruno Liljefors og að minnsta kosti 3000 króna virði. Hún er merkt „Bruno Liljefords —89“, en eigandinn hélt að hún væri steinprentun. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason Framkv.stjóri. Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6 BlaSið kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiðist fyrirfram Prentað í Herbertsprenti

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.