Fálkinn


Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 10

Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 10
10 FÁLKINN YHC/ftf iMmvmHt Litlir varðhundar. Hundarnir þurfa ekki að vera stórir iil þess aS vera duglegir varö- hundar. Maöur nokkur sem bjó í sumarhúshverfi átti tvo ofurlitla greifingjahvolpa. Eina nóttina fóru þeir aö gelta sem ákafast, svo aö maðurinn fór á fætur og kveikti. En ekki varð liann var viö neitt sér- stakl. Morguninn eftir sá hann að lang- ur stigi hafði verið reistur upp að glugganum. Átta hús í grenndinni höfðu verið rænd, en þjófurinn hafði hætt við innbrotið þarna þegar hann heyrði hundana gelta. Vitið þið að: Vorið byrjar 20. mars •— sam- kvænrt almanakinu. Þá eru vorjafn- dægur og dagur og nótt jafn löng, nfl. 12 timar. Sólin kemur upp beint í austri og gengur til viðar í vestri. Næst verða dagur og nótt jafn- löng 23. september, haustjafndægur. Tarzan á kvikmynd og í raun og veru. Ný Tarzankvikmynd, sem heitir „Tarzan og töfralindin“ 'er nýkomin á markaðinn í Ameriku. Það er 25. Tarzanmyndin i röðinni. 1 yfir 30 ár hafa allir drengir, og enda stúlk- ur líka, fylgst með afrekum Tarzans í kvikmyndunum. Tarzan sigrast á hverri þraut, hvað sem fyrir kemur. En síðan 1918 hafa margir Tarz- an-Ieikendur gengið úr skaftinu. Síð- asti Tarzaninn scm þið þekkið heit- ir réttu nafni Johnny Weissmuller, en i „Tarzan og töfralindin“ verður nýr Tarzan, — sá tiundi í röðinni. Hann heitir Lex Barker og er há- menntaður maður. Hann hefir geng- ið á háskóla og verið leikari í New York. Hann vegur 200 ensk pund og er sex fet og fjórir þumlungar á hæð. Hann hefir orðið að æfa sig af miklu kappi til þess að geta hlaup ið, synt og ldifrað eins og Tarzan sæinir. En hafið ])ið hcyrt um þann eina rétta Tarzan — sem var Tarzan cn lék hann ekki. Það er best ég segi ykkur frá honum. Einu sinni fyrir mörgum árum, það var 1903, voru tveir riðandi lögreglumenn á ferð um óbyggðir í Suður-Afríku. Þeir rákust á bavíana sem voru að leika sér, og annar lög- reglumaðurinn skaut á hópinn. Ap- arnir flýðu í allar áttir, en einn þeirra komst ekki eins fljótt undan og hinir. Lögreglumennirnir héldu að hann liefði særst oð hleyptu á sprett á eftir honnum og náðu i hann. En nú sáu þeir að þetta var ekki api, heldur negrastrálcur. Hann urraði og fitjaði upp á trýnið og hoppaði á fjórum fótum. Þessi Tarz- an, sem aparnir höfðu fóstrað var 12 ára. Enginn svertingi þarna í nágrenn- inu kannaðist við að eiga strákinn og svo var hann sendur á geðveikra- hæli í hænum. En svo komst hann í fóstur á bóndabæ. Bóndinn kallaði hann Lúkas. Fyrst í stað hagaði hann sér eins og api. Hann vildi ekki mannamat en át hráan maís, kaktus, villihun- ang og strútsegg. En smám saman varð hann allra duglegasti vinnu- maður. En hann upplifði aldrei æv- intýrin, sem Tarzanmyndirnar segja frá'. t c 0 (D—JÉ IJJb- S Copy.-.ght P I B Bo* 6 Copenhogen s r ' c o c *><&€-. 3. X ^ ^ LL Adamson ætlaði að veiða tvær rottur. Skrítlur — fíeint úfram og svo aðra götu ú hœgri hönd. Þaff er ekkert um að villast, því aö þaö er turn á kirkj- unnil — fíeriö þiö svo vel aö giröa ykkur öryggisbeltunum — viö fljúg- um nefnilega með lijólin upp, núna. — Læknir! Læknir! orgaði Schultz í símann, — komið þér fljótt. Kon- an mín gapir alltaf þegar hún sefur, og núna rétt i þessu skreið mús nið- ur úr kokinu á henni. — Eg skal koma undir eins, sagði læknirinn, — en þangað til ég kem skuluð þér reyna að halda ostbita fyrir vitunum á frúnni og sjá til hvort músin snýr þá ekki við. Þcgar læknirinn kom stóð Sehultz — Svona, svona — þér skuliÖ ckki veröa reiður —ég skal svei mér sjú um, aö strákurinn veröi flengd- ur áöur en hann háttar í kvöld! — Þá er allt tilbúiö til að taka kökuna út úr ofninum. — Þiö mun- ið aö liafa spenntar greipar. og dinglaði flyðru yfir andlitinu á meðvitundarlausri konunni sinni. — Hvað eruð þér að gera? sagði læknirinn hissa. -— Eg sagði yður að taka ostbita. Mýsnar kæra sig ekkért um flyðru. ■—• Eg vcit það andvarpaði Schultz, — en ég ætlaði að reyna að ná í köttinn fyrst, þvi að hann elti mús- : na.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.