Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 12

Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 12
 8. október 2009 FIMMTUDAGUR BANDARÍKIN Tilraunir með nýtt bóluefni sem myndar mótefni gegn kókaínvímu hafa gefið góða raun í Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Kenningin er sú að mótefnið geri kókaínið óvirkt áður en það berist til heilans og komi þannig í veg fyrir vímu. Dr. Thomas Kosten, sem vann við rannsókn- ina, segir að þetta sé í fyrsta skiptið sem tilraunir séu gerðar með mótefni gegn kókaíni á fólki. Korsten segir að fólkið hafi fengið fimm skammta af mótefni á 24 vikna tímabili. Um 75 prósent af þeim hafi myndað nægilegt mót- efni til að hamla áhrifum af einum til tveimur skömmtum af kókaíni. - th Bandarísk rannsókn gefur góða raun: Nýtt bóluefni gegn kókaínvímu KÓKAÍN Mótefnið gerir kókaínið óvirkt áður en berst til heilans. Verð á mann í tvíbýli 88.700 kr. Innifalið: Flug með sköttum, gisting á 4* hóteli með morgunverði á Hotel Mercure Korona 4* í hjarta borgarinnar í fjórar nætur og íslensk fararstjórn. Skoðunarferðir ekki innfaldar. Búdapest Borgarferð Fyrirspurnir og nánari upplýsingar: www.expressferdir.is info@expressferdir.is Sími 590 0100 11. – 15. mars 2010 Heimsborgin glæsilega Fimmtudagur 11. mars Farþegar komnir inn í miðbæ um hádegisbil og frjáls dagur eftir það. Mikið er um frábær veitingahús í nágrenni við hótelið. Föstudagur 12. mars Skoðunarferð um borgina og henni gerð góð skil. Farið á alla mest spennandi og mark- verðustu staði borgarinnar. Ferð sem enginn má missa af. Laugardagur 13. mars Gönguferð um hluta Pest þar sem m.a. verður gengið um Gyðingahverfið, slóðir Franz Liszt og farið á elsta kaffihús borgarinnar. Þægileg og áhugaverð gönguferð. Sunnudagur 14. mars Frjáls dagur en einnig í boði að fara í siglingu á Dóná. Mánudagur 15. mars Á brottfarardegi verður ekki farið út á völl fyrr en síðdegis. Farþegum stendur tvennt til boða, að vera í borginni fram að brottför eða fara út á hina frægu Sléttu og heimsækja einstakan búgarð. Ógleymanlegt og alltaf mikið fjör. Express ferðir bjóða frábæra 5 daga ferð með beinu flugi til Búdapest. Um er að ræða langa helgi þar sem sögu og menningu borgarinnar verða gerð góð skil – og ekki spillir einstaklega hagstætt verðlag í Ungverjalandi. Fararstjórarnir Lilja Hilmarsdóttir og Þórarinn Sigurbergsson eru þaulreynd í faginu og gjörþekkja borgina. F í t o n / S Í A F I 0 3 0 8 1 7 NÝ TÆKNI 8 EINKALEYFI SKIN VIVO Fyrsta kreminu sem snýr við öldrunarferli húðarinnar1 Æskan er í genum þínum. Virkjaðu þau með KYNNING Í LYFJU LÁGMÚLA FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG 1) F rá B io th er m . 20% AF SLÁTTUR Á KYNNINGU Lágmúla 5 – Sími 533 2300 LANDSBANKINN Framkvæmdastjóri Landsvaka er sáttur við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli átján sjóðsfélaga gegn honum. DÓMSMÁL „Dómurinn hefur öðru fremur fordæmisgildi gagnvart öllum þeim sem áttu fé í peninga- markaðssjóðum Landsbankans,“ segir Jóhann Haukur Hafstein hér- aðsdómslögmaður um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, sem í gær féllst á bótakröfu handhafa hlutdeildarskírteina hjá Lands- vaka, vörsluaðila peningamarkaðs- sjóða Landsbankans. Jóhann útilok- ar ekki að dómurinn geti sömuleiðis skapað fordæmi fyrir þá sem áttu í sjóðum annarra banka. Þetta var varakrafa Jóhanns, sem fór fyrir átján einstaklingum sem áttu fé í sjóðnum. Héraðs- dómur sýknaði Landsbankann af aðalkröfu þeirra, sem kvað á um að hópnum yrði bætt það fjárhags- lega tap sem hann varð fyrir. Þá taldi hópurinn þær upplýsingar sem lágu fyrir um fjárfestingar- stefnu hans hafa verið ófullnægj- andi. Einstaklingarnir sem Jóhann fór fyrir stefndu Landsbankanum og Landsvaka vegna rýrnunar á eign þeirra í peningamarkaðssjóðunum. Þegar sjóðunum var slitið í kjölfar þjóðnýtingar bankanna fyrir ári urðu sjóðfélagar fyrir verulegri skerðingu en þeir fengu tæp 69 prósent af fjármunum sínum til baka. Aðalkrafan hljóðaði upp á að fá þau þrjátíu prósent sem upp á vantaði. Vísað er til þess að þeir sem innleystu fé úr sjóðnum á milli 10. september og 7. október hafi fengið mun hærri upphæð en þeir sem á eftir komu. Ekki hefur verið metið hversu háa bótakröfu er um að ræða, að sögn Jóhanns. Á bilinu tíu til fimmtán þúsund einstaklingar áttu fé í peninga- markaðssjóðunum og námu eignir þeirra sem málið höfðuðu allt frá hálfri milljón til fimmtíu milljóna króna. Þetta er fyrsti dómurinn sem fellur einstaklingum í vil gegn bönkunum eftir bankahrunið í fyrra. Jóhann segir á bilinu tuttugu til þrjátíu einstaklinga geta hugsað sér að höfða mál af svipuðum toga. „Við erum sátt við niðurstöðu dómsins,“ segir Björn Þór Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Landsvaka. Hann bendir á hún sanni að starfsfólks sjóðsins hafi unnið af heilindum. Hvorki Jóhann né lögmaður Landsvaka hefur tekið ákvörðun um áfrýjun málsins. Björn telur líklegt að ákvörðun um það verði tekin á mánudag. jonab@frettabladid.is Landsbankinn er bótaskyldur Átján sjóðsfélagar Landsvaka geta átt von á bótum eftir að fyrsti dómurinn tengdur bankahruninu féll í gær. Allt að þrjátíu til viðbótar bíða á hliðar línunni. Sjóðstjóri Landsvaka segist sáttur við dóminn. „Landsvaki lýsir sig ósammála niðurstöðu dómsins um varakröfu stefnenda. Samkvæmt dómnum bar Landsvaka að lækka gengi sjóðsins þann 10. september 2008 vegna frétta um að líkur væru á að ábyrgð vegna XL Leisure (innskot: bresk ferðaskrifstofa sem Eimskip hafði selt en varð gjaldþrota) myndi falla á Eimskip. Dómurinn telur að þeir sem innleystu á tímabilinu frá 10. september 2008 til lokunar 6. október hafi fengið of hátt verð fyrir eignarhlut sinn í sjóðnum og þeir sem eftir sátu hafi orðið fyrir tjóni. Landsvaki vill taka fram að niðurfærslur eigna voru að mati félagsins fullnægjandi í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga á hverjum tíma.” Í MÓTSVARI LANDSVAKA SEGIR:

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.