Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.10.2009, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 08.10.2009, Qupperneq 42
 8. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR 1. Bianco – leðurstígvél Verð 34.900,- 2. Bianco – leðurstígvél Verð 21.900,- 3. Bianco – leðurskór Verð 19.900,- 4. Bianco – leðurstígvél Verð 31.900,- 1. 2. 3. 4. „Einu sinni lagði ég mikla áherslu á að skórnir litu sem best út og þótti skilyrði að þeir væru með háum hæl,“ segir Marta María Jónasdóttir, fagurkeri og blaðamaður á pressan.is. Marta á tvo drengi og er sá yngri aðeins þriggja mánaða. Hún segist því ekki gera kröfu um að hvert einasta skópar sem hún eignast sé með háum hæl um þessar mundir. Það sé bara full erfitt að sjá um lítil börn á háum hælum. Hún er þó ekki af baki dottin þegar kemur að smartheitum enda ekki kölluð Marta smarta fyrir ekki neitt. „Skvísu- gangurinn verður að víkja annan hvern dag eða svo fyrir praktískum áherslum,“ segir hún galvösk. Marta segir að miklu máli skipti að hugsa vel um skóna sína. Því fari hún reglulega með þá skó sem henni eru kærir til skósmiðs og láti lappa upp á þá. Hún bendir líka á að það geti verið dýrt að spara og gott sé að hafa gæðin í fyrirrúmi þegar keyptir eru skór til að ganga í hversdags, jafnvel þótt þeir séu í dýrari kantinum. Inn á milli sé svo hægt að kaupa ódýrari skó sem séu akkúrat í tísku þá stundina. „Þegar ég hef farið til Ítalíu hef ég lagt á mig langt ferðalag til að komast í útsölumarkaði Prada og Gucci. Ég rata ekki mikið þar í landi en ég veit nákvæm- lega hvernig á að komast á þessa staði,“ segir hag- sýna húsmóðirin og skellir upp úr. „Einu sinni man- aði ég vinkonu mína til að leigja með mér bíl svo við kæmumst á þessa markaði. Við keyrðum í marga klukkutíma til þess eins að kaupa skó og föt,“ segir hún og játar að þótt hún vilji eiga fallega skó og föt sé hún svolítið nísk. - kdk Unnur Lára Bryde, annar af aðaleigendum skóverslunar- innar Bianco, segir margt spennandi að gerast í skótísku vetrarins. Hælaskórnir eru með þykkari hælum og rúnnaðri tá og lágbotna stígvél og skór eiga upp á pallborðið. Þórunn Sigurðardóttir á og rekur Bianco með Unni Láru. „Flatbotna stígvél, sem ná upp yfir hné, eru mjög mikið í tísku og al- mennt virðist mikill spenningur fyrir lágbotna skóm,“ segir Unnur Lára. „Ökklaskór eru líka mjög vin- sælir og hælarnir eru þykkari og breiðari en áður og eitthvað er að koma af hælum úr filterefni í stíg- vélunum. Mjög mikið er um hælaskó sem eru með þykkum botni undir táberginu en almennt eru tærn- ar rúnnaðri nú þótt þær séu ekki breiðar.“ Litir vetrarins eru svartur, eins og endranær, en sérstaka eftir- tekt vekur grár sem er mjög áber- andi, ekki hvað síst í ökklaskóm, að sögn Unnar Láru. „Með gráum og svörtum eru svo brúnir tónar í stíg- vélum og kuldaskóm. Spariskórnir eru í skemmtilegum litum í ár, svo sem kóngabláum og eldrauðum en í kringum jólin munum við svo sjá meiri glamúr, svo sem pallíettur, gull og silfur og skraut á skónum.“ Satín er að sögn Unnar Láru áber- andi í spariskónum og mikið um að þeir séu bundnir að framan með reimum sem eru þræddar í göt. „Við erum aftur að sjá reimaða hermannaklossa, grófari gerðir af kuldaskóm, og til að mynda erum við með æðisleg ljósbrún kulda- stígvél með rauðappelsínugulum rennilás. Ekki má gleyma því að Bianco er einnig með mikið af tösk- um, klútum og skarti á góðu verði, sem er tilvalið í jólagjafir og tæki- færisgjafir. Það er mjög gott verð á stærri töskum hjá okkur sem er bæði hægt að nota í skólann og sem tölvutöskur.“ Unnur Lára bendir á heimasíðu Bianco, www.bianco.com, þar sem finna má allar vörur sem Bianco framleiðir. „Bianco-fyrirtækið er eins og ein stór fjölskylda og við höfum fundið fyrir því eftir að kreppan skall á. Bianco úti hefur aðstoðað okkur við að halda verðinu niðri og við finnum fyrir ótrúleg- um velvilja og hjálp. Það er óvenju- legt að jafnstórt fyrirtæki sé jafn persónulegt og notalegt í samskipt- um. Og það skilar sér til viðskipta- vinanna.“ Grár litur aftur í tísku Gráir ökklaskór, reimaðir hermannaskór og kóngabláir hælaskór eru meðal þess sem finna má í Bianco þessi misserin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gerði góð kaup á Ítalíu Marta María er fagurkeri af guðs náð og ekki kölluð Marta smarta fyrir ekki neitt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Marta María á orðið dágott safn af flott- um skóm sem henni eru mjög kærir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.