Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 65

Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 65
FIMMTUDAGUR 8. október 2009 49 Faðir leikkonunnar Lindsay Lohan segist hafa miklar áhyggjur af dóttur sinni og telur að fíknin muni verða henni að falli. Michael Lohan ræddi vandamál dóttur sinnar við fréttastöðina E! og þar segir hann meðal annars að Lindsay geti ekki tekið að sér hlutverk í því ástandi sem hún er. „Linds- ay getur ekki tekið að sér hlut- verk af því að stúlkan með alla hæfileikana er falin á bak við allan skítinn. Hún getur ekki verið hún sjálf. Þegar ég faðma hana að mér fæ ég hroll, ekki góðan hroll. Hún er önnur mann- eskja. Það eru ekki bara ólögleg eiturlyf og áfengi sem drepa því lyfseðilsskyld lyf geta verið janf hættuleg. Takið bara Heath Ledger, Michael Jackson og Dj AM sem dæmi,“ sagði hinn áhyggjufulli faðir í viðtalinu. Ekki sama stúlkan LIFÐU VEL! Ferskur Floridana í nýjum umbúðum F í t o n / S Í A Tímaritið Grazia greinir frá því að Brad Pitt hafi beðið fyrrverandi eiginkonu sína, leikkonuna Jenni- fer Aniston, að hitta hann á hóteli í New York. Pitt vildi hitta Aniston til að létta á hjarta sínu og ræða sam- band sitt við Jolie. „Jennifer kom og hitti Brad á hótel herbergi hans í New York stuttu eftir að hann hringdi í hana og bað hana að hitta hann. Brad vildi ræða sambandserfiðleika sína við Jennifer, sem er nokkuð óréttlátt af hans hálfu miðað við sögu þeirra. Jennifer var þó fljót að þagga niður í honum og sagðist ekki vilja taka þátt í þessu,“ sagði heimildar maður í viðtali við tíma- ritið. Þetta er í annað sinn sem sögu- sagnir um leynilega fundi Aniston og Pitts rata í blöðin. Leynilegur fundur RÆÐIR MÁLIN Brad Pitt og Jennifer Aniston á góðri stundu. Heimildarmyndin Guð blessi Ísland var frumsýnd í í Háskólabíói í gær. Heimildarmyndarinnar, sem er eftir Helga Felixson, hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Mikill fjöldi fólks var viðstaddur frumsýninguna og þrátt fyrir að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi átt frátekið sæti í salnum var hann hvergi sjáanlegur. Myndin virtist fara vel ofan í sýningar- gesti, enda um sögulega viðburði að ræða. - sm GUÐ BLESSI ÍSLAND LEIKSTJÓRINN ÁSAMT DÓTTUR SINNI Helgi Felixson þakkaði gestum fyrir komuna áður en sýning hófst. Hér er hann ásamt samstarfsfólki sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Rapparinn Dóri DNA og Finnur Jóhannsson. Birgitta Jónsdóttir þingmaður. Sæti Jóns Ásgeirs var tómt. Anna Fjóla Gísladóttir og sonur hennar, Lárus Valur. Elísabet Jökulsdóttir og Vera Illugadóttir. Hrafn Jökulsson og Máni Hrafnsson.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.