Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 74

Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 74
58 8. október 2009 FIMMTUDAGUR Aðalvinnin gur er glæsileg Lenovo fart ölva! ideapad 10. HVER VINNUR! Vinningar afhentir í ELKO Lindum.99 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Leik lýkur 23.10.09 SENDU SMS ELKO LTV Á NÚMERIÐ 1900 OG SVARAÐU SPURNINGU! Þú gætir unnið Lenovo fartölvu! Kíktu á nýjan og glæsilegan fartölvuvef www. .is/fartolvur Aukavinningar eru: GSM Sími · DVD myndir · Bíómiðar · Pepsi · Geisladiskar og margt fleira. ...ég sá það á visir.is Skólalíf er fyrsti fréttavefur sinnar tegundar á Íslandi þar sem framhaldsskólanemar birta fréttir og myndir frá félagslífi skólanna, auglýsa viðburði og þú getur nálgast vefútgáfur skólablaðanna. Við viljum bjóða þinn skóla velkominn á fréttavef framhaldskólanna á visir.is. SKÓLALÍFIÐ ER Á VISIR.IS HANDBOLTI Kiel tapaði í gær sínu fyrsta stigi á tímabilinu þegar liðið gerði jafntefli við Lemgo á heimavelli, 27-27. Staðan í hálf- leik var 13-12, Kiel í vil en Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. Aron Pálmars- son átti glim- r a n d i f í n a spretti með lið- inu bæði í fyrri og seinni hálf- leik. Hann skor- aði tvö mörk í röð í stöðunni 11-11 og tryggði þar með að sínir menn færu með forystu inn í leikhléið. Kiel náði svo góðum undirtökum í leiknum í síðari hálfleik. Aron skor- aði sitt þriðja og síðasta mark í leiknum þegar hann kom Kiel í fimm marka forystu, 24-19, þegar síðari hálfleikur var tæplega hálfnaður. En þá hrukku gestirnir í gang og jöfnuðu metin, 25- 25. Kiel komst tvívegis yfir en Lemgo átti ávallt svar við því. Bæði lið fengu tækifæri til að skora á lokamínútu leiksins en allt kom fyrir ekki. Hvorki Vignir Svavarsson né Logi Geirsson léku með Lemgo vegna meiðsla. Einn annar leik- ur fór fram í deild- inni í gær. Hannes Jón Jónsson skoraði eitt mark þegar hans menn í Hannover- Burgdorf töpuðu fyrir Melsung- en á heimavelli, 30-26. L emgo er með ellefu stig í efsta sæti þýsku úrvals- deildarinnar en Flensburg getur skotist á toppinn með sigri á Lübbecke um helgina. Lemgo er í þriðja sæti með níu stig. - esá Aron Pálmarsson átti góða innkomu hjá Kiel: Lemgo náði stigi í Kiel ARON PÁLMARSSON Stóð sig vel með Kiel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJARNAN - HAUKAR 16-17 Mörk Stjörnunnar (skot): Þórólfur Nielsen 5/2 (12/4), Vilhjálmur Halldórsson 4/2 (14/2), Jón Arnar Jónsson 3 (6), Sverrir Eyjólfsson 2 (4), Kristján Svan Kristjánsson 1 (3), Eyþór Magnús- son 1 (5). Varin skot: Roland Valur Eradze 17/2 (32/5) 53%, Viktor Alex Ragnarsson 3/1 (5/1) 60%. Hraðaupphlaup: 2 (Kristján, Jón). Fiskuð víti: 6 (Sverrir 3, Daníel, Guðmundur, Þórólfur). Utan vallar: 12 mín. Mörk Hauka (skot): Elías Már Halldórsson 3 (4/1), Einar Örn Jónsson 3/1 (5/2), Sigurbergur Sveinsson 3/2 (10/3), Freyr Brynjarsson 2 (5), Pétur Pálsson 2 (2), Tjörvi Þorgeirsson 1 (2), Guðmundur Árni Ólafsson 1 (4), Björgvin Hólm- geirsson 1 (7), Stefán Rafn Sigurmannsson 1 (3). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 27/2 (43/6) 63%. Hraðaupphlaup: 5 (Pétur 2, Freyr, Elías, Einar). Fiskuð víti: 6 (Sigurbergur 2, Heimir Óli 2, Pétur, Einar). Utan vallar: 8 mín. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson, góðir en nokkuð hliðhollir Haukum. HANDBOLTI Íslandsmót karla hófst í gær. Vonandi er fall faraheill fyrir deildina því handboltinn sem boðið var upp á að þessu sinni var í einu orði sagt skelfilegur. Var engu líkara en maður væri að fylgjast með neðrideildarleik en ekki leik þar sem Íslandsmeistarar væru að spila. Haukarnir mörðu sigur að lokum en þurfa heldur betur að girða sig í brók fyrir framhaldið. Stjörnumenn fengu fín tæki- færi til þess að jafna leikinn undir lokin en klúðruðu síðustu tveimur skotunum sínum. Þeir voru þó ekki í neinu þunglyndi enda jákvætt fyrir þetta unga og óreynda lið að standa í meisturunum í fyrsta leik. Flestir bjuggust fyrir fram við því að þeir yrðu flengdir með 10-15 mörkum í leiknum. Þessi niður- staða er því til að byggja á en það sama verður ekki sagt um frammi- stöðuna. Leikurinn í gær var leikur mark- varðanna. Birkir Ívar fór gjörsam- lega hamförum í markinu. Varði 27 skot og var með 63 prósenta mark- vörslu. Það sjáum við ekki aftur í vetur í leik þar sem markvörður spilar í 60 mínútur. Leikmenn Stjörnunnar hjálpuðu þó nokkuð til með lélegum og oft á tíðum illa ígrunduðum skotum sem Birkir þurfti ekki að hafa mikið fyrir að verja. Gamli jálkurinn Roland Eradze var einnig í fantaformi hinum megin og hélt Stjörnumönnum lengi vel á lífi á leiknum. Sýndi gamalkunna takta og hann á eftir að reynast Stjörnumönnum drjúgur í vetur haldi hann heilsu. Fyrir utan markvörsluna er ekkert jákvætt hægt að segja um þennan leik. Hann var einfald- lega hræðilegur. Sóknarleikur beggja liða var átakanlega hægur, óagaður og lélegur. Skyttur lið- anna voru algjörlega út á túni. Það var átakanlegt að fylgjast með sóknarleik liðanna. Bæði lið geta mun betur og þá sérstaklega Haukar. Þeir vinna tæplega annan leik sem þeir spila svona illa. Þeir máttu að lokum þakka fyrir stigin eftir að hafa hleypt Stjörnunni inn í leikinn með ævintýralegum klaufaskap. „Ég get ekki verið kátur þrátt fyrir sigurinn. Vörnin var reyndar ágæt á köflum og Birkir að verja frábærlega. Sóknarleikurinn var aftur á móti hræðilegur og okkar reyndustu menn gerðu hvern feil- inn á fætur öðrum. Þetta jaðr- aði við að vera pínlegt á köflum fannst mér,“ sagði Aron Kristjáns- son, þjálfari Hauka, heiðarlegur í leikslok. „Það var mikill sviðsskrekkur í mörgum okkar leikmanna í dag. Fyrsti leikur í deild og menn pínu hræddir. Sumir að spila stór hlut- verk í fyrsta skipti í liði sem hefur verið meistari síðustu tvö ár. Það var fínt að fá hroll strax, vonandi hrista menn það af sér og fara að spila handbolta í næsta leik.“ Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki alls ósáttur í gær þrátt fyrir tapið. „Við erum að spila á móti meist- urunum og vissum að það yrði erfitt. Ég hafði samt trú á að við gætum sigrað. Varnarleikur og markvarsla var fín og sóknarleikur- inn ágætur en Birkir át allt sem á markið kom. Það er samt jákvætt að hafa staðið í Haukunum og þetta er eitthvað til að byggja á,“ sagði Patrekur. henry@frettabladid.is Hörmulegur handbolti Stjarnan og Haukar mættust í opnunarleik N1-deildarinnar í gær. Íslandsmeist- ararnir mörðu sigur, 16-17, í vægast sagt skelfilega illa spiluðum handboltaleik. GEKK ILLA Björgvin Hólmgeirsson náði sér ekki á strik í sókninni frekar en félagar hans í Haukum gegn Stjörnunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.