Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 80

Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Í dag er fimmtudagurinn 8. október 2009, 280. dagur ársins. 7.57 13.15 18.32 7.45 13.02 18.13 Það getur reynst erfitt að breyta út af vananum. Við erum gjörn á að hjakka í sama hjólfarinu og sitja sem fastast í þeim aðstæð- um sem við þekkjum best, jafn- vel þó að þær aðstæður séu ekki endilega þær bestu og breytinga væri þörf. Í þessu venjulega felst ákveðið öryggi . Þó að okkur tak- ist stundum að hrista upp í hlutun- um og breyta tímabundið til er til- hneigingin til að falla aftur í sama farið rík. ÞETTA á við um svo margt, bæði um hversdagslega hluti og þá sem skipta sköpum. Heimili mitt var til dæmis um tíma sjónvarpslaust. Það tók mig dálítinn tíma að venj- ast því, en þegar ég hafði lært að meta þá ró sem fylgdi í kjölfarið saknaði ég þess ekki neitt. Ég sá meira að segja fyrir mér, þegar sjónvarpssendingar næðust aftur, að kveikja hreinlega ekkert á sjón- varpinu, nema kannski rétt til að horfa á fréttir. Það gekk þó ekki eftir. Tækið hefur malað daginn út og daginn inn, síðan það komst aftur í gagnið. HVER hefur ekki ætlað sér að taka upp heilbrigðari lífsstíl? Hætta að láta ofan í sig óhollustu og að hreyfa sig meira. Leggja bílnum og ganga, drekka vatn og borða fisk, fara fyrr að sofa og þar fram eftir götunum. Mörgum hefur meira að segja reynst þrautin þyngri að láta af slæmum vana þrátt fyrir að sá ávani gæti farið með þá í gröfina verði ekkert að gert. Það er hæg- ara sagt en gert að laga sig að nýjum aðstæðum og fylgja þeim eftir. VINSÆLDIR ríkisstjórnarinnar hafa hrunið síðan hún tók við völd- um, eins og hún byrjaði vel. Fólk sá fram á breyttar áherslur með stjórnarsamstarfi sem ekki hafði verið áður reynt. Öðrum kimum samfélagsins yrði nú loksins gef- inn gaumur í fyrsta sinn í langan tíma. EN stjórnin tók við á erfiðum tímum og nú er fólk orðið óþreyju- fullt, hún riðar til falls og það hlakkar í hægrimönnunum sem sögðu vinstri öflin aldrei geta valdið þeim verkefnum sem fram undan væru. GÆTI það verið að eftir ein- ungis stutt hlé frá völdum taki Sjálfstæðis flokkurinn aftur við taumunum og sama stjórnar- mynstrið sem fólk barði sig frá síð- asta vetur, sendi þá þjóðina beint aftur í sama farið? Aftur í sama farið?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.