Menntamál - 01.06.1939, Blaðsíða 50
48
MENNTAMÁL
ARNGRÍMUR KRISTJÁNSSON:
Baráttan við efasemdirnar
Arngrímur Kristjánsson er fæddur 28. sept.
1900. Hann stundaði nám við búnaðarskól-
ann á Hvanneyri og lauk þar prófi 1919.
Kennarapróf tók hann 1923 og varð sama
ár fastur kennari við barnaskóla Reykjavík-
ur, fluttist að Austurbæjarskólanum, þegar
hann tók til starfa 1930 og var skipaður
skólastjóri Skildinganesskólans haustið 1936.
Arngrímur hefir jafnan, frá því hann varð
kennari, verið mjög liðtækur félagsmaður
Sambands íslenzkra barnakennara og gegnt
þar ýmsum mikilvægustu . trúnaðarstörf-
um. Hann hefir átt sæti í stjórn Sambandsins síðan 1927 og for-
maður þess 1934— 36. Hann var tilnefndur af stjórn S. í. B. til að taka
sæti í barnaverndarráði íslands, þegar barnaverndarlögin gengu í
gildi 1932, og var skipaður formaður þess 1936. Ritstjóri Unga íslands
hefir Arngrímur verið síðustu 6 árin og í stjórn barnavinafélagsins
Sumargjöf síðan 1926. Það er engin tilviljun, að A. Kr. er fyrstur manna
kvaddur til yfirstjórnar barnaverndarinnar af hálfu S. í. B. Hann hefir
frá því að hann gerðist kennari, látið sig barnavernd, einkum heilsu-
vernd barna, miklu skipta. Þá hefir hann beitt sér mjög fyrir skóla-
ferðum og gert tilraunir til að koma á garðyrkjunámi barna í Rvík.
Stendur hann þar vel að vígi sem búfræðingur, en auk þess stundaði
hann garðyrkjunám í Noregi sumarið 1926. S. Th.
Ég stundaði nám í Kennaraskólanum um sama leyti og
Kennarasambandið var stofnað. Á skólaárunum munu hug-
myndir okkar hafa verið mjög á reiki um það, sem kallað
er kaup, kjör og aðbúð, við þann starfa, er við hugðumst
að takast á hendur.
Hugur okkar var aðeins fanginn af einu, því að fá stöðu
og starf.
Okkur var það vel ljóst, enda hafði það verið brýnt fyrir