Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1969, Page 12

Æskan - 01.01.1969, Page 12
Hannibal var mjög áhugasamur við að skoða mynd sína í spegilglampandi tinöskju er konan sýndi j>eim. hingað, Villi,“ hrópaði Bolivar. „Hér er athyglisverð- asti hluti námunnar.“ í botni námuopsins hittu þeir verkstjórann. Hanni- bal var fenginn Ijóslampi í ranann til þess að vísa leiðina og brátt komu þeir að tveimur mönnum í hörku- vinnu. „Þessir menn eru að bora holur inn í bergið, þar sem sprengiefni er komið fyrir,“ sagði Bolivar, ,,og þegar búið er að sprengja, er mulningurinn látinn á vagn, sem flytur hann upp á yfirborðið." Villa fannst þetta allt saman mjög merkilegt og allt of stuttur tíminn, þar til þeir þurftu að fara aftur upp úr námunni. En í laumi var Hannibal mjög feginn, hann kunni ekki almennilega við sig í þessum dimmu, þröngu göngum. Síðar um daginn fór Bolivar með Villa og Hannibal á markaðstorg, þar sem bolivísk kona sat úti á götu og seldi alls konar potta og pönnur af ýmsum stærðum úr gljáandi tini, sem ekki ryðgar við notkun eða þó að bleyta komi að því. Hannibal var mjög hrifinn af stórri pönnu, sem konan sýndi þeim, hann ýtti vinum sínum til hliðar, til þess að komast betur að til þess að skoða mynd sína í pönnunni „Hann þarf alltaf að dást að sjálfum sér,“ sagði Villi brosandi við vin sinn Bolivar, „honum finnst hann vera svo myndarlegur.“ Kæra Æska! Mig langar að senda þér tvær myndir, sem ég tók þegar ég fór að sækja systur mína í sveitina. Fyrri myndin er af strák og hundi, strákurinn heitir Axel Helgason, og er þriggja ára, en hundurinn heitir Snati. Báðir eiga þeir heima á Valdarási í Víðidal, Húnavatnssýslu. Hin myndin er af litlu kaupakonunum, sem voru á þessum þæ á síðastliðnu sumri. Þær heita, taldar frá vinstri: Elísabet, Sigurbjörg (systir mín), Unnur og svo Axel litli og kálfur. Ég þakka þér þúsund sinnum fyrir allt. Æskan er bezta barnablað í heimi. Magnea S. Guttormsdóttir. 8

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.