Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1969, Qupperneq 21

Æskan - 01.01.1969, Qupperneq 21
Ný framhaldssaga. ^ Fylgizt með frá upphafi. TARZAN dpdbró&ir. Nóttina eftir viðureignina við apann íæddist lítill drengur í kofanum. Saman við grát ungbarnsins bfand- aðist öskur ljónsins og garg smáapanna í trjánum. Alice náði sér aldrei til fulls eftir hinn hræðiiega atburð, er hún varð að skjóta apann til að bjarga manni sínum. Hún lifði sem í öðrum heimi og lagði nú alla sál sína í að ala upp litla drenginn þeirra. — Stundum spurði hún mann sinn, þegar öskur villidýranna glumdu við að næturlagi: „Hvaða hávaði er þetta góði minn, maður fær varla svefnfrið?" eða: „Hvers vegna sjást þjónarnir okkar aldrei?“ Maður hennar gerði engar tilraunir til að dylja hana sannleikans um }rað hvar þau voru og"hvernig ástæð- urnar væru í raun og veru, en þrátt fyrir það, fannst henni oftast, að þau væru stödd heima á Englandi. Clay- ton þótti það að sumu leyti gott, að kona hans gerði sér ekki fulla grein fyrir hvernig liögum þeirra var háttað, því að þrátt fyrir allt var hún hamingjusöm og gleði hennar yfir barninu mikil. Eigi að síður vissi hann, að lieilsa hennar lék á blá-strái. Eina von hans var, að skip kæmi að bjarga þeim og varð þó sú von veikari með hverjum deginum sem leið. í raun og veru var það þó svo, að enska stjórnin hafði sent skip út á þessar slóðir til leitar að skipinu „Fuwalda." Flak þess fannst fljótlega, en mannlaust með öllu. Var því talið, að allir hefðu farizt og leitinni hætt við svo búið. Clayton eyddi tímanum við það, að endurbæta húsið. Hann hafði nú lokið við að þi 1 ja það í hólf og gólf og feldir af pardusdýrum þöktu gólfið. Að utan þétti hann allar rifur með sérstakri tegund af leir, sem hann fann skammt frá ströndinni. Gluggatjöldin voru úr grasflétt- um og bambus og margar hillur og skápa hafði hann sett upp á veggina. Stöðugt hafði Clayton í huga árásir Lífið í skóginum. stóru apanna og annarra villidýra, og því gerði hann allt sem traustast, bæði glugga- og dyraumbúnað. Lengi glímdi hann við að smíða haganlega loku á hurðina og tókst það svo vel, að sjálfur varð hann undrandi yfir því. í hillurnar á kofaveggjunum raðaði hann bókum þeirn, er þau hjón höfðu haft með sér. Þar á meðal voru barna- bækur og stafrófskver, því að þau vissu að barnið þeirra mundi ef til vill verða komið á þann aldur, að þurfa þeirra með, áður en þau sneru heimleiðis. Oft las hann hátt f’yrir konu sína úr bókunum þegar kvöld var komið. Að vissu leyti voru þau hamingjusöm þarna í einverunni, þrátt fyrir allt, og þegar þau horfðu á litla drenginn sinn velta sér á pardusfeldinum á gólfinu, gleymdu þau oft stað og stund. Bráðum færi hann að læra að ganga. Oft var Clayton að reyna að gera sér grein fyrir hvar þau væru niðurkomin. Helzt gizkaði hann á, að þessi staður væri einhvers staðar á vesturströnd Afríku, nálægt miðjarðarlínu. Regntími fór í hönd, en stóð stutt og það gladdi þau lijónin, að kofinn þeirra reyndist vel og lak ekki dropa. Oft varð Clayton var við stóru mannapana í skóginum kringum húsið, en hann gætti þess vel nú orð- ið, að fara aldrei byssulaus frá heimilinu og Alice hélt sig að mestu inni hjá barninu. Stóru villidýrin voru líka farin að sneiða hjá þessu undarlega kofahreysi, sem sendi þrumur út frá sér, ef þau nálguðust. Það var tæpu ári eftir að drengurinn fæddist, að móðir hans dó. Hún leið út af að næturlagi eins og Ijós og Clayton var lengi að átta sig á því, er skeð hafði. Hann klæddist og gekk út. Sólin var að rísa yfir trjátoppana, en hann sá það varla. Hann gekk inn aftur og gleymdi að loka hurðinni á eftir sér aldrei þessu vant. Clayton settist við borðið, sem hann hafði smíðað á sínum tíma, en þar lá dagbókin hans, sem hann þó jafnan geymdi í járn- kassanum litla. Þessa dagbók hafði liann skrifað í eitt ár og til þess að verja hana raka frumskógarins hafði hann hana jafnan í þétturn járnkassa. Hann hafði af rælni skrifað hana á frönsku og kemur þessi bók síðar við sögu. Og sem hann sat þarna við borðið sitt í morgunsárinu, er 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.