Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1969, Page 61

Æskan - 01.01.1969, Page 61
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSgi HEIÐA — FramKaldssaáa í myndum. 117. EFTIR messu kom sjálfur presturinn til afa: „I»að gleður mig að sjá þig hér,“ segir hann og tekur innilega í hönd afa. „Já, ég hef látið af villu míns vegar, herr prestur," svarar afi. „Með vetrinum flyt ég niður í þorpið ásamt Heiðu.“ „Verið ætíð velkomin til mín,“ segir prestur — 118. ÞAÐ er sælt að lifa í sátt við Guð og menn,“ segir afi, á leið frá kirkju. „Guð hefur viljað mér vel, þegar hann sendi mér þig.“ Hann klappar Heiðu ástúðlega á vangann. Þegar þau koma að kofanum hennar ömmu, gengur afi inn. „Sæl vert þú, amma,“ segir hann. „En þetta er hann Fjallafrændi," hrópar amma undrandi. „Að mér skyldi auðnast að þakka þér fyrir allt hið góða sem þú hefur auðsýnt okkur. Guð blessi þig.“ 119. PÉTUR kemur hlaupandi inn í stofuna: „Hér er komið bréf til þín Heiða,“ hrópar hann. Heiða opnar bréfið í flýti. Það er frá Klöru, sem segir, að hún sé að fara með ömmu sinni í ferðaiag, og ætli í leiðinni að heimsækja Heiðu og afa. Klara segir einnig í bréfinu, að amma hennar hafi sent ömmu Heiðu kaffi, svo að hún fái eitthvað gott að drekka með brauðunum. Þetta þykja nú góð tíðindi. — 120. ÞAÐ er áliðið kvölds, þegar Heiða og afi kveðja. Afi leiðir Heiðu sér við hönd upp fjallið. Þau tala saman um komu Klöru og öminu hennar. Ef til vill kemur amma Klöru með rúm handa Heiðu. Hún hefur ráð undir rifi hverju. Hljómur kvöldklukknanna berst til þeirra neðan úr dalnum. Litli kofinn þeirra liggur baðaður í aftanskini, þegar þau koma heim. o»o*o*o*o»o*o*o< MAI BRITT er fædd í Lindingö rétt við Stokkhólm 22. marz. Hún var ekki mikið fyrir skólalærdóm og þótti heldur ódugieg í skólan- um og þess vegna réði hún sig strax og hún hafði aldur til, 16 ára, til fyrirtækis, er seldi mynd- ir, bæði tízku- og vörumyndir til blaða um allan heim, og í gegnum þetta fyrirtæki kynnt- ist Carlo Ponti, hinn italski kvikmyndaframleiðandi, henni. Carlo Ponti valdi hana úr fjölda annarra fallegra sænskra stúlkna í aðalhlutverkið í mynd- inni „Dóttir svarta sjóræningj- ans“, og síðan fékk hún hvert hlutverkið á fætur öðru. Árið 1956 lék hún í kvikmyndinni „Stríð og friður“ og árið eftir byrjaði hún að leika í amerísk- um myndum, og fyrsta myndin, sem hún lék í var „Ung ást“, með Marlon Brando og Dean Martin. Það vakti heimsathygli á sínum tíma, er hún giftist blökkumanninum Sammy Dav- is, sem einnig er heimsfrægur í heimi skemmtana og kvik- mynda. JAMES DARREN er fæddur 8. júní árið 1936 í Philadelphia í Bandaríkjunum. Hann byrjaði að leika hjá Col- umbia kvikmyndafélaginu og hefur leikið í mörgum myndum hjá því félagi undir stjórn Joyce Selznick, einnig hjá öðrumkvik- myndafélögum. Hann hefur einnig sungið inn á margar plötur og þær hafa selzt mjög vel. Stærsta og þekktasta myndin, sem hann hefur leikið í til þessa, er „Hinir hugrökku ungu menn“. eSS3SS8SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSZSSS8SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS3SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS2SSS8SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS^SSS 57

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.