Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1969, Page 67

Æskan - 01.01.1969, Page 67
r ai!iiiii!iiia'iiiiaii!iiii:Miiiiiiii:Mi!iiiiiiiailiiiiiiiiiaiiai;aiii!iiii!.iiiiriiiiiiiaiiii:iiiiiiiiii!ii!iii;Biiiiiaiiiiiii.iiiiiiii:ii'DiiMiiii!iitaiiaiiiuiiiiuiiiBhani"i'it' ■-jt.i, ■••Bt«i:iii>a>*ii<.it>aitCitliiiiiRiiliiiuauai.i «• BJÖSSI BOLLA Teikningar: J. R. Nilssen. — Texti: Johannes Farestveit. 1. Það eru votir karlar, sem koma frá læknum yfir cngið upp á þjóðveginn. Þeir liafa ekki gengið lengi, þegar þeir koma auga á cinhverja þúst framundan upp við hæð, handan vegarins. „Getur lietta verið lcofi eða cinhver manna- byggð?“ segir Þrándur og stanzar við. Þeir koma nær og sjá, að þetta, sem þeir héldu vera kofa, er draslhaugur með stórum kössum og alls konar rusli ægir þar saman. — 2. Þeir fara nú nð róta til í draslinu og þar kennir margra grasa. Auk kassanna eru rúmdýnur, ryðgaðar fötur og tómar flöslsur. Allt i einu fer Bjössi að blístra. „Hvað er hér?“ Já, ekki ber á öðru, það sem Bjössi dregur fram er gamall frakki, slitinn, en þó vel nothæfur. — 3. Bjössi hristir rykið úr frakkanum og lætur eins og hann sé fyrir framan spegil, er hann klæðir sig í hann. „Ja, sko það vantar ekki einu sinn á liann linappana," segir hann ánægður. „Ertu orðinn alveg vit- laus?“ tautar Þrándur, er hann sér hvernig Bjössi lætur. „Ætlar þú að gera þig að fifli? Ég geng ekki með þér svona til fara.“ „Allt er betra en að skjálfa af kulda,“ anzar Bjössi hinn ánægðasti. — 4. Þeir halda nú aftur af stað og brátt koma þeir auga á stór- an bóndabæ. Þrándi er orðið kalt, þvi liann er á blautri skyrtunni og vill, að þeir fari heim á bæinn og fái að þurrka fötin sin og lilýja sér. Þeir eru ekki alveg ásátlir um það, hvor þeirra cigi að hafa orð fyrir l>eim, svo Þrándur tekur upp tvö grasstrá og þeir draga um það hvor þeirra eigi að fara á undan. Það verður hlutskipti Bjössa, því hann dregur styttra stráið og röltir nú heim að bænum, en Þrándur bíður á meðan. — 5. Það er geðvondur karl, sem kemur til dyra á bóndabænum, og áður en Bjössi kemur upp nokkru orði, þrumar karlinn: „Jæja, þú ert þá kominn. Þú er vist strákurinn frá fógetanum. .Ta, hann sagði mér í bréfinu, sem hann sendi mér i dag, að strákurinn væri lit- ill og sköllóttur." Aumingja Bjössi kom ekki einu orði upp, þreifaði upp i höfuð sér og rétt var það, hárið hafði allt sviðnað framan af liöfði hans, svo það mátti segja, að sköllóttur var hann. — 6. Karlinn þreif nú í aumingja Bjössa og lirópaði: „Þú mátt bóka það, að ég borga engan lúxusskatt til fógetans fyr- ir þennan gamla bílskrjóð. Þarna getur þú séð hann. Þarna er nú allur lúxus- inn! Hann stendur þarna. Sjáðu bara. Farðu með hann og það á stundinni, því þú færð ekki einn einasta cyri hjá mér. Þetta er vita ónýtt drasl.“ ■J V

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.