Æskan - 01.10.1974, Page 6
75 ÁRA
Þá voru þeir Ólafur Haukur Árnason, Grímur
Engilberts og Helgi Tryggvason ráðnir ritstjórar.
Helgi lét af starfi eftir eitt ár, en Ólafur um ára-
mótin 1957—58. Þá var Heimir Hannesson ráðinn
með Grími. Hann starfaði við blaðið í eitt ár, en
síðan hefur Grímur Engilberts verið ritstjóri einn.
Framkvæmdastjóri blaðsins og bókaverslunarinn-
ar hefurverið síðan 1961 Kristján Guðmundsson.
í stjórn Æskunnar, bókaútgáfunnar og Bóka-
búðar Æskunnar eru núna Ólafur Þ. Kristjánsson,
fyrrum skólastjóri, Stefán H. Halldórsson gjald-
keri og Gunnar Þorláksson fulltrúi.
Með þá trú í hjarta, að ÆSKAN hafi unnið
æsku íslands vel á þessum 75 árum, óskum við,
sem stjórnum blaðinu í dag, að velgengni blaðs-
ins megi aukast. Þess vegna höfum við ákveðið
að halda áfram á sömu braut í öruggri von um
það, að vaxandi vinsældir ÆSKUNNAR geri kleift
að auka blaðið og bæta eftir kröfum nýs tíma.
svo að Æskan megi um ókomin ár hafa forystu
í útgáfu barna- og unglingablaða á íslandi. Æska
landsins verður á þessu ári að gera sitt eina
blað að stórveldi. Hún getur gert það með Þvl
að afla nýrra kaupenda á 75 ára afmælinu, 20
þúsund kaupenda.
Takið nú höndum saman allir vinir ÆSKUNN-
AR og gerið kraftáverk fyrir blaðið ykkar á þess-
um tímamótum.
4