Æskan - 01.10.1975, Blaðsíða 16
vi3 vísindastörf. Maður á Bahamaeyjum skýrði frá því að hann hefði
orðið að fá lánaða peninga fyrir frímerkjum og vonaðist til að fá þá
endurgreidda.
150 ÁRA GAMALL BOÐSKAPUR
Sannanlega lengsta rek flöskupósts er talin flaska, sem sett var f'
sjóinn við Perth í Ástralíu í júní 1962 og nær 5 árum síðar fannst í
Miami í Flórída. Það er talið að flöskuna hafi rekið um 18.000 km
vegalengd og meðalhraðinn hafi verið 0,34 mílur. En það eru ekki
aðeins ferðalög þessara flöskupósta, sem vekja áhuga heldur einnig
tímalengdin frá því þeim er kastað út og þar til þær finnast. Nálægt
Victoria í British Columbia fannst flöskupóstur árið 1936, sem hafði
verið kastað í sjóinn 18. nóvember 1899 af skipi, er var statt úti
fyrir strönd Svíþjóðar eða 37 árum áður. En heimsmetið á þessu
sviði — ef rétt er greint — hefur flöskupóstur frá áhöfninni á jap-
önsku skipi, sem var að leita að fjársjóðum á eyðiey í Kyrrahafinu
árið 1784. Skipið fórst og 45 mönnum af áhöfninni tókst að bjarga
sér upp á kóraleyju, en létust svo úr hungri. Einn af áhöfninni,
Matsuyama að nafni, risti frásögn af slysinu á trébút, sem hann setti
f flösku og kastaði í sjóinn. Það var ekki fyrr en 1935 sem flaskan
fannst, eða 150 árum sfðar, við strendur Japans, og merkilegt að
það var skammt frá fæðingarstað Matsuyamas.
RÚSÍNAN í PYLSUENDANUM
Vorið 1970 skýrðu sænsk dagblöð frá því, að sænskur sjómaður
hefði 15 árum áður skrifað bréf, er byrjaði þannig: ,,0nly for girls ..
hann tróð bréfinu í holienska mjólkurflösku með gúmmítappa og
kastaði henni í Miðjarðarhafið. Fiskimaður frá Sikiley rakst síðar
á flöskuna á reki úti á sjó, bréfið var á ensku, sem hann gat ekki
lesið, svo að hann afhenti dætrum sínum það. Þær fengu prestinn
til þess að þýða það, báðar svöruðu með bréfi og mynd af sér, sjó-
maðurinn var ekki lengi að taka ákvörðun og nú hefur hann verið
giftur annarri systurinni í 15 ár, fjölskyldan býr í Svíþjóð og hjón-
in eiga tvö börn. úr Sjómarmablaðinu Víkingi.
nnini iu:
ÞEGAR SNJÓRINN KEMUR
Það er óneitanlega stundum
gaman, þegar snjórinn kemur, því
að þá er hægt að búa til snjóbolta,
að ég tali nú ekki um að renna sér
á skíðum og sleðum, en svo má líka
búa til alls konar dýr, fólk og fénað
úr snjónum. Hvað segið þið t. d. um
þessa snjómaddömu, sem er á leið
í búðina að kaupa? Þið sjáið að
kisa er með í ferðinni. Kannski gæti
eitthvert ykkar búið til svona snjó-
kerlingu í vetur?
Hérna sérðu, hvernig hús voru
byggð í fornöld.
Veistu, að það er hægt að saga
og höggva stein? Sumar steinteg-
undir er óvenju auðvelt að saga-
Þær er hægt að nota til að reisa
hús. Hérna sérðu steinborg.
Sums staðar á jörðinni rignir
mikið. Það rignir mikið hérna. Þakið
á húsinu er hátt og bratt til þess að
regnið renni auðveldlega niður.
Veistu, hvers vegna húsið stendur
á háum stólpum?
Hús eru gerð úr leir, tré eða
steini. Þau eru reist úr efnum, sem
auðvelt er að ná í. Þetta er hús úr
tré. Það er nefnilega í skógi. Hér
búa Indíánar. Indíánar hafa oft
tótem-staur fyrir utan húsið. Áður
fyrr trúði fólk því, að tótem-staurar
gætu rekið illar vættir á brott.
Háhýsi er reist úr steinsteypu og
stórum járnbjálkum. Er skólinn þinn
úr tré, leir, múrsteini eða stein-
steypu. Úr hvaða efni er húsið þitt?
«Jjfy(L«L
14