Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1920, Blaðsíða 10
6
OLAFUR S. THORGEIRSSON
PáskatímabiliS.
Kirkjuþingiö í Nicæa, er haldið var áriö 325 eftir
Krists fæöing, ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páska-
hátíðin skyldi ætið haldin vera hinn fyrsta sunnudag eftir
fyrsta tungl, er springi út næst eftir 20. marzmán. Sám-
kvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér stað á 35
daga tímabili, nefnilega á timabilinu frá 22. marz til 25.
apríl, að þeitn dögum báðum meðtöklum. Þetta tímabil
er nefnt páskatímabilið. Af þessu lerðir, að ef tungl væri
fult 21. marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði
sá dagur (22.) páskadagur. F_\’r á ári geta páskar aldrei
orðið. Þetta átti sér stað árið 1818. En sé tungl fult 18.
apríl og 18. april bteri upp ásuntuidag, yrði næsti sunnu-
dagur páskudagur, nefnil.25. apríl. Það kom fyrir síðast
árið 1886.
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd, er líður á milli þess, e-
sólin gengur yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin eðli-
legasta skifting tímans. En sökum hinnar mismunandi
hreifingar jarðarinnar umhverfis sólina og sökum bugsins
a solargangslínunni (Ecliptic), er aldrei nákvæmlega jafn-
langur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna línu. Af
því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stundaklukka
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn
svo að önnur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða
þvert yfir miðjarðarlínuna. Er sú ímyndaða sól þá stund-
um á utidan og stundum á eftir hinni einu virkilegu sól.
Er sá mismunur mestur 16 núnútur. Réttur sóltim er
miðaður vtð hina virkilegu sól, en hinn svo kallaði “meðal
sóltími“ aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól.
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveimur
dögúm á árinu—á jafndægrum haust og vor—að “meðal
sóltíma” og réttum sóltíma ber saman, því á þeim tveiui
dögum að eins er buglínan eða sólargangslínan yfir
miðjarðarlínunni.