Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 28
18 KIRKJURITIÐ bæn sinni, er frelsarinn birtizt honum. Og frá þeirri stundu fór páfanum batnandi. Mér hefir skilizt, að flestir taki þessari fregn sem sjálfsagðri helgisögn. En þá er langt komið frá uppruna kristninnar, ef svo væri komið hér í landi, að flestir kynnu að halda, að Kristur geti ekki birzt, ef það er vilji hans. Upprisa Krists er hornsteinn kirkjunnar. Og eins og í frumkristni hafa verið til menn á öllum öldum, sem stórvirki hafa unnið á akri kristninnar í krafti þeirrar vissu, að þeir hafi séð hinn upprisna eða svo að segja þreifað á nálægð hans. Tvö dæmi aðeins frá þessari öld. Sadhu Sundar Sing varð heimsfrægur vegna þess, að hann fetaði manna bezt í fótspor Drottins, eftir að hafa séð hann í sýn. Aðeins einum íslendingi hefir að því er ég veit bezt verið reizt myndastytta, meðan hann er enn lífs í höfuðstað landsins. Séra Friðriki Friðrikssyni. í fyrsta bindi ævisögu hans „Undirbún- ingsárunum“ geta menn lesið um það á bls. 155, hvað olli þátta- skilum í lífi hans, gerði hann að þeim manni, sem hann varð og varð uppspretta ævistarfs hans. Drottinn vitjaði hans. Þess vegna sakna ég þess, að ekkert Kriststákn er á styttunni. í þessu sambandi vil ég geta þess, að franska tímaritið Jours de France birtir síðast í október f. á. margar myndir frá Lourdes, og þar á meðal af nýju kraftaverki. Ekkja að nafni Rachel Piro- vani hafði verið veik í 18 ár og gat síðast vart hreyft legg né lið. Töldu læknar í Desio á Ítalíu hana ólæknandi. Kona þessi var síðastliðið haust flutt á sjúkrabörum til Lourdes. Eftir baðið í lindinni steig hún heilum fæti á jörð ... Ótrúlegt en satt ... Enda satt, að margir eru þeir hlutir á himni og jörð, sem vér fá- um hvorki skýrt né skilið en verðum þó að trúa. Gunnar Árnason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.