Kirkjuritið - 01.09.1973, Blaðsíða 76
henni við Postulasöguna. Fró því að
hún kom fyrst út í Bretlandi árið 1968,
hefur hún verið svokölluð „metsölu-
bók" víða um lönd.
Hér skal ekki lýsa þessari bók né
efni hennar mörgum orðum, enda hef-
ur lítillega verið sagt frá bróður
Andrési áður hér í ritinu. Lífsstarf
hans er að flyfja Biblíur og krisfileg
rit til þeirra, sem meinað er um slíkan
munað í heimalöndum. Saga hans er
ótrúlegri öllum œvintýrum. Svo verður
raunar œtíð þar, sem Guð kallar menn
til stórvirkja. Um árangur eða ávöxt
verður ekkert fullyrt, en við blasir and-
leg neyð og sálarhungur. Dyr standa
opnar, varla þó 1 hálfa gátt, en hand-
an þeirra eru hvítir akrar. Svo vel er
bókin skrifuð, þekkileg og mannleg,
að hún mundi hljóta sess meðal si-
gildra bóka þess vegna, þótt efni
hennar vœri til muna fáskrúðugra og
fátœklegra en er.
Þýðingu frú Sigurlaugar Árnadótt-
ur hefur undirritaður ekki lesið. —
aðeins blaðað lítillega í henni, og
virtist hún gerð af vandvirkni þar, sem
í var skyggnzt.
G. Ól. Ól.
Blessaður sé munnur þinn, Drottinn.
Drottinn minn Jesús Kristur, blessaður sé munnur þinn, blessaðar séu
varir þínar fyrir hvert orð, sem þú talaðir til lœkningar likama og sá!
og til frœðslu í kenningu þinni. Drottinn, fyrir allt þetta sé tunga þín
hálofuð. En umfram allt sért þú vegsamaður, þú sonur hins lifandi
Guðs, fyrir það, að þú hefir leyst mig undan valdi myrkursins og frelsað
mig frá dauðanum. Ó, Jesús, þú ert lœknir mér, sjúkri mannveru, þú ert
hin sanna fœða sálar minnar, þú ert björgunin úr snörum hins vonda.
Ó, Jesús, þú, sem megnar allt, opna mitt harðlœsta hjarta, svo að ég
megni að þakka þér fyrir alla hluti.
Amen.
Úr bœnabók sr. Sigurðar Pálssonar.
Bœn Birgittu í Vadstena.
266